Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 463. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 708  —  463. mál.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um manntal og húsnæðistal.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.


     1.      Hvers vegna er Hagstofa Íslands að taka saman manntal og húsnæðistal miðað við árslok 2011?
     2.      Er taka manntalsins og húsnæðistalsins liður í umsókn Íslands að Evrópusambandinu?
     3.      Hvað kostar að fara í þessar aðgerðir og hver borgar fyrir þær?
     4.      Hverju eiga þær að skila?
     5.      Er hugsanlegt að verkefnið stangist á við stjórnarskrárbundinn friðhelgisrétt og lög um persónuvernd?


Skriflegt svar óskast.