Þingskjal 441 — 365. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um kjararáð og lögum um Stjórnarráð
Íslands (skrifstofustjórar, launaviðmið).
(Lagt fyrir Alþingi á 140. löggjafarþingi 2011–2012.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um kjararáð, nr. 47/2006, með síðari breytingum.
1. gr.
Orðin „og skrifstofustjóra í Stjórnarráði Íslands“ í 1. málsl. 1. mgr. 1. gr. laganna falla brott.2. gr.
Við 2. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Kjararáð ræður sér skrifstofustjóra sem annast daglegan rekstur og skal hann í þeim efnum fara eftir þeirri stefnu og fyrirmælum sem kjararáð hefur gefið. Daglegur rekstur tekur ekki til ráðstafana sem eru óvenjulegar eða mikils háttar. Slíkar ráðstafanir getur skrifstofustjóri aðeins gert samkvæmt sérstakri heimild frá kjararáði.
3. gr.
Við 1. mgr. 8. gr. laganna bætist nýr málsliður er verður 3. málsl., svohljóðandi: Frá þessu getur kjararáð þó vikið í rökstuddum tilvikum ef slík viðmiðun mundi leiða til verulegs misræmis við markmið 1. málsl. og 2. mgr.II. KAFLI
Breyting á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011.
4. gr.
Orðin „um kjör skrifstofustjóra“ í 3. mgr. 22. gr. laganna falla brott.III. KAFLI
Gildistaka.
5. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2012.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Með frumvarpinu eru lagðar til nokkrar breytingar á lögum nr. 47/2006, um kjararáð, og lögum nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands. Í fyrsta lagi er lagt til að skrifstofustjórar í Stjórnarráðinu verði ekki lengur taldir upp í 1. mgr. 1. gr. laganna, í öðru lagi er lagt til að kjararáð verði heimilað að ráða sér skrifstofustjóra sem annist daglega starfsemi ráðsins, í þriðja lagi er lagt til að kjararáð fái heimild til að víkja frá viðmiði við laun forsætisráðherra en þurfi að rökstyðja þau tilvik ef slík viðmiðun mundi leiða til verulegs misræmis við markmið 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. og 2. mgr. 8. gr. laganna og í fjórða lagi er lögð til breyting á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, til samræmis við breytingar á lögunum um kjararáð samkvæmt frumvarpinu.
Með úrskurði kjararáðs frá 7. júní 2007 úrskurðaði ráðið að ákvörðun um laun og starfskjör skrifstofustjóra í Stjórnarráðinu, annarra en skrifstofustjóra starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins, heyrðu ekki undir ráðið. Í þeirri ákvörðun segir: „Ekki er í lögum fjallað sérstaklega um störf skrifstofustjóra eða hvaða verkefnum þeir skuli sinna að öðru leyti en því að í 11. gr. laga nr. 73/1969 um Stjórnarráð Íslands segir að skrifstofu ráðuneytis stýri skrifstofustjóri og starfsdeild deildarstjóri undir umsjón ráðuneytisstjóra. Þá segir að ráðherra setji skrifstofustjórum og deildarstjórum erindisbréf þar sem meðal annars sé kveðið á um starfssvið þeirra og starfsskyldur. Engar samræmdar reglur eru til um starfsheitið og geta störf skrifstofustjóra verið mismunandi milli ráðuneyta og eru jafnvel allmörg dæmi um skrifstofustjóra, sem ekki hafa nein eiginleg mannaforráð né stjórnunarskyldur að öðru leyti. Skrifstofustjórar starfa undir umsjón ráðuneytisstjóra og þrátt fyrir að sumir skrifstofustjórar eigi þátt í ákvörðun um starfsmannamál felur starfið almennt ekki í sér fyrirsvar fyrir ríkið í starfsmannamálum. Er það mat kjararáðs að störf skrifstofustjóra í Stjórnarráði séu ekki þess eðlis að heyra skuli undir kjararáð að ákveða laun og starfskjör þeirra.“ Með lögum nr. 168/2007, um breytingu á lögum nr. 47/2006, um kjararáð, voru skrifstofustjórar í Stjórnarráði Íslands færðir aftur undir ákvörðunarvald kjararáðs. Forsætisráðherra skipaði nefnd í desember 2009 sem fékk það verkefni að gera tillögur að endurskoðun laga nr. 73/1969, um Stjórnarráð Íslands, og eftir atvikum öðrum lagareglum sem lúta að starfsemi Stjórnarráðsins og stjórnsýslu hér á landi. Nefndin skilaði skýrslu þann 13. desember sl. sem ber heitið „Samhent stjórnsýsla“. Í skýrslunni og tillögum nefndarinnar er m.a. vikið að kjörum starfsmanna Stjórnarráðsins. Í 8. kafla skýrslunnar kemur fram að nefndin mælir með því að hugað verið að grundvallaratriðum í mannauðsmálum, svo sem starfsþróun starfsmanna, starfsumhverfi þeirra, starfskjörum o.fl. Í sambandi við starfskjör starfsmanna Stjórnarráðsins leggur nefndin til að sérstaklega verði skoðað hvort færa eigi skrifstofustjóra undan ákvörðunarvaldi kjararáðs og þeir semji við ráðuneytisstjóra um kaup og kjör, sbr. umfjöllun nefndarinnar í kafla 8.7 og tillögur í kafla 8.8. Með frumvarpi þessu er lagt til að skrifstofustjórar í Stjórnarráðinu verði felldir út úr upptalningu í 1. mgr. 1. gr. laganna. Kjararáð getur því, ef frumvarpið verður samþykkt, tekið á ný til skoðunar hvort ákvörðun um laun og starfskjör skrifstofustjóra í Stjórnarráðinu skuli heyra undir kjararáð, sbr. 4. gr. laga nr. 47/2006. Til samræmis þykir og rétt að kjararáð taki til skoðunar hvort sömu sjónarmið eigi ekki einnig að gilda um ákvörðun um laun og starfskjör sendiherra, sbr. lög nr. 39/1971, um utanríkisþjónustu Íslands. Sú leið sem lögð er til í 1. gr. frumvarpsins var kynnt fyrir skrifstofustjórum í Stjórnarráðinu á tveimur fundum auk rafrænnar skoðanakönnunar. Jafnframt ræddi hver og einn ráðuneytisstjóri breytinguna við sína skrifstofustjóra. Ráðuneytisstjórar voru þessari breytingu fylgjandi og einnig tryggur meiri hluti skrifstofustjóra.
Í 2. gr. frumvarpsins er lagt til að kjararáði verði heimilt að ráða sér skrifstofustjóra sem annist daglegan rekstur og beri ábyrgð á honum gagnvart kjararáði. Fram til skipunar núverandi kjararáðs hefur formaður ráðsins annast daglegan rekstur í fullu starfi. Með frumvarpinu er lagt til að kjararáð geti ráðið skrifstofustjóra sem geti m.a. annast þann daglega rekstur sem formaður kjararáðs hefur fram til þessa sinnt.
Með 2. gr. laga nr. 87/2009, um breytingu á lögum nr. 47/2006, var 8. gr. laga nr. 47/2006 breytt á þann veg að kjararáð skyldi gæta þess að föst laun fyrir dagvinnu, annarra en forseta Íslands, yrðu ekki hærri en föst laun forsætisráðherra. Meginmarkmið frumvarps þess er varð að lögum nr. 87/2009 var að laga rekstur ríkisins að gjörbreyttum efnahagslegum raunveruleika til þess að mæta stórfelldum tekjusamdrætti vegna efnahagskreppunnar. Með lögum nr. 148/2008 var kjararáði og falið að lækka laun þeirra sem heyrðu undir kjararáð auk þess sem ráðinu var óheimilt að hækka laun til ársloka 2009. Með lögum nr. 127/2009 var bann þetta framlengt til 30. nóvember 2010. Sá árangur sem náðst hefur frá því að lög nr. 87/2009 tóku gildi gerir það að verkum að bann þetta var ekki framlengt. Með 3. gr. frumvarpsins er því lagt til að launaviðmið kjararáðs verði að fullu fært til fyrra horfs og kjararáði eftirlátið að ákveða laun og starfskjör í samræmi við þau viðmið sem giltu fyrir gildistöku laga nr. 148/ 2008. Með 3. gr. frumvarpsins er því lagt til að kjararáð fái heimild til að víkja frá viðmiði við föst laun forsætisráðherra ef slík viðmiðun mundi leiða til verulegs misræmis við markmið 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. og 2. mgr. 8. gr. laganna en kjararáð þarf að rökstyðja slík tilvik sérstaklega.
Með 4. gr. frumvarpsins eru síðan lagðar til breytingar á lögum nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands, til samræmis við þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpi þessu á lögum um kjararáð.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í greininni er lagt til að skrifstofustjórar í Stjórnarráðinu verði felldir út úr upptalningu 1. mgr. 1. gr. laganna. Með greininni er lagt til að kjararáð geti tekið á ný til skoðunar hvort ákvörðun um laun og starfskjör skrifstofustjóra í Stjórnarráðinu skuli heyra undir kjararáð, sbr. 4. gr. laga nr. 47/2006.
Um 2. gr.
Í greininni er lagt til að kjararáði verði heimilt að ráða sér skrifstofustjóra sem annist daglegan rekstur og beri ábyrgð á honum gagnvart kjararáði. Fram til skipunar núverandi kjararáðs hefur formaður ráðsins annast daglegan rekstur þess í fullu starfi. Með greininni er lagt til að þessu verði breytt og kjararáði verði heimilt að ráða sér skrifstofustjóra sem annist daglegan rekstur í stað formanns ráðsins. Skrifstofustjóri skal í þeim efnum fara eftir þeirri stefnu og fyrirmælum sem kjararáð gefur honum. Til ráðstafana sem eru óvenjulegar eða mikils háttar verður skrifstofustjóri að fá sérstaka heimild frá kjararáði.
Um 3. gr.
Með greininni er lagt í vald kjararáðs að meta hvort ástæða sé til þess að ákvarða dagvinnulaun umfram ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 8. gr. laganna ef slík viðmiðun mundi leiða til verulegs misræmis við markmið 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. og 2. mgr. 8. gr. laganna. Komist kjararáð að þeirri niðurstöðu þarf það að rökstyðja þá ákvörðun sína sérstaklega.
Um 4. gr.
Í greininni eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands til að kjararáð taki sjálfstæða ákvörðun um laun og starfskjör aðstoðarmanna.
Um 5. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kjararáð og lögum um Stjórnarráð Íslands (skrifstofustjórar, launaviðmið).
Verði frumvarpið óbreytt að lögum er ekki gert ráð fyrir að það hafi aukin útgjöld í för með sér fyrir ríkissjóð. Starfsmaður í hálfu starfi hefur verið starfandi hjá kjararáði við hlið formanns ráðsins sem hefur annast daglegan rekstur í fullu starfi þrátt fyrir að heimild til þess hafi ekki verið bundin í lög. Er því gert ráð fyrir fækkun um hálft stöðugildi í rekstri ráðsins og að launakostnaður lækki þar með um 3–4 m.kr. á ári.