Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 310. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1926  —  310. mál.




Frávísunartillaga



í málinu: Till. til þál. um staðgöngumæðrun.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur og Merði Árnasyni.



    Þar sem málið er vanrætt innan þings og í samfélaginu, og fyrir liggja verulegar athugasemdir í umsögnum um upphaflegt þingmál um staðgöngumæðrun, er lagt til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar.