Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 321. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 378 — 321. mál.
frá mennta- og menningarmálaráðherra um stöðu barna og ungmenna
með tal- og málþroskaröskun.
Frá Unni Brá Konráðsdóttur, Jónínu Rós Guðmundsdóttur, Skúla Helgasyni,
Lilju Mósesdóttur, Eygló Harðardóttur, Margréti Tryggvadóttur,
Oddnýju G. Harðardóttur, Ragnheiði Ríkharðsdóttur, Þráni Bertelssyni,
Ólöfu Nordal og Þorgerði K. Gunnarsdóttur.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 53. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að mennta- og menningarmálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um stöðu barna og ungmenna með tal- og málþroskaröskun og úrræði sem þeim standa til boða í skólakerfinu, bæði á leik- og grunnskólastigi. Ráðherra leiti eftir upplýsingum úr velferðarráðuneyti þar sem við á. Meðal efnis skýrslunnar verði eftirfarandi:
a. Hversu mörg börn eða ungmenni hafa verið greind með tal- eða málþroskaröskun hér á landi á síðustu 15 árum.
b. Hvaða þjónusta og úrræði eru í boði fyrir börn og ungmenni með tal- og málþroskaröskun innan skólakerfisins, bæði á leik- og grunnskólastigi, og hvernig þessum málum er háttað í grannríkjum.
c. Hvenær greining fer fram og hvenær ákvörðun er tekin um að grípa til aðgerða vegna tal- og málþroskaröskunar, þ.e. hvort um snemmtæka íhlutun vegna tal- og málþroskaröskunar er að ræða.
d. Hvaða úrræði eru til fyrir ungmenni með tal- og málþroskaröskun þegar grunnskólastigi sleppir.
e. Hvernig ábyrgð, skipulagi og eftirliti með málaflokknum í heild er háttað.
f. Hvort og hvernig ríki og sveitarfélög vinna saman að því að tryggja börnum og ungmennum með tal- og málþroskaröskun nauðsynlega þjónustu.
g. Hvernig þjónusta við börn og ungmenni með tal- og málþroskaröskun er samræmd milli landshluta og byggðarlaga.
h. Í hverju þjónusta talmeinafræðinga við börn með tal- og málþroskaröskun á leik- og grunnskólastigi er fólgin og með hvaða hætti kostnaður skiptist milli ríkis, sveitarfélaga og forráðamanna og jafnframt hvernig fyrirkomulagi samninga við Sjúkratryggingar Íslands er háttað og hver er heildarkostnaður vegna þessa málaflokks.
Sennilega er ekkert mikilvægara í lífi manneskju en að geta átt samskipti við aðrar manneskjur. Grunnurinn að hæfninni til samskipta er lagður í frumbernsku. Þróun máls, tals og skilnings fléttast saman í samskiptahæfni.
Tal- og málþroskaröskun getur komið upp hjá börnum sem þjást af hljóðkerfisröskun, hafa mikil framburðarfrávik, stama, hafa fengið kuðungsígræðslu eða hafa skarð í vör, eru með hása rödd eða eru haldin alvarlegum þroskafrávikum. Einnig getur verið um að ræða sértæka málþroskaröskun (e. Specific Language Impairment) þar sem börn skilja ekki málið og geta ekki lært að tala eins og jafnaldrar. Tal- og málþroskaröskun getur leitt til námserfiðleika, hegðunarvandamála og andlegra erfiðleika. Á Íslandi er áætlað að um 200–500 börn í hverjum árgangi þurfi aðstoð vegna tal- og málþroskaröskunar.
Flutningsmenn telja mikilvægt að gerð verði úttekt á stöðu og þróun þjónustu við börn og ungmenni með tal- og málþroskaröskun. Það er afar mikilvægt að grípa snemma til ráðstafana þegar grunur vaknar um að þróun máls sé ekki eins og eðlilegt má teljast hjá barni og reyna með því að lágmarka áhrif röskunarinnar. Til þess að hægt sé að grípa rétt inn í málið þarf sérfræðiþekkingu til, svo og gott samstarf allra sem tengjast barninu.
Sérfræðingur á sviði málþroska, talmeinafræðingur, þarf að greina vandann og gera áætlun um þjálfun. Það er á fáum sviðum mikilvægara en á málsviði að vera meðvitaður um frávik svo hægt sé að grípa snemma inn í. Með því móti er unnt að reyna að koma í veg fyrir að samskipti við fjölskyldu, félaga og aðra skerðist. Fagna þarf því sérstaklega að nám í talmeinafræði á meistarastigi er nú hafið við Háskóla Íslands en verulega hefur vantað talmeinafræðinga til starfa hér á landi.
Með skýrslubeiðni þessari óska flutningsmenn eftir því að mennta- og menningarmálaráðuneytið upplýsi um þá þjónustu og þau úrræði sem eru í boði fyrir börn og ungmenni með tal- og þroskafrávik í skólakerfinu, hvernig hátti með greiningu á tal- og málþroskaröskun og hvernig ríki og sveitarfélög vinna saman að þjónustu í málaflokknum. Einnig er óskað eftir því að fjallað verði um snemmtæka íhlutun og þjónustu talmeinafræðinga ásamt úrræðum þegar grunnskólastigi sleppir.
Þroskuð málhljóð og hljóðavitund ásamt þáttum er varða minni og vinnslu eru grundvöllur lestrarnáms, lestrarfærni og lesskilnings. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi góðrar lestrarfærni og lesskilnings í samfélagi nútímans þar sem stöðugt þarf að vinna úr upplýsingum. Ekki verður hér heldur fjölyrt um áhrif skerts málþroska á ritun og nám í erlendum tungumálum.
Í Bretlandi hefur verið tekin saman greinargóð skýrsla um þjónustu við börn og ungmenni með tal- og málþroskaröskun. Sú skýrsla var unnin undir forustu þingmannsins Johns Bercow (The Bercow Review of Services for Children and Young People (0–19) with Speech, Language and Communications Needs). Skýrsluna er hægt að nálgast á vefsíðu þingmannsins (http://www.johnbercow.co.uk/the_bercow_report). Í niðurstöðum hennar eru settar fram 40 tillögur að úrbótum á breska kerfinu en kerfið er gagnrýnt harðlega í skýrslunni. Þar er meðal annars talað um að snemmtæk íhlutun og frumkvæði að meðferð um leið og komið er auga á vandann sé gríðarlega mikilvægt til þess að hámarka möguleika barna til að ná árangri og færni í tjáningu. Einnig er þar talað um að samfella í þjónustu og skipuleg þjálfun út frá fyrir fram ákveðinni áætlun sé nauðsynleg til þess að takast á við tal- og málþroskaröskun. Í skýrslunni kemur og fram að niðurstaða klínískra rannsókna styðji þá kenningu að fái börn ekki snemma aðstoð við tal- og málþroskaröskun geti það leitt til námserfiðleika, hegðunarvandamála og andlegra erfiðleika auk þess sem talið er að vandinn geti stuðlað að því að ungmenni leiðist út í glæpi.
Flutningsmenn telja mikilvægt, m.a. í ljósi niðurstaðna umræddrar skýrslu, að tal- og málþroskaröskun sé skoðuð heildstætt hér á landi. Nauðsynlegt sé að greina umfang vandans, greina hvernig unnið er úr málum og meta hvaða leiðir eru færar til úrbóta.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 378 — 321. mál.
Beiðni um skýrslu

Greinargerð.