Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 95. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Prentað upp.

Þingskjal 95  —  95. mál.
Flutningsmenn.




Tillaga til þingsályktunar



um undirbúning að hönnun og stækkun Þorlákshafnar.

Flm.: Árni Johnsen, Róbert Marshall, Björgvin G. Sigurðsson,
Sigurður Ingi Jóhannsson, Eygló Harðardóttir,
Unnur Brá Konráðsdóttir, Ragnheiður E. Árnadóttir.


    Alþingi ályktar að skora á ráðherra samgöngumála að fela Siglingastofnun að hefja nú þegar undirbúning að hönnun og stækkun Þorlákshafnar þannig að höfnin geti þjónustað 60–80 þús. tonna skip, allt að 225 metra löng.

Greinargerð.


    Tillaga þessi var áður flutt á 135., 136., 138. og 139. löggjafarþingi en varð ekki útrædd og er nú endurflutt óbreytt.
    Fyrirhuguð er mikil uppbygging í Þorlákshöfn á næstu árum á sviði iðnaðar, stóriðju og matvælaiðnaðar. Því er mikilvægt að íslensk stjórnvöld hafi á takteinum hugmyndir að stærð og gerð hafnar á næstu missirum. Þorlákshöfn er eina þjónustuhöfnin fyrir allt Suðurlandsundirlendið þar sem mjög mikil uppbygging atvinnurekstrar á sér nú stað.
    Árnessýsla og Rangárvallasýsla eru mjög ört vaxandi athafnasvæði og ein hin mesta uppbygging á landinu er í Árnessýslu. Erlend stórfyrirtæki í ýmsum greinum stóriðju hafa staðið í viðræðum við bæjaryfirvöld í Ölfusi um uppbyggingu þar sem mundi hafa mikla og jákvæða þýðingu fyrir Suðurland og landið allt. Því skiptir miklu máli að geta brugðist við eftirspurninni með stuttum fyrirvara. Nær 100 stór flutningaskip og farþegaskip koma nú þegar árlega til Þorlákshafnar og mikil aukning er fyrirsjáanleg auk alls fiskiskipaflotans sem Þorlákshöfn þjónustar, bæði lítil og stór skip.