Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 153. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 153  —  153. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um fjármálalæsi.


Frá Magnúsi Orra Schram.



     1.      Hvað hefur ráðuneytið gert með tillögur sem nefnd á vegum viðskiptaráðherra setti fram í skýrslu um fjármálalæsi í febrúar 2009?
     2.      Hefur ráðuneytið markað stefnu um það hvernig vinna beri að bættu fjármálalæsi meðal almennings?