Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 519. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 794  —  519. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um flugvildarpunkta.



Frá Merði Árnasyni.



     1.      Hver er ætlaður heildarfjöldi flugvildarpunkta árið 2011 fyrir utanlandsferðir á vegum ríkisins?
     2.      Eru þessir vildarpunktar skattskyldir?
     3.      Telur ráðherra koma til greina að semja þannig við flugfélög um þessar ferðir að vildarpunktar farþega falli niður en ríkið njóti á móti betri afsláttarkjara?