Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 324. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 385  —  324. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um Héðinsfjarðargöng.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.


     1.      Hvenær voru Héðinsfjarðargöng greidd að fullu?
     2.      Voru allar greiðslur til verktaka uppfærðar til núgildandi verðlags eins og greiðsluáætlunin? Óskað er eftir sundurliðuðu greiðsluyfirliti eftir árum frá upphafi til lokagreiðslu.


Skriflegt svar óskast.