Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 157. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 246  —  157. mál.




Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar
um kostnað við utanlandsferðir.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu margar utanlandsferðir voru farnar á vegum ráðuneytisins og stofnana þess fyrstu níu mánuði þessa árs? Til hvaða lands eða landa var farið og í hvaða erindum?
     2.      Hver var heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess vegna fargjalda og greiddra dagpeninga fyrstu níu mánuði ársins, sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum?


    Svör við fyrirspurninni koma fram í eftirfarandi töflu:

Ráðuneyti/
stofnun
Fjöldi
í ferð
Land Tilefni ferða; janúar–september 2011 Heildarkostnaður
Umboðsmaður barna 1 Noregur Vinnufundur hinna norrænu embætta, 23.–25. mars, fundur hjá UB í Noregi 24. mars
Umboðsmaður barna 1 Svíþjóð Árlegur fundur norrænna umboðsmanna barna, 23.–25. maí
Umboðsmaður barna 1 Pólland Árlegur fundur samtaka evrópskra umboðsmanna barna 14.–16. september
Umboðsmaður barna 1 Sviss Fyrirtaka íslenska ríkisins hjá Barnaréttarnefndinni í Genf 23. september
Heild 4 Kostnaður (svar við 2. tölul.) 789.727
Þjóðgarðurinn
á Þingvöllum
3 Noregur Thing Project – Þingstaðir, samræmt verkefni
Heild 3 Kostnaður (svar við 2. tölul.) 379.432
Forsætisráðuneytið 1 Noregur Fyrirlesari á málþingi. Afhending Morkinskinnu, þjóðargjafar til Noregs (fulltrúi Fornritafélags Íslands)
Forsætisráðuneytið 3 Kanada og
Bandaríkin
Ráðherraferð: Íslendingadagurinn í Gimli, Manitoba og Norður- Dakota í Bandaríkjunum
Forsætisráðuneytið 1 Frakkland Ráðstefna um upplýsingalög
Forsætisráðuneytið 3 Danmörk Undirbúningur í tilefni af tveggja alda afmæli Jóns Sigurðssonar og sýningar í Jónshúsi í Kaupmannahöfn
Forsætisráðuneytið 1 Danmörk Fundur í stjórn Norðurbryggju (Nordatlantens Brygge)
Forsætisráðuneytið 2 Noregur Ráðherraferð – Minningarathöfn til heiðurs fórnarlömbum hryðjuverks þann 22. júlí 2011 í Noregi
Forsætisráðuneytið 1 Danmörk Fundur norræna stjórnenda um betra regluverk „Meeting of the Nordic Directors of better Regulation“
Forsætisráðuneytið 1 Finnland Árlegur fundur hjá Nordisk forvaltnings forum – stjórnsýsluumbótastarf Norðurlanda
Forsætisráðuneytið 1 Danmörk Ráðherra með hátíðarávarp 19. júní í Jónshúsi í tilefni 200 ára afmælishátíðar Jóns Sigurðssonar
Forsætisráðuneytið 4 Þýskaland Ráðherraferð til fundar við kanslara Þýskalands, Angelu Merkel
Forsætisráðuneytið 1 Bandaríkin Stjórnar- og meðlimafundur hjá Iceland Naturally
Forsætisráðuneytið 1 Svíþjóð Fundur í Task Force
Forsætisráðuneytið 1 Frakkland Ráðstefna hjá OECD
Forsætisráðuneytið 1 Danmörk Fundur í stjórn Norðurbryggju (Nordatlantens Brygge)
Forsætisráðuneytið 1 Danmörk Fundur í Task Force/sérfræðingahóp um grænan hagvöxt (Norræna ráðherranefndin)
Forsætisráðuneytið 5 England Ráðherraferð: Leiðtogafundur Breta, Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í London
Forsætisráðuneytið 1 Belgía Ráðstefna Information Day ICT Policy Support Program og NCP fundur
Forsætisráðuneytið 1 Belgía Fundur í CIP-ICT Committee sem fjármagnar þróunarverkefni í EES/ESB-löndum um upplýsingatækni
Forsætisráðuneytið 1 Belgía Fundur og ráðstefna á vegum Digital Agenda High Level Group sem er stýrihópur fyrir verkefni um innleiðingu upplýsinga- og fjarskiptatækni í EES/ESB-löndum
Forsætisráðuneytið 1 Finnland Fundur í IT-Forum sem er vinnuhópur um upplýsingatæknimál á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar
Forsætisráðuneytið 1 Belgía Fundir hjá Evrópusambandi um „EC project of monitoring electronic communications and information society services in the Enlargement countries“ – ESB greiddi ferðir og gistingu
Heild 33 Kostnaður (svar við 2. tölul.) 7.561.346