Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 380. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 550 — 380. mál.
2. umræða.
1. 4. gr. orðist svo:
1. mgr. 62. gr. laganna orðast svo:
Heimilt er að veita styrki úr Atvinnuleysistryggingasjóði vegna þátttöku þeirra sem teljast tryggðir samkvæmt lögum þessum eða töldust tryggðir samkvæmt lögum þessum þegar þátttaka í vinnumarkaðstengdum úrræðum hófst í starfs- eða námstengdum vinnumarkaðsúrræðum. Enn fremur er heimilt að veita sömu aðilum sérstaka styrki vegna kostnaðar sem þeir verða fyrir í tengslum við að ráða sig til starfa fjarri heimili, sem og í tengslum við starfs- eða námstengd vinnumarkaðsúrræði.
2. 5. gr. orðist svo:
Í stað orðanna „31. desember 2011“ í 3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða X í lögunum kemur: 31. desember 2012.
3. Við bætist nýr kafli er verði IV. kafli, Breyting á lögum nr. 59/1992, um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum, með einni nýrri grein, 7. gr., svohljóðandi:
Í stað orðanna „á árinu 2011“ í ákvæði til bráðabirgða V í lögunum kemur: á árinu 2012.
4. Fyrirsögn frumvarpsins verði: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, lögum um atvinnuleysistryggingar, lögum um málefni aldraðra og lögum um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 550 — 380. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um málefni aldraðra, með síðari breytingum.
Frá meiri hluta velferðarnefndar (ÁI, JRG, LGeir, KLM, VBj).