Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 513. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 787  —  513. mál.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um samsetningu vísitölu neysluverðs.

Frá Ólöfu Nordal.


     1.      Hefur komið til álita að taka það er snýr að húsnæðisverði út úr vísitölu neysluverðs? Hvaða rök standa gegn því að slík ákvörðun verði tekin?
     2.      Hefur komið til álita, í ljósi mikilla verðbreytinga á undirliggjandi þáttum vísitölu neysluverðs, að endurskoða oftar samsetningu vísitölunnar og skoða í því tilliti breytt neyslumynstur, til að mynda vægi eldsneytis, sbr. minni akstur á vegum landsins?
     3.      Hefur verið gerð rannsókn á því hvort tenging við neysluverðsvísitölu sé heppilegasti grunnur verðtryggingar eða hvort aðrar vísitölur gætu hentað betur?


Skriflegt svar óskast.