Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 115. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 262 — 115. mál.
1. Hver er hugmyndafræðin að baki líknardeildum?
Upphaf formlegrar líknarmeðferðar má rekja til 7. áratugar síðustu aldar en þá var opnað í Bretlandi fyrsta nútímalíknarheimilið. Í fyrstu beindist líknarmeðferð eingöngu að umönnun deyjandi krabbameinssjúklinga en hefur síðan þróast í þjónustu og meðferð sem byrjar mun fyrr í sjúkdómsferlinu og nær einnig til fleiri sjúklingahópa en krabbameinssjúklinga.
Árið 2002 skilgreindi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) líknarmeðferð sem heildræna virka meðferð sem miðaði að því að bæta umönnun og lífsgæði sjúklinga og fjölskyldna þeirra andspænis lífshættulegum sjúkdómi. Líknarmeðferðin getur átt við snemma í veikindaferli sjúklinga og eykst vægi hennar eftir því sem sjúkdómurinn ágerist og nær dregur lífslokum. Þessi skilgreining endurspeglar þróun hugmyndafræðinnar en þar er lögð áhersla á að líknarmeðferð sé veitt í gegnum allt sjúkdómsferlið og athyglinni beint fyrst og fremst að því að fyrirbyggja þjáningar í stað þess að meðhöndla þær eingöngu þegar þær birtast. Með því að greina snemma og meta á markvissan hátt verki og önnur vandamál má í mörgum tilfellum koma í veg fyrir og lina þjáningar og önnur vandamál.
Hornsteinn líknarmeðferðar beinist að því að meðhöndla einkenni sjúkdómsins þar sem til viðbótar við góða verkjameðferð er lögð mikil áhersla á meðferð annarra íþyngjandi einkenna. Tillit er tekið til sálfélagslegra og andlegra þarfa sjúklingsins og fjölskyldu hans ásamt gildismati, trúarþörfum og menningu. Sjúklingnum og fjölskyldu hans er veittur stuðningur í sjúkdómsferlinu og aðstandendum er síðan einnig veittur stuðningur eftir andlát sjúklingsins.
Á líknardeildir á Íslandi geta komið sjúklingar frá 18 ára aldri með ólæknandi sjúkdóma og skertar lífslíkur þar sem læknandi meðferð hefur verið hætt og líknandi meðferð tekið við. Öll meðferð sem veitt er beinist þá að því að fyrirbyggja eða lina einkenni. Þó að flestir sjúklinganna séu með krabbamein þá koma þangað einnig sjúklingar sem eru með aðra langt gengna sjúkdóma, svo sem hjartabilun á lokastigi eða taugasjúkdóma. Aldraðir sjúklingar sem þangað koma geta auk þess verið með marga aðra sjúkdóma, aldurstengdar breytingar og líkamlega og vitræna skerðingu.
2. Hvað eru margar líknardeildir á landinu, hvenær voru þær opnaðar og hversu mörg sjúkrarúm eru á hverri fyrir sig?
Tvær líknardeildir eru starfandi á Íslandi. Báðar eru á lyflækningasviði Landspítalans og er önnur á Landakoti en hin í Kópavogi.
Líknardeildin í Kópavogi var opnuð árið 1999 og er byggð upp af sjö daga legudeild, fimm daga legudeild, dagdeild og göngudeild. Heimahlynning Landspítalans er staðsett á neðri hæð líknardeildarinnar og sinnir einstaklingum á öllum aldri sem dvelja heima. Líknardeild aldraðra á Landakoti var opnuð árið 2001 og þar eru níu sjúkrarúm. Áður hafði starfsemin verið þróuð í þrjú ár í sjúkrarúmum á öldrunarlækningadeild á Landakoti.
Líknarráðgjafateymi Landspítalans sinnir síðan öllum deildum sjúkrahússins og er tengiliður við líknardeildir og sérhæfða þjónustu í heimahúsum.
3. Hversu margir einstaklingar lágu á hverri deild á árinu 2010 og hversu langur var biðtíminn eftir rúmi þar að meðaltali? Óskað er upplýsinga um það hvort sjúklingar komu beint að heiman á líknardeildina eða frá heilbrigðisstofnunum/dvalarheimilum og þá hvaða stofnunum.
Fjöldi einstaklinga á hverri deild á árinu.
Árið 2010 lögðust 148 einstaklingar inn á sjö daga legudeildina í Kópavogi en þar sem einhverjir þeirra hafa komið oftar en einu sinni var fjöldi innlagna/dvala aðeins meiri eða 174. Sextíu og tveir komu á dagdeildina en innlagnir voru 89 (sjá töflu að aftan).
Undanfarin tvö sumur hafa líknardeildirnar verið sameinaðar í þrjá mánuði yfir sumartímann og líknardeild þá einungis rekin í Kópavogi. Þessa níu mánuði sem líknardeild aldraðra var rekin á Landakoti árið 2010 komu þangað 74 einstaklingar en innlagnir voru 82.
Því má bæta við að fjöldi einstaklinga sem leitaði á Landspítalann árið 2010 var ríflega 103 þúsund og að meðaltali voru 555 sjúklingar inniliggjandi þar.
Lengd biðtíma að meðaltali.
Sjúklingar eru teknir inn af biðlista eftir því hver er í mestri þörf hverju sinni. Yfirleitt er biðin frá nokkrum dögum upp í tvær til þrjár vikur.
Hvaðan sjúklingar komu.
Á líknardeild Kópavogs komu 36% sjúklinga að heiman og nær allir þeirra úr sérhæfðri líknarheimaþjónustu. Frá öðrum deildum Landspítalans komu 62% sjúklinganna og þar af rúm 50% frá krabbameinslækningadeild 11-E. Tæp 2% sjúklinga komu frá öðrum stofnunum, svo sem Sjúkrahúsinu á Selfossi, Sjúkrahúsinu á Akureyri og Sjúkrahúsinu á Akranesi.
Á líknardeild aldraðra á Landakoti komu flestir frá öðrum deildum Landspítalans. Jafnmargir komu frá krabbameinsdeild og að heiman, þ.e. frá Heimahlynningu og líknarþjónustunni Karitas. Einstöku sinnum komu sjúklingar á líknardeildina frá hjúkrunarheimilum – annaðhvort af höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni.
4. Hversu margir bíða nú eftir rúmi á líknardeild?
Hinn 19. október sl. voru tveir á biðlista líknardeildar aldraðra á Landakoti og fjórir á biðlista líknardeildarinnar í Kópavogi. Oftast eru 2–4 einstaklingar á biðlista líknardeildarinnar á Landakoti hverju sinni en frá því að fimm daga deildin var opnuð í Kópavogi árið 2007 hefur biðlisti þar styst og nú eru að meðaltali 4–6 einstaklingar á biðlista þar hverju sinni.
5. Er fyrirhugað að fjölga eða fækka líknardeildum eða fækka eða fjölga rúmum á þeim og þá hvers vegna?
Í hagræðingarskyni er fyrirhugað er að sameina líknardeildirnar á einn stað, þ.e. í Kópavogi, snemma árs 2012 og fækka rúmum í heild um fjögur. Til að mæta þessari fækkun er ætlun sjúkrahússins að efla sérhæfða heimaþjónustu og líknarþjónustu á almennum deildum. Um síðustu mánaðamót (okt.–nóv.) varð Landspítalinn að loka fimm daga líknardeildinni tímabundið vegna læknaskorts.
Þó að upphaf formlegrar líknarmeðferðar megi rekja til 7. áratugarins, eins og nefnt var í upphafi þessa svars, þá ber þess einnig að geta að líknarmeðferð er veitt víðar en á líknardeildum og deyjandi fólk hefur fengið líknandi meðferð víða, svo sem á sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum. Á Landspítalanum hefur verið lögð áhersla á það að efla líknarmeðferð á legudeildum á síðustu árum, til að tryggja að dauðvona sjúklingar sem ekki liggja á líknardeildum fái samt líknarmeðferð á lokastigi lífsins. Einnig hefur starfsfólk margra hjúkrunarheimila sótt námskeið líknardeilda svo að heimilin séu enn betur í stakk búin en áður til að veita skjólstæðingum sínum líknarþjónustu án þess að senda þá á sjúkrahús.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 262 — 115. mál.
Svar
velferðarráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur um líknardeildir.

Fjöldi einstaklinga sem lá á hverri deild á árinu 2010.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.