Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 282. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 313  —  282. mál.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um leiðréttingu fasteignalána hjá Íbúðalánasjóði.



Frá Eygló Harðardóttur.



     1.      Hyggst ráðherra veita Íbúðalánasjóði lagaheimild til að veita aftur 110% leiðréttingu í tilfelli þeirra lántaka sem eru enn þá með skuldsetningu á fasteignum yfir 110% eftir leiðréttingu?
     2.      Hyggst ráðherra endurskoða önnur ákvæði laga um Íbúðalánasjóð til að tryggja sambærilega leiðréttingu á fasteignalánum og hjá Landsbankanum?