Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 704. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1950  —  704. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum (hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra, fjárfestingarheimildir).

(Eftir 2. umr., 16. sept.)



1. gr.

    Við 29. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Stjórn lífeyrissjóðs skal vera skipuð þremur einstaklingum hið fæsta. Hvort kyn skal eiga fulltrúa í stjórn þegar stjórn er skipuð þremur mönnum og þegar stjórnarmenn eru fleiri en þrír í lífeyrissjóði skal tryggt að hlutfall hvors kynsins sé ekki lægra en 40%. Sama gildir um kynjahlutföll meðal varamanna í lífeyrissjóðum en hlutföllin í stjórn og varastjórn skulu þó í heild vera sem jöfnust.

2. gr.

    31. gr. laganna orðast svo:
    Stjórnarmenn og framkvæmdastjórar lífeyrissjóða skulu vera lögráða, fjárhagslega sjálfstæðir, hafa óflekkað mannorð og mega ekki á síðustu fimm árum hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota. Þeir mega ekki í tengslum við atvinnurekstur hafa hlotið dóm á síðustu tíu árum fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum, samkeppnislögum, lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrotaskipti o.fl. eða ákvæðum laga er varða opinber gjöld, svo og sérlögum um aðila sem lúta opinberu eftirliti með fjármálastarfsemi. Stjórnarmenn skulu vera búsettir hér á landi, í aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins, aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum. Fjármálaeftirlitið setur reglur um fjárhagslegt sjálfstæði stjórnarmanna og framkvæmdastjóra.
    Stjórnarmenn í lífeyrissjóðum mega ekki eiga sæti í stjórn annars eftirlitsskylds aðila eða aðila í nánum tengslum við hann né vera starfsmenn eða endurskoðendur annars eftirlitsskylds aðila eða aðila í nánum tengslum við hann. Stjórnarmenn lífeyrissjóðs mega ekki sinna lögmannsstörfum fyrir annan lífeyrissjóð. Starfsmönnum lífeyrissjóðs er ekki heimilt að sitja í stjórn hans.
    Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. getur starfsmaður annars eftirlitsskylds aðila tekið sæti í stjórn lífeyrissjóðs ef hann er kosinn eða skipaður úr hópi sjóðfélaga. Undanþága þessi á þó ekki við um stjórnendur og lykilstarfsmenn eftirlitsskyldra aðila eða ef hinn eftirlitsskyldi aðili annast rekstur lífeyrissjóðs eða eignastýringu hans að hluta eða öllu leyti. Stjórnarseta samkvæmt þessari málsgrein skal háð því að hún skapi ekki, að mati Fjármálaeftirlitsins, hættu á hagsmunaárekstrum á fjármálamarkaði eða dragi úr trúverðugleika stjórnar lífeyrissjóðs. Skal þar m.a. horft til stöðu þeirra starfsmanna sem um ræðir hjá eftirlitsskyldum aðila.
    Til viðbótar framangreindum skilyrðum skulu stjórnarmenn búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu til að geta gegnt stöðu sinni á tilhlýðilegan hátt.
    Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur sjóðsins og skal hann fara eftir þeirri stefnu og fyrirmælum sem sjóðstjórn hefur gefið. Ráðstafanir sem eru óvenjulegar eða mikils háttar getur framkvæmdastjóri aðeins gert samkvæmt heimild frá sjóðstjórn.
    Framkvæmdastjóra er óheimilt að taka þátt í atvinnurekstri nema að fengnu leyfi stjórnar. Eignarhlutur í fyrirtæki telst þátttaka í atvinnurekstri nema um sé að ræða óverulegan hlut sem ekki veitir bein áhrif á stjórn þess.
    Menntun, starfsreynsla og starfsferill framkvæmdastjóra lífeyrissjóðs skal vera með þeim hætti að tryggt sé að hann geti gegnt stöðu sinni á forsvaranlegan hátt.
    Lífeyrissjóður skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu um skipan og síðari breytingar á stjórn og framkvæmdastjóra. Tilkynningar þessar skulu berast Fjármálaeftirlitinu án tafar og þeim skulu fylgja fullnægjandi upplýsingar til þess að hægt sé að meta hvort skilyrðum greinarinnar sé fullnægt. Fjármálaeftirlitið setur reglur um hvernig staðið skuli að hæfismati.
    Um hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóðs til meðferðar máls fer eftir ákvæðum II. kafla stjórnsýslulaga.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 36. gr. laganna:
     a.      2. málsl. 3. mgr. orðast svo: Fjárfestingar í óskráðum hlutabréfum skv. 6. tölul. 1. mgr. eru þó eingöngu heimilar ef engar hömlur eru á viðskiptum með hlutabréfin og ársreikningar hlutafélaganna öllum aðgengilegir.
     b.      Á eftir 2. málsl. 3. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Fjárfestingar í hlutdeildarskírteinum eða hlutum annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu skv. 8. tölul. 1. mgr. eru eingöngu heimilar ef engar hömlur eru á viðskiptum með eignarhlutina. Ákvæði um að rekstrar- eða ábyrgðaraðili sjóðs um sameiginlega fjárfestingu skv. 8. tölul. 1. mgr. eigi forkaupsrétt á eignarhlut eða þurfi að samþykkja kaupanda að eignarhlut í sjóðnum teljast ekki hamla viðskiptum.

4. gr.

    Í stað dagsetningarinnar „1. apríl 2011“ í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða VIII og 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða IX í lögunum kemur: 1. janúar 2012.

5. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi. Þó skulu ákvæði 1. gr. öðlast gildi 1. september 2013.