Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 398. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 755  —  398. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um greiðslur í þróunarsjóð EFTA.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvað hefur íslenska ríkið reitt fram mikið fjármagn til þróunarsjóðs EFTA frá upphafi, sundurliðað eftir árum? Hvað hefur ríkið skuldbundið sig til að greiða í sjóðinn í framtíðinni?

    Árið 2011 nam framlagið 1.255 millj. kr. Utanríkisráðherra hefur þegar svarað fyrirspurn um sundurliðuð framlög frá upphafi fram til þess árs og leyfir sér að vísa um það til þingskjals 1689 á 139. löggjafarþingi.
    Í þessu efni er framtíðin óráðin fram yfir 2014 þar sem samningstímabilið spannar einungis árin 2009–2014. Hlutfall Íslands í heildarframlaginu er reiknað fyrir hvert ár. Það tekur samkvæmt samningnum breytingum í takt við verga landsframleiðslu. Miðað við þann góða gang sem nú er kominn í efnahagslíf landsmanna og væntingar um aukna landsframleiðslu má gera ráð fyrir að heildarframlag Íslands fyrir tímabilið sem um er spurt geti numið samtals allt að 33 milljónum evra. Á núverandi gengi svarar það til ríflega 5,2 milljarða kr. Með samningum er í gadda slegið að jafnvel þó landsframleiðsla rísi brattar en bestu menn vænta verður framlagið á tímabilinu 2009–2014 þó aldrei hærra en 33,975 milljónir evra eða um 5,4 milljarðar kr. Það er hið umsamda hámark sem Ísland greiðir miðað við núverandi aðstæður, og er í reynd endurgjald fyrir aðgang að innri markaði þeirra landa sem bæst hafa við Evrópusambandið eftir 1994.