Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 621, 140. löggjafarþing 378. mál: opinberir háskólar.
Lög nr. 171 23. desember 2011.
Þingskjal 621, 140. löggjafarþing 378. mál: opinberir háskólar.
Lög nr. 171 23. desember 2011.
Lög um breytingu á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008, með síðari breytingum (hækkun skrásetningargjalda).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 24. gr. laganna:- Í stað fjárhæðarinnar „45.000 kr.“ í a-lið kemur: 60.000 kr.
- Við málsgreinina bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Háskóla er heimilt að skipta innheimtu skrásetningargjalds skv. a-lið hlutfallslega yfir skólaárið.
2. gr.
Lög þessi taka gildi 1. janúar 2012.Samþykkt á Alþingi 17. desember 2011.