Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 299. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 772 — 299. mál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margar undanþágur hafa verið veittar frá ákvæðum laga nr. 19/1966, um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, sem banna aðilum utan Evrópska efnahagssvæðisins að öðlast eignarrétt og afnotarétt yfir fasteignum?
2. Hverjum voru veittar undanþágur samkvæmt lögunum, hvenær og hvers vegna, og um hvaða fasteign, landsvæði eða réttindi var að ræða í hverju tilviki, sundurliðað eftir kjördæmum og sveitarfélögum?
Árið 2001 var gerð breyting á lögum nr. 19/1966, um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, sem gerði það að verkum að umsóknum um undanþágu fækkaði allverulega. Með lögum nr. 136/2001 var fellt út skilyrði 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. laganna um að einstaklingur skyldi hafa átt lögheimili í 5 ár til að geta öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteignum á Íslandi. Undanþágur sem veittar voru á árinu 2001 og fyrr voru langflestar vegna fasteignakaupa erlendra einstaklinga sem áttu lögheimili á Íslandi en fullnægðu ekki skilyrðinu um að hafa haft hér lögheimili samfellt í fimm ár. Í greinargerð með frumvarpi að breytingalögum nr. 136/2001 kemur m.a. eftirfarandi fram:
„Á undanförnum árum hefur mikill fjöldi útlendinga sótt um undanþágu frá skilyrðum 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. laganna. Fjöldi slíkra mála í dómsmálaráðuneytinu á undanförnum árum var sem hér segir: Árið 1997 bárust 103 beiðnir, árið 1998 183 beiðnir, árið 1999 232 beiðnir og árið 2000 bárust ráðuneytinu 287 slíkar umsóknir. Langstærstur hluti þessara beiðna kemur frá útlendingum búsettum hér á landi sem ekki fullnægja skilyrðinu um að hafa haft hér lögheimili samfellt í fimm ár. Mjög margir þessara útlendinga eru makar íslenskra ríkisborgara. Á undanförnum áratugum hefur beiðni útlendings með lögheimili hér á landi um undanþágu frá skilyrðum 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. laganna aldrei verið hafnað. Verði frumvarp þetta að lögum mun það létta umtalsverðu og vaxandi álagi af ráðuneytinu og bæta réttarstöðu þeirra útlendinga sem hér eiga lögheimili og vilja fjárfesta í fasteign.“ (Alþt. 2001–02, A-deild, bls. 988.)
Frá því að umrædd lagabreyting tók gildi er einstaklingi heimilt að öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteignum hér á landi ef hann er íslenskur ríkisborgari eða með lögheimili á Íslandi, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 19/1966. Erlendir ríkisborgarar sem ekki eiga lögheimili hér á landi verða því að sækja um leyfi ráðherra til að víkja frá skilyrðum 1. tölul. 1. mgr. 1. mgr., sbr. 2. mgr. 1. gr. laganna. Um félög gilda ákvæði 2.–4. tölul. 1. mgr. 1. gr. og þurfa félög sem ekki uppfylla skilyrði laganna jafnframt að fá leyfi ráðherra til að víkja frá þeim, sbr. 2. mgr. 1. gr. laganna.
Til þess að veita umbeðnar upplýsingar frá árinu 1966 fram til ársins 2002 þarf að fara yfir gífurlegan fjölda umsókna og annarra skjala. Af þeim sökum takmarkast svar ráðherra að sinni við upplýsingar um undanþágur frá ákvæði 1. mgr. 1. gr. laga nr. 19/1996 sem veittar voru á árunum 2002–2011.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 772 — 299. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn Lilju Mósesdóttur um undanþágur frá banni
við því að aðilar utan EES öðlist eignarrétt og afnotarétt yfir fasteignum.

1. Upplýsingar um veittar undanþágur.
| Ár | Umsækjandi | Land | Réttindi | Sveitarfélag | Kjördæmi | Ástæður umsóknar |
| 2002 | Einstaklingur | Spánn | Íbúðarhúsnæði | Reykjanesbær | Suðurkjördæmi | Vantar upplýsingar |
| 2002 | Einstaklingur | Kína | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Fjölskyldumeðlimir íslenskir ríkisborgarar |
| 2002 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Hafnarfjörður | Suðvesturkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2002 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Reykjanesbær | Suðurkjördæmi | Samastaður vegna tíðra ferðalaga |
| 2002 | Einstaklingur | Kanada | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2002 | Einstaklingur | Bretland | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2002 | Sendiráð | Kína | Atvinnuhúsn. | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Sendiráðsstarfsemi |
| 2002 | Félag | Sviss | Íbúðarhúsn. og atvinnuhúsn. | Vantar upplýsingar |
Vantar upplýsingar | Vantar upplýsingar |
| 2002 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Reykjanesbær | Suðurkjördæmi | Vantar upplýsingar |
| 2002 | Einstaklingur | Bandaríkin og Bretland | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Áætluð búseta á Íslandi |
| 2002 | Einstaklingur | Belgía | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2002 | Einstaklingur | Danmörk | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2002 | Félag | Sviss | Íbúðarhúsn. og atvinnuhúsn. | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Áætluð atvinnustarfsemi |
| 2003 | Einstaklingur | Bosnía og Hersegóvína | Íbúðarhúsnæði | Akureyrarbær | Norðausturkjd. | Fjölskyldumeðlimir íslenskir ríkisborgarar |
| 2003 | Einstaklingur | Bandaríkin | Atvinnuhúsn. | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Áætluð atvinnustarfsemi |
| 2003 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Akureyrarbær | Norðausturkjd. | Erfðir |
| 2003 | Félag | Sviss | Íbúðarhúsn. og atvinnuhúsn. | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Áætluð atvinnustarfsemi |
| 2003 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2003 | Einstaklingur | Bretland | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2003 | Einstaklingur | Holland | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2003 | Einstaklingur | Bretland | Íbúðarhúsnæði | Norðurþing | Norðausturkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2003 | Einstaklingur | Frakkland | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2003 | Einstaklingur | Bandaríkin | Lóð | Djúpavogshr. | Norðausturkjd. | Samastaður vegna tíðra ferðalaga |
| 2003 | Einstaklingur | Sviss | Jörð | Mýrdalshr. | Suðurkjördæmi | Vantar upplýsingar |
| 2004 | Einstaklingur | Rússland | Íbúðarhúsnæði | Seltjarnarnes | Suðvesturkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2004 | Félag | Slóvenía | Sumarhús og lóð |
Ölfus | Suðurkjördæmi | Erfðir |
| 2004 | Félag | Bandaríkin | Sumarhús og lóð |
Skagafjörður | Norðvesturkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2005 | Einstaklingur | Rússland | Íbúðarhúsnæði | Ölfus | Suðurkjördæmi | Áætluð búseta á Íslandi |
| 2006 | Einstaklingur | Danmörk | Sumarhús | Súðavíkurhr. | Norðvesturkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2006 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Samastaður vegna tíðra ferðalaga |
| 2007 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2007 | Einstaklingur | Ástralía | Íbúðarhúsnæði | Fjallabyggð | Norðausturkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2007 | Félag | Bandaríkin | Atvinnuhúsn. | Skagafjörður | Norðvesturkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2007 | Einstaklingur | Indónesía | Íbúðarhúsnæði | Akraneskaupst. | Norðvesturkjd. | Fjölskyldumeðlimir íslenskir ríkisborgarar |
| 2007 | Félag | Noregur | Íbúðarhúsnæði | Reykjanesbær | Suðurkjördæmi | Vantar upplýsingar |
| 2007 | Einstaklingur | Rússland | Lóð | Kjósarhreppur | Suðvesturkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2007 | Einstaklingur | Danmörk | Íbúðarhúsnæði | Súðavíkurhr. | Norðvesturkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2007 | Einstaklingur | Bandaríkin | Sumarhús | Sandgerðisbær | Suðurkjördæmi | Vantar upplýsingar |
| 2007 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Reykjanesbær | Suðurkjördæmi | Samastaður vegna tíðra ferðalaga |
| 2008 | Einstaklingur | Argentína | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Áætluð búseta á Íslandi |
| 2008 | Einstaklingur | Bandaríkin | Lóð | Ölfus | Suðurkjördæmi | Vantar upplýsingar |
| 2008 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Hafnarfjörður | Suðvesturkjd. | Samastaður vegna tíðra ferðalaga |
| 2008 | Félag | Mön | Vatnsréttindi | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Framsal á hlut í félagi |
| 2009 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Samastaður vegna tíðra ferðalaga |
| 2009 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2009 | Sendiráð | Kína | Atvinnuhúsn. | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Sendiráðsstarfsemi |
| 2010 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Fjölskyldumeðlimir íslenskir ríkisborgarar |
| 2010 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Samastaður vegna tíðra ferðalaga |
| 2010 | Félag | Caymaneyjar | Íbúðarhúsnæði | Garðabær | Suðvesturkjd. | Vantar upplýsingar |
| 2010 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Samastaður vegna tíðra ferðalaga |
| 2010 | Einstaklingur | Bandaríkin | Sumarhús | Kjósarhreppur | Suðvesturkjd. | Samastaður vegna tíðra ferðalaga |
| 2010 | Félag | Úganda | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Eigendur félags íslenskir ríkisborgarar |
| 2011 | Einstaklingur | Ísrael | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Samastaður vegna tíðra ferðalaga |
| 2011 | Einstaklingur | Kína | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Áætluð búseta á Íslandi |
| 2011 | Einstaklingur | Malasía | Íbúðarhúsnæði | Garðabær | Suðvesturkjd. | Áætluð búseta á Íslandi |
| 2011 | Félag | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Eigendur félags íslenskir ríkisborgarar |
| 2011 | Einstaklingur | Rússland | Íbúðarhúsnæði | Hafnarfjörður | Suðvesturkjd. | Fjölskyldumeðlimir íslenskir ríkisborgarar |
| 2011 | Einstaklingur | Japan | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Erfðir |
| 2011 | Einstaklingur | Bandaríkin | Íbúðarhúsnæði | Reykjavík | Reykjavíkurkjd. | Áætluð búseta á Íslandi |
2. Töluleg greining upplýsinga.
| Fjöldi | |
| Veittar undanþágur | 59 |
| Fjöldi undanþága 2002–2011 | |
| 2002 | 13 |
| 2003 | 11 |
| 2004 | 3 |
| 2005 | 1 |
| 2006 | 2 |
| 2007 | 9 |
| 2008 | 4 |
| 2009 | 3 |
| 2010 | 6 |
| 2011 | 7 |
| Umsækjandi | |
| Einstaklingur | 46 |
| Félag | 11 |
| Sendiráð | 2 |
| Land | |
| Argentína | 1 |
| Ástralía | 1 |
| Belgía | 1 |
| Bandaríkin | 23 |
| Bandaríkin og Bretland | 1 |
| Bosnía og Hersegóvína | 1 |
| Bretland | 3 |
| Caymaneyjar | 1 |
| Danmörk | 3 |
| Frakkland | 1 |
| Holland | 1 |
| Indónesía | 1 |
| Ísrael | 1 |
| Japan | 1 |
| Kanada | 1 |
| Kína | 4 |
| Malasía | 1 |
| Mön | 1 |
| Noregur | 1 |
| Rússland | 4 |
| Slóvenía | 1 |
| Spánn | 1 |
| Sviss | 4 |
| Úganda | 1 |
| Réttindi | |
| Atvinnuhúsnæði | 4 |
| Íbúðarhúsnæði | 42 |
| Íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði | 3 |
| Jörð | 1 |
| Lóð | 3 |
| Sumarhús | 3 |
| Sumarhús og lóð | 2 |
| Vatnsréttindi | 1 |
| Sveitarfélag (m.v. 2012) | |
| Vantar upplýsingar | 1 |
| Akraneskaupstaður | 1 |
| Akureyrarbær | 2 |
| Djúpavogshreppur | 1 |
| Fjallabyggð | 1 |
| Garðabær | 2 |
| Hafnarfjörður | 3 |
| Kjósarhreppur | 2 |
| Mýrdalshreppur | 1 |
| Norðurþing | 1 |
| Reykjanesbær | 5 |
| Reykjavík | 30 |
| Sandgerðisbær | 1 |
| Seltjarnarnes | 1 |
| Skagafjörður | 2 |
| Súðavíkurhreppur | 2 |
| Ölfus | 3 |
| Kjördæmi | |
| Vantar upplýsingar | 1 |
| Norðausturkjördæmi | 5 |
| Norðvesturkjördæmi | 5 |
| Reykjavíkurkjördæmi | 30 |
| Suðurkjördæmi | 10 |
| Suðvesturkjördæmi | 8 |
| Ástæður umsóknar | |
| Vantar upplýsingar | 27 |
| Áætluð atvinnustarfsemi | 3 |
| Áætluð búseta | 6 |
| Eigendur félags íslenskir ríkisborgarar | 2 |
| Erfðir | 3 |
| Fjölskyldumeðlimir íslenskir ríkisborgarar | 5 |
| Framsal á hlut í félagi | 1 |
| Samastaður vegna tíðra ferðalaga | 10 |
| Sendiráðsstarfsemi | 2 |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.