Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 391. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 529  —  391. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991,
með síðari breytingum (kostnaður vegna gjaldþrotaskipta).


Flm.: Eygló Harðardóttir, Birkir Jón Jónsson, Gunnar Bragi Sveinsson,
Lilja Mósesdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Ásmundur Einar Daðason,
Þráinn Bertelsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson,
Ólína Þorvarðardóttir, Atli Gíslason.


1. gr.

    Við 2. mgr. 67. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Hafi skuldari sem er einstaklingur krafist gjaldþrotaskipta á búi sínu og framkomin gögn sýna að lánardrottinn hefur farið fram á árangurslaust fjárnám gagnvart skuldara og ekki er ljóst hvort eignir skuldarans duga fyrir greiðslu skiptakostnaðar skal ríkissjóður ábyrgjast þá tryggingu sem héraðsdómari fer fram á fyrir greiðslu skiptakostnaðar, að hámarki 250.000 kr.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Með lögum nr. 142/2010 var samþykkt að breyta lögum um gjaldþrotaskipti til að stytta fyrningarfrest á þeim kröfum eða þeim hluta þeirra sem ekki fást greiddar við gjaldþrotaskipti. Með því móti var þeim einstaklingum sem teknir hafa verið til gjaldþrotaskipta en bera áfram ábyrgð á skuldum sem ekki hafa fengist greiddar við gjaldþrotaskiptin auðveldað að koma fjármálum sínum á réttan kjöl. Lögin segja til um að fyrningartími allra krafna sem lýst er í þrotabú er sá sami án tillits til þess um hvers konar kröfur er að ræða. Sá tími er tvö ár. Einnig að sami frestur gildir um kröfur sem ekki hefur verið lýst við gjaldþrotaskiptin nema þær fyrnist á skemmri tíma eftir almennum reglum.
    Við vinnslu laganna komu fram þau sjónarmið að efnaminnstu einstaklingarnir gætu ekki farið fram á gjaldþrotaskipti sjálfir vegna hárrar greiðslu tryggingar fyrir skiptakostnaði. Því væri hætta á að þessir einstaklingar mundu vera í lausu lofti í langan tíma, ófærir um að taka virkan þátt í þjóðfélaginu.
    Héraðsdómara er skylt að fara fram á tryggingu fyrir þessum kostnaði áður en dómari getur samþykkt beiðni um gjaldþrotaskipti skv. 67. gr. laga um gjaldþrotaskipti og er skiptakostnaður í dag um 250.000 kr. Tölur frá Creditinfo frá 2008 sýna að flestir lánardrottnar hætta innheimtu krafna við árangurslaust fjárnám. Þá urðu 5.200 einstaklingar greiðsluþrota vegna árangurslauss fjárnáms en aðeins 198 einstaklingar voru teknir til gjaldþrotaskipta. Leiða má að því líkur að ástæða þess sé að árangurslaust fjárnám hefur að mati lánardrottna samsvarandi áhrif á fjármálalíf einstaklings og gjaldþrot en sparar um leið kröfuhafa að leggja út 250.000 kr. fyrir skiptakostnaðinum.
    Í frumvarpinu er því lagt til að ef farið hefur fram árangurslaust fjárnám hjá einstaklingi sem óskað hefur sjálfur eftir gjaldþrotaskiptum og héraðsdómari telur ekki ljóst hvort eignir skuldarans muni duga fyrir skiptakostnaði skuli ríkissjóður ábyrgjast tryggingu og þar með greiðslu skiptakostnaðar. Til að koma til móts við kostnað ríkisins væri hægt að hækka gjald vegna fjárnámsbeiðna. Þá má gera ráð fyrir að fjármunir sparist við þetta hjá umboðsmanni skuldara. Kostnaður tilsjónarmanns við greiðsluaðlögun hefur verið svipaður og skiptakostnaður.