Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 310. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1932  —  310. mál.




Breytingartillögur



við brtt. á þskj. 1866 [Staðgöngumæðrun].

Frá Skúla Helgasyni, Eygló Harðardóttur, Árna Þór Sigurðssyni og Birgittu Jónsdóttur.



     1.      Í stað orðanna „undirbúi frumvarp til laga sem heimili staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni“ í 1. efnismgr. komi: verði falið að skoða álitamál um staðgöngumæðrun.
     2.      Í stað 2. og 3. efnismgr. komi ein ný málsgrein sem orðist svo:
             Hópurinn hafi m.a. hliðsjón af niðurstöðum vinnuhóps fyrrverandi heilbrigðisráðherra sem skilaði áfangaskýrslu um siðferðileg, læknisfræðileg og lögfræðileg álitaefni tengd staðgöngumæðrun. Starfshópurinn skili niðurstöðum til velferðarráðherra sem flytji Alþingi skýrslu um málið að því loknu.