Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 226. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 232  —  226. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um fjárveitingar til vísindarannsókna og nýsköpunar.

Frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.


     1.      Hve miklu fé verja opinberir aðilar til vísindarannsókna og nýsköpunar og hvernig er skiptingin milli stofnana, sjóða o.s.frv.?
     2.      Hversu stóru hlutfalli fjárins er úthlutað með samkeppnisferli samkvæmt alþjóðlegum stöðlum?
     3.      Hve stórt hlutfall fjárins gengur til samkeppnissjóða Rannís?
     4.      Hvernig er eftirliti með árangri háttað?


Skriflegt svar óskast.