Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 106. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 106  —  106. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um stofnun Hofsjökulsþjóðgarðs.

Flm.: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Þuríður Backman,
Róbert Marshall, Atli Gíslason, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
Birgitta Jónsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Skúli Helgason, Þór Saari.


    Alþingi ályktar að fela umhverfisráðherra að vinna að því, í samvinnu við skipulagsyfirvöld og hugsanlega rétthafa, að stofna Hofsjökulsþjóðgarð sem hafi innan sinna marka Hofsjökul og aðliggjandi svæði. Umhverfisráðherra kynni Alþingi stöðu málsins fyrir lok vorþings 2012 og stefnt verði að formlegri stofnun þjóðgarðsins árið 2013.

Greinargerð.

    Þeirri hugmynd hefur oft verið hreyft á síðari árum að vernda beri náttúru miðhálendis Íslands með því að lýsa það þjóðgarð í heild sinni eða að stórum hluta. Um miðhálendið fór fram mikil umræða á 10. áratug liðinnar aldar og tengdist hún m.a. vinnu að skipulagi á svæðinu. Á árinu 1998 flutti Hjörleifur Guttormsson þingsályktunartillögu sem kvað á um stofnun fjögurra þjóðgarða á miðhálendinu sem hefðu innan sinna marka helstu jökla miðhálendisins og aðliggjandi landsvæði, þ.e. Hofsjökuls-, Langjökuls-, Mýrdalsjökuls- og Vatnajökulsþjóðgarða (þskj. 727, 122. löggjafarþing). Tillagan var endurflutt á 123. löggjafarþingi (þskj. 16.) og leiddi til ályktunar Alþingis 10. mars 1999 um Vatnajökulsþjóðgarð. Með henni var umhverfisráðherra falið að kanna möguleika á stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs (þskj.1144). Eftir umfangsmikla og vandaða vinnu tóku gildi 1. maí 2007 lög nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð, og var þjóðgarðurinn stofnaður formlega með reglugerð vorið 2008.
    Nú er brýnt að halda verkinu áfram og sjá verða að veruleika Hofsjökulsþjóðgarð sem hefði innan sinna marka Hofsjökul og aðliggjandi landsvæði sem sum hver eru þegar friðlýst eða á náttúruminjaskrá. Þar ber að nefna Þjórsárver, Kerlingarfjöll (sjá náttúruminjaskrá, 732), Guðlaugstungur (friðland samkvæmt auglýsingu í Stjórnartíðindum nr. 1150/2005) og Orravatnsrústir (sjá náttúruminjaskrá nr. 413) en við bætist önnur aðliggjandi svæði eftir því sem samkomulag tekst um þannig að úr verði sem stærst samfelld náttúrufarsleg heild. Í því sambandi verði m.a. horft til Austari-Jökulsár og Vestari-Jökulsár sem hluta af þjóðgarðinum. Við vinnu að málinu verði ekki síst tekið mið af þeim svæðum umhverfis jökulinn sem þegar eru ákvörðuð sem þjóðlenda (sjá fylgiskjal).
    Hofsjökull er þriðji stærsti jökull landsins, tæpir 1.000 km 2 að flatarmáli, og í honum er risastór ísfyllt askja. Tillagan felur í sér að Hofsjökull myndi eins konar kjarna væntanlegs þjóðgarðs sem tengist náttúruverndarsvæðum og öðrum verndarsvæðum sem yrðu hluti hans. Brýnt er að fólk á þeim svæðum sem liggja að þessum hluta miðhálendisins líti á stofnun þjóðgarðsins sem jákvæða aðgerð og komi að undirbúningi hennar og eigi hlutdeild í ferlinu, en að öðru leyti er hér um mál að ræða sem snertir þjóðina í heild. Því ber að leggja áherslu á nána samvinnu stjórnvalda við heimafólk, hlutaðeigandi skipulagsyfirvöld og hugsanlega rétthafa við undirbúning málsins. Einnig er nauðsynlegt að tryggja samfellu og samvinnu um stjórnun og eftirlit með þjóðgarðinum sem hluta af náttúruverndarsvæðum miðhálendisins.
    Miðhálendi Íslands er einstakt með jöklum sínum og stórum svæðum sem þeir hafa haft á mótandi áhrif, svo og jökulánum sem frá þeim renna. Samspil jarðelds og íss eru stórbrotin og uppspretta gífurlegra náttúruhamfara sem skollið geta á þá minnst varir. Þessar fágætu aðstæður auka mjög á aðdráttarafl landsins og miðhálendisins sérstaklega. Við þetta bætast auðnir og ósnortin víðerni sem flest er að finna í grennd jöklanna. Þessa gersemi ber Íslendingum að varðveita og vernda bæði sjálfra sín vegna sem og í alþjóðaþágu. Það verður best gert með hyggilegu verndarskipulagi.
    Með tilkomu Hofsjökulsþjóðgarðs væri tekið mikilvægt skref í náttúruvernd á Íslandi. Hofsjökli og umhverfi hans væri lyft á þann stall sem þau verðskulda og aðdráttarafl og gildi óbyggðanna yrði tryggt. Fyrir þjóð sem vill vera framarlega í umhverfismálum samhliða því að byggja upp sjálfbæra ferðaþjónustu til framtíðar er mikið í húfi að vernda náttúru landsins, ekki síst jarðsögulegar minjar, víðerni og jökla hálendisins. Það er ekki eftir neinu að bíða í þessum efnum enda senn liðinn hálfur annar áratugur frá því að hugmyndin að stofnun Hofsjökulsþjóðgarðs kom fyrst fram.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Fylgiskjal.


Óbyggðanefnd. Úrskurðarkort fyrir mál nr. 5/2008 Húnavatnshreppur austan Blöndu og Skagafjörður vestan Vestari-Jökulsár ásamt Hofsjökli.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


(http://obyggdanefnd.is/5_2008dHunavhrSkag.pdf)