Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 178. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 182  —  178. mál.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um ráðningar starfsmanna.



Frá Árna Þór Sigurðssyni.



     1.      Hversu margir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa, annarra en afleysinga, í velferðarráðuneytinu og þar á undan í heilbrigðisráðuneytinu og félags- og tryggingamálaráðuneytinu án þess að starfið væri auglýst árin 2007–2011, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hversu margir þessara starfsmanna eru nú starfandi í ráðuneytinu?


Skriflegt svar óskast.