Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 183. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 248  —  183. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar
um ráðningar starfsmanna.


     1.      Hversu margir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa, annarra en afleysinga, í ráðuneytinu án þess að starfið væri auglýst árin 2007–2011, sundurliðað eftir árum?
    Einn sérfræðingur var ráðinn tímabundið til starfa til eins árs í upphafi árs 2011.

     2.      Hversu margir þessara starfsmanna eru nú starfandi í ráðuneytinu?
    Umræddur sérfræðingur er enn við störf í ráðuneytinu þar sem tímabundinni ráðningu hans er ekki lokið.