Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 252. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 261  —  252. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um aðför, nr. 90/1989.

Flm.: Arndís Soffía Sigurðardóttir, Árni Þór Sigurðsson, Lilja Mósesdóttir,
Björgvin G. Sigurðsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson,
Lilja Rafney Magnúsdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Róbert Marshall,
Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Þráinn Bertelsson.


1. gr.

    Við 63. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Fjárnámi verður ekki lokið án árangurs hafi sýslumaður lokið gerð gagnvart sama gerðarþola án árangurs á síðustu þremur mánuðum.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með frumvarpi þessu er lögð til breyting á aðfararlögum á þann hátt að sýslumönnum verði ekki heimilt að ljúka gerð með árangurslausu fjárnámi ef sami gerðarþoli hefur, innan þriggja mánaða, þurft að sæta árangurslausu fjárnámi fyrir annarri kröfu. Bannið sem ákvæðið felur í sér hefur ekki áhrif á fyrningarfrest krafna þar sem hann er rofinn við það tímamark þegar beiðni um fullnustu berst héraðsdómara eða sýslumanni, sbr. 18. gr. laga um fyrningu kröfuréttinda, nr. 150/2007. Með breytingunni munu kröfuhafar ekki tapa réttindum sínum heldur er um að ræða frestun á fullnustu gerðar á meðan í gildi er árangurslaust fjárnám. Skv. 1. tölul. 2. mgr. 65. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, getur lánardrottinn krafist þess að bú skuldara verði tekið til gjaldþrotaskipta m.a. ef fjárnám hefur verið gert hjá skuldaranum án árangurs að einhverju leyti eða öllu á síðustu þremur mánuðum fyrir frestdag. Flutningsmenn telja því óþarft að fleiri kröfuhafar sækist eftir því að gera árangurslaust fjárnám hjá skuldara innan þessa þriggja mánaða. Í ljósi þess að gerðin telst óþörf samkvæmt lögum á þessu tímabili telja flutningsmenn að um sé að ræða ráðstöfun sem feli í sér óþarfa kostnað fyrir gerðarbeiðanda og óþarfa vinnu og kostnað fyrir hið opinbera. Flutningsmenn telja óbreytt fyrirkomulag geta ýtt undir það að innheimtuaðilar krafna krefjist gerða sem óþarft er að framkvæma samkvæmt lögum í ljósi þess að þeir fá greitt fyrir hvert árangurslaust fjárnám en þau miklu skuldaskil sem fara nú fram eftir efnahagshrunið 2008 mega ekki vera féþúfa innheimtuaðila. Með breytingunni kemur fram skýr vilji löggjafans til þess að kröfuhafar nýti árangurslaus fjárnám annarra kröfuhafa innan þriggja mánaða frá gerð þeirra til þess að krefjast gjaldþrotaskipta eða eftir atvikum afskrifa kröfur sínar, hvort sem um er að ræða innheimtuaðila hins opinbera eða einkaaðila. Óbreytt fyrirkomulag telja flutningsmenn ómanneskjulegt gagnvart skuldara og fela í sér óþarfa kostnað fyrir gerðarbeiðendur og ríkissjóð.