Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 47. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 47  —  47. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um tónlistar-
og ráðstefnuhúsið Hörpu við Reykjavíkurhöfn.


Frá Merði Árnasyni.



     1.      Hvaða breytingar eru fyrirhugaðar á stjórnskipan og rekstrarformi Hörpu?
     2.      Hver er nú áætlaður heildarkostnaður við byggingu hússins? Hvaða framkvæmdum er enn ólokið við smíði mannvirkisins?
     3.      Hversu mikið fé var afskrifað við yfirtöku verkefnisins eftir hrun og á hvern fellur sá kostnaður?