Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 104. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 172  —  104. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002,
með síðari breytingum (varnarþing í riftunarmálum).

(Eftir 2. umræðu, 20. október.)


1. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 4. mgr. 103. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „24 mánuðir“ í 2. málsl. kemur: 30 mánuðir.
     b.      Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Mál sem slitastjórn höfðar á grundvelli þessa ákvæðis skulu þingfest fyrir þeim héraðsdómi þar sem fjármálafyrirtæki var tekið til slita skv. 3. og 4. mgr. 101. gr.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.