Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 336. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 643  —  336. mál.




Svar



fjármálaráðherra (SJS) við fyrirspurn Róberts Marshall um rafræn skattkort.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Er ekki ráð að taka upp rafræn skattkort?

    Ákvæðin um skattkort og notkun þeirra er að stofni til að finna í 11.–13. gr. laga nr. 45/ 1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og eru þau að vissu leyti barn síns tíma. Hlutverk skattkortsins er að tryggja réttan skattafdrátt í staðgreiðslu. Notkun þeirra er tiltölulega einföld starfi launamaður samfellt yfir lengri tíma hjá einum launagreiðanda, en séu launagreiðendur fleiri en einn, launþegi vinni hluta úr ári eða skipti reglulega um vinnuveitendur geta mál orðið flókin og skapað nokkurt umstang, jafnt hjá launamönnum, launagreiðendum og skattyfirvöldum.
    Hugmynd um rafræn skattkort eða einfaldara kerfi er ekki ný af nálinni. Með lögum nr. 102/1996 voru ákvæði um skattkort rýmkuð töluvert og í framhaldi af því var hætt útgáfu sérstakra skattkorta fyrir námsmenn og korta með uppsöfnuðum persónuafslætti. Hvort tveggja var sett í hendur á launagreiðendum hlutaðeigandi launamanna. Ákveðin einföldun var einnig gerð á ákvæðunum á árinu 2007 þegar launamönnum var gert kleift að sækja um skattkort rafrænt og fá þau send í pósti til sín.
    Varðandi kosti til einföldunar hafa komið til umræðu leiðir eins og að almennum launagreiðendum verði veittur einhvers konar aðgangur að staðgreiðsluupplýsingum launamanna, tekið verði upp endurgreiðslufyrirkomulag á nýttum persónuafslætti, skattkort send rafrænt milli tölva samkvæmt beiðni eða það verði alfarið á hendi launamanns að upplýsa launagreiðanda um stöðu persónuafsláttar. Allar þessar leiðir mundu hafa talsverðan kostnað í för með sér sem og áframhaldandi umstang. Jafnframt þarf að huga vel að persónuverndarsjónarmiðum.
    Frekari endurskoðun á nýtingu skattkorta kemur vel til álita, ekki síst í ljósi sívaxandi rafrænna samskipta. Hins vegar má ekki útiloka þann möguleika að unnt verði til framtíðar að leggja skattkortin af og fela jafnvel launagreiðandanum, launamanninum eða þeim sameiginlega ábyrgðina á réttum skattafdrætti. Sérstakir þjónustureikningar fyrir skattgreiðendur þar sem unnt væri að fylgjast með fjárhagsstöðu viðkomandi gagnvart hinu opinbera á hverjum tíma er líka kostur sem önnur lönd hafa verið að nýta.
    Fjármálaráðherra mun beita sér fyrir því að áfram verði unnið að því að leita leiða til að gera notkun skattkorta einfaldari og hagkvæmari, jafnt fyrir launagreiðandann og skattborgarann almennt svo og skattyfirvöld.