Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 619, 140. löggjafarþing 347. mál: eftirlit með skipum (hækkun gjaldskrár).
Lög nr. 169 23. desember 2011.
Þingskjal 619, 140. löggjafarþing 347. mál: eftirlit með skipum (hækkun gjaldskrár).
Lög nr. 169 23. desember 2011.
Lög um breytingu á lögum nr. 47/2003, um eftirlit með skipum (hækkun skipaeftirlitsgjalda).
1. gr.
1. málsl. 1. mgr. 28. gr. laganna orðast svo: Eigandi skips skal greiða árlega í ríkissjóð sérstakt gjald, skipagjald, af hverju skipi sem skráð er á aðalskipaskrá eins og hér segir:| Skráningarlengd skips | Árlegt gjald (í kr.) |
| < 8 metrar | 10.940 |
| 8–15 metrar | 19.600 |
| 15–24 metrar | 43.750 |
| 24–45 metrar | 86.800 |
| 45–60 metrar | 143.300 |
| ≥ 60 metrar | 189.700 |
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2012.Samþykkt á Alþingi 17. desember 2011.