Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 71. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 71  —  71. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um vinnuhóp um vöruflutninga.

Flm.: Árni Johnsen, Birkir Jón Jónsson, Helgi Hjörvar, Jón Gunnarsson,
Ragnheiður E. Árnadóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson,
Sigurður Ingi Jóhannsson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Vigdís Hauksdóttir.


    Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að skipa vinnuhóp til þess að gera ítarlega úttekt á vöruflutningum hérlendis, þar á meðal á hagkvæmni þess að auka vöruflutninga á sjó.

Greinargerð.


    Brýnt er að gera nú þegar ítarlega úttekt á mögulegum úrbótum í vöruflutningum á Íslandi, bæði á sjó og landi. Álag á vegakerfi landsins hefur aukist mjög á undanförnum árum með umfangsmiklum vöruflutningum stórra flutningabíla. Að mörgu leyti eru íslensku þjóðvegirnir varla til þess gerðir að mæta slíkum flutningum auk þess sem flutningarnir krefjast mikillar varkárni af hálfu bílstjóra í tengslum við umferð venjulegra fólksbíla. Vöruflutningar á landi hafa reynst hagkvæmir fyrir þjónustu við landsbyggðina, en sjálfsagt er að kanna alla möguleika til hlítar. Kanna þarf hagkvæmnina út frá tíðni ferða, þörfinni, kostnaði og öðrum þáttum. Einn vöruflutningabíll slítur vegakerfinu 20–30 þúsund sinnum meira en venjulegur fólksbíll þannig að margs er að gæta. Ekki slíta skipin hafinu en á móti kemur oft erfið barátta við náttúruöflin.
    Mikilvægt er að gera úttekt á vöruflutningum í samvinnu við hagsmunaaðila í flutningum á sjó og landi, sveitarfélög, sérfræðinga og embættismenn, með það að markmiði að bjóða upp á hagkvæmustu kosti sem völ er á. Vöruflutningar á landi eiga vart samleið með venjulegum fólksbílum á fjölmörgum leiðum um vegakerfi landsins.