Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 189. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 481  —  189. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur
um svokallaða kaupleigusamninga um bifreiðar.


    Í tilefni af fyrirspurninni sendi fjármálaráðuneytið eftirfarandi beiðni til forseta Alþingis þann 9. nóvember 2011:
    „Í fyrirspurninni er vísað til ummæla (eða skrifa) ótilgreindra fjármögnunarfyrirtækja án nokkurrar tilvísunar. Einnig er vísað til dóma Hæstaréttar frá í fyrra án þess að málsnúmer þeirra séu tilgreind. Þessi óvissa um tilefni fyrirspurnarinnar veldur nokkrum vandkvæðum við vinnslu svarsins. Af þeim sökum fer ráðuneytið þess vinsamlega á leit við Alþingi að nánari upplýsingar varðandi framangreint verði sendar ráðuneytinu. Vísar ráðuneytið af þessu tilefni til ákvæðis 2. málsl. 1. mgr. 56. gr. þingskapalaga, nr. 55/1991, en þar kemur fram að fyrirspurn skuli vera „skýr, um afmörkuð atriði og mál sem ráðherra ber ábyrgð á og sé við það miðað að hægt sé að svara henni í stuttu máli.““
    Með tölvubréfi frá Alþingi, dags. 15. nóvember 2011, bárust ráðuneytinu frekari upplýsingar um efni fyrirspurnarinnar. Fram kom að þeir dómar sem fyrirspurnin varðaði væru dómar Hæstaréttar nr. 92/2010 (Óskar Sindri Atlason gegn SP-fjármögnun hf.), nr. 153/2010 (Lýsing hf. gegn Jóhanni Rafni Heiðarssyni og Trausta Snæ Friðrikssyni) og nr. 282/2011 (Íslandsbanki hf. gegn þrotabúi AB 258 ehf.). Jafnframt fylgdu með átta skjöl með fréttum fjölmiðla, á tímabilinu maí til nóvember 2011, um vörslusviptingar fjármögnunarfyrirtækja á ökutækjum vegna vanskila. Meðfylgjandi var einnig frétt um niðurstöðu dóms Hæstaréttar nr. 282/2011.

     1.      Samræmist það skattalögum sem fjármögnunarfyrirtæki halda fram – þrátt fyrir dóma Hæstaréttar frá í fyrra um að svokallaðir kaupleigusamningar væru í raun lánasamningar – að þau séu réttmætir eigendur þeirra bifreiða sem þau lánuðu fyrir, þótt bifreiðarnar séu í ársreikningum fyrirtækjanna hvergi skráðar sem eign heldur skráðar sem eign í skattframtölum lánþega?
A. Kaupleigusamningar.
    Í upphafi svarsins ber að geta þess að í lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og virðisaukaskattslögum, nr. 50/1988, er ekki fjallað sérstaklega um réttmæti opinberrar skráningar lausafjár. Hér verður því eingöngu fjallað um skattaréttarleg áhrif þeirra dóma sem um ræðir, þ.e. dóma Hæstaréttar frá 16. júní 2010 í málum nr. 92/2010 og 153/2010 sem og dóms réttarins frá 20. október 2011 í máli nr. 282/2011.
    Í ákvarðandi bréfi ríkisskattstjóra frá 14. október 1999, nr. T-ákv. 14/1999, kemur fram að skattaleg meðferð kaupleigusamninga hjá leigutaka sé önnur en skattaleg meðferð fjármögnunarleigusamninga. Í bréfinu er að finna eftirfarandi útskýringu á skattalegri meðferð við kaup og kaupleigu á varanlegum rekstrarfjármunum:
    „ … Skattaleg meðferð kaupleigusamninga hjá leigutaka er önnur en skattaleg meðferð fjármögnunarleigusamninga, þar sem litið er á kaupleigusamninga eins og kaup á varanlegum rekstrarfjármunum sem ber að eignfæra og afskrifa skv. almennum reglum jafnframt því sem skuldbindingin að baki kaupleigusamningi er talin til skuldar hjá leigutaka. Kaupleigugreiðslur skiptast því upp í afborgun af skuldbindingunni og vexti af henni. Kaupleigugreiðslur teljast því ekki rekstrarkostnaður í skilningi 31. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, nema að því er varðar vaxtalið kaupleigugreiðslnanna, sbr. skilgreiningu þessara hugtaka í lögum nr. 19/1989, um eignarleigustarfsemi, sbr. nú lög nr. 123/1993. Þar af leiðandi er kaupleigugreiðsla ekki færð á eyðublaðið RSK 4.09 …“
    Í úrskurðum yfirskattanefndar hefur verið fjallað um gildandi rétt og skattframkvæmd á þessu sviði. Í úrskurði yfirskattanefndar nr. 24/2008 kom m.a. fram að einkahlutafélagi sem var leigusali og kærandi í málinu sem leigði öðru einkahlutafélagi tilteknar vélar hafi borið að telja fyrirframgreidda leigu leigutaka við upphaf leigutíma til skattskyldrar veltu þegar greiðslan varð gjaldkræf. Fram kom að líta bæri svo á að leigutaka kaupleigumuna bæri að eignfæra slíka muni í skattskilum sínum og fyrna. Skattaleg meðferð kaupleigusamnings væri því eins og um lán væri að ræða og bæri að skipta leigugreiðslum upp í afborgun höfuðstóls og vexti. Færist vaxtahluti leigugreiðslna til gjalda hjá leigutaka og afborgunarhlutinn til lækkunar á skuldbindingu gagnvart eignarleigufyrirtækinu. Að því er varðar virðisaukaskattsskil kom fram að talið hefði verið að fara bæri með viðskipti af þessu tagi sem sölu á vöru skv. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, sbr. m.a. umfjöllun í Handbók um virðisaukaskatt, útg. af ríkisskattstjóra árið 1998, bls. 76.
    Með hliðsjón af framangreindu er ljóst að viðurkennt er í skattframkvæmd að eins skuli fara með eignfærslu varanlegra rekstrarfjármuna í skattskilum þegar um kaup og kaupleigu er að ræða. Í dómum Hæstaréttar í málum nr. 92/2010 og 153/2010 snerist ágreiningur aðila m.a. um það hvort þeir samningar sem deilt var um væru lánssamningar eða leigusamningar. Eftir heildstætt mat Hæstaréttar á þeim samningum sem málið varðaði var það niðurstaða réttarins að líta bæri svo á að um lán væri að ræða sem eignarleigufyrirtækin hefðu kosið að klæða í búning leigusamnings.
    Eins og greint hefur verið frá hefur skattalegri meðferð kaupleigusamninga og lána verið hagað með sama hætti. Að þessu virtu má ráða að dómar Hæstaréttar nr. 92/2010 og 153/ 2010 gefa ekki tilefni til breyttrar skattframkvæmdar hvað varðar þá kaupleigusamninga sem teljast til lánssamninga eftir dóma Hæstaréttar. Með vísan til þessa er það mat ráðuneytisins að skattaleg meðferð kaupleigusamninga sé í samræmi við gildandi skattalög.

B. Fjármögnunarleigusamningar.
    Líkt og getið er um í A-lið hér að framan er skattaleg meðferð kaupleigusamninga önnur en skattaleg meðferð fjármögnunarleigusamninga. Samkvæmt þeirri skattframkvæmd sem gildir um meðferð fjármögnunarleigusamninga skulu leigugreiðslur leigutaka gjaldfærðar sem frádráttarbær rekstrarkostnaður í skattskilum hans. Viðkomandi leigumunur er ekki færður til eignar og samningurinn ekki til skuldar. Aftur á móti ef leigumunur er keyptur í lok leigutímans er hann eignfærður á því verði, þ.e. lokaverði.
    Í dómi Hæstaréttar nr. 282/2011 var komist að þeirri niðurstöðu, eftir heildstætt mat á öllum atriðum málsins, að tiltekinn samningur sem deilt var um í málinu og nefndur var fjármögnunarleigusamningur skyldi teljast vera lánssamningur í skilningi VI. kafla laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu.
    Af þessu leiðir að haga ber skattalegri meðferð þeirra fjármögnunarleigusamninga sem teljast í raun vera lánssamningar eftir dóm Hæstaréttar með sama hætti og greint er frá hér að framan í umfjöllun um kaupleigusamninga.


     2.      Er fjármögnunarfyrirtækjunum heimilt að flokka viðkomandi bifreiðar sem eign þegar kemur að vörslusviptingu og uppgjöri skulda en ekki þegar kemur að greiðslu skatta?
    Vörslusvipting og uppgjör skulda almennt eru málaflokkar sem ekki eru á forræði fjármálaráðuneytis. Með vísan til þess sem fram kemur í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar hefur skattframkvæmd verið á þann veg að gerður er greinarmunur á kaupleigusamningum annars vegar og fjármögnunarleigusamningum hins vegar. Að öðru leyti vísast til svars við 1. tölul.

     3.      Ef slík meðferð eigna samræmist ekki gildandi lögum, hvaða viðurlög liggja við slíkum brotum og hvaða úrræði hefur stjórnsýslan til að bregðast við þeim?
    Með hliðsjón af framangreindu verður að vísa til þess að breytingar á skráðu eignarhaldi á þann veg að lántaki/leigutaki yrði opinberlega skráður eigandi ökutækis kallar ekki á breytt framtalsskil vegna kaupleigusamninga. Varðandi þá fjármögnunarleigusamninga sem dómur Hæstaréttar nr. 282/2011 fjallar um liggur fyrir að samkvæmt gildandi lögum þarf að ráðast í breytingar á skattskilum þeirra aðila sem í hlut eiga.