Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 461. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 780 — 461. mál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvað hefur ríkisstjórnin sett á stofn margar nefndir frá alþingiskosningunum 2009, sundurliðað eftir ráðuneytum?
2. Hvaða nefndir eru þetta og hvað sitja margir í hverri nefnd?
3. Hver er launakostnaðurinn, sundurliðaður eftir nefndum?
4. Hvað hafa nefndirnar marga starfsmenn?
Í 2. málsl. 1. mgr. 56. gr. laga um þingsköp Alþingis er kveðið á um það, m.a., að fyrirspurn til ráðherra skuli varða mál sem hann ber ábyrgð á.
Framangreind fyrirspurn sem beint er til forsætisráðherra lýtur að skipun nefnda í öllum ráðuneytum Stjórnarráðsins á tilgreindu tímabili. Ábyrgð á skipun nefnda innan Stjórnarráðs Íslands og á faglegu og rekstrarlegu utanumhaldi þeirra hvílir sjálfstætt hjá þeim ráðherra sem skipar nefndina og ráðuneyti hans. Í samræmi við það og ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 56. gr. þingskapa ber að beina fyrirspurnum er varða skipun nefnda í einstökum ráðuneytum til þess ráðherra sem fer með viðkomandi ráðuneyti. Sé óskað upplýsinga um skipun nefnda í öllum ráðuneytum ber samkvæmt framansögðu að beina sérstakri fyrirspurn þess efnis til hvers og eins ráðherra.
Tekið skal fram að berist forsætisráðherra fyrirspurn um skipun nefnda af hálfu forsætisráðuneytisins verður þeirri fyrirspurn að sjálfsögðu svarað efnislega enda sé hún að öðru leyti í samræmi við form- og efnisskilyrði þingskapa.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 780 — 461. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um nefndir
sem ríkisstjórnin hefur sett á stofn.