Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 56. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 56  —  56. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um námsárangur drengja í skólum.



Frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.



     1.      Hyggst ráðherra nýta á einhvern hátt nýlega skýrslu starfshóps Reykjavíkurborgar um námsárangur drengja í skólum?
     2.      Er ráðherra sammála bókun fulltrúa Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í borgarstjórn um að ekki sé sérstök nauðsyn á að kanna námsárangur drengja í skólum?