Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 102. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 102  —  102. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um ráðningar starfsmanna í Stjórnarráðinu.



Frá Árna Þór Sigurðssyni.



     1.      Hversu margir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa, annarra en afleysinga, í Stjórnarráði Íslands án þess að starfið væri auglýst árin 2007–2011, sundurliðað á einstök ráðuneyti og ár?
     2.      Hversu margir þessara starfsmanna eru nú starfandi í hverju ráðuneyti fyrir sig?


Skriflegt svar óskast.