Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 63. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 800  —  63. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu



um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 44/1999, um náttúruvernd,
með síðari breytingum.

Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gústaf Adolf Skúlason frá Samorku og Guðmund H. Guðmundsson frá Landvernd. Umsagnir bárust frá Félagi leiðsögumanna, Landmælingum Íslands, Landsvirkjun, Landvernd, Náttúrufræðistofnun Íslands, ríkislögreglustjóra, Samorku, Samtökum ferðaþjónustunnar, Skipulagsstofnun, Skógrækt ríkisins, Umhverfisstofnun og Vegagerðinni.
    Tilgangur frumvarpsins er að herða á þeim ákvæðum sem heimila refsingar vegna brota á lögum um náttúruvernd.
    Fram kemur í 1. gr. frumvarpsins að ef stórfelld spjöll verða á náttúru landsins skuli sá sem veldur tjóni sæta sektum að lágmarki 250.000 kr. eða fangelsi allt að fjórum árum. Sambærilegt ákvæði er að finna í 179. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, en þar segir að hver sá sem gerist sekur um meiri háttar brot gegn lagaákvæðum um verndun umhverfis, með verknaði sem tilgreindur er í þremur töluliðum, skuli sæta fangelsi allt að fjórum árum. Veruleg spjöll á landslagi og náttúruminjum, þ.m.t. á friðlýstum svæðum, varða refsiábyrgð skv. 3. tölul. Fram kom hjá nokkrum umsagnaraðilum að mikilvægt væri að skýra hvað felst í hugtakinu stórfelld spjöll. Meiri hlutinn tekur undir þetta og áréttar að mikilvægt sé að grundvöllur refsiábyrgðar sé skýr. Fram kemur í Hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands að mikilvægt sé að brot sem varða refsingu séu skilgreind af kostgæfni og að refsing sé stigskipt eftir alvarleika brota. Brot sem talin eru alvarleg eru brot sem fela í sér náttúruspjöll á friðlýstum svæðum, eyðing tegunda og spjöll sem hafa í för með sér verulega fækkun tegundar sem og meiri háttar jarðrask og rask á jarðminjum. Það er þó jafnframt mat meiri hlutans að alvarleg brot eigi að ná til fleiri svæða en friðlýstra, þ.e. einnig svæða sem njóta eiga sérstakrar verndar skv. 37. gr. núverandi náttúruverndarlaga. Meiri hlutinn leggur því til þá breytingu á frumvarpinu að í stað orðanna „stórfelld spjöll“ komi „alvarleg spjöll“. Meiri hlutinn vill jafnframt árétta alvarleika náttúruspjalla í heild sinni og leggur til að fjárhæð sektar verði hækkuð í 350.000 kr. Slík spjöll eru óafturkræf og náttúran verður aldrei söm á eftir. Meiri hlutinn vill í þessu sambandi leggja áherslu á mikilvægi kynningar og fræðslu svo að fólk sé meðvitað um alvarleika slíkra brota og áhrifa þeirra á náttúruna og tilkynni til réttra aðila ef það verður vitni að slíku athæfi.
    Í 2. gr. frumvarpsins er kveðið á um upptöku ökutækja með dómi en einnig er gert ráð fyrir því að gera megi upptæka fjárhæð sem svarar til andvirðis þeirra í heild eða hluta. Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að greinin sæki fyrirmynd sína í 69. gr. almennra hegningarlaga. Það er hins vegar mat meiri hlutans að slík framkvæmd geti verið erfiðleikum háð þar sem ekki er í þessu sambandi verið að afla muna eða ávinnings með broti. Meiri hlutinn leggur fram þá breytingu að ákvæðið samsvari 107. gr. a núgildandi umferðarlaga, nr. 50/1987, um upptöku ökutækja en það ákvæði gerir ráð fyrir að upptöku megi beita vegna hvers konar brota á umferðarlögum, sé um gróf eða ítrekuð brot að ræða. Meiri hlutinn leggur einnig til þá breytingu að upptaka ökutækja sé ekki heimil ef ökutækið er eign manns sem ekkert er við brotið riðinn. Meiri hlutinn bendir á í þessu sambandi að ökutæki getur verið í útleigu, t.d. bílaleigubíll, eða eigandi bifreiðar og ökumaður ekki sami aðili.
    Að lokum bendir meiri hlutinn á að fyrir þinginu liggur nú frumvarp umhverfisráðherra sem ætlað er að stuðla að því markmiði að styrkja lagaákvæði um bann við akstri utan vega, 225. mál, en þar er hugtakið vegur skilgreint í fyrsta skipti.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



     1.      Við 1. gr.:
              a.      Í stað orðanna „stórfelld spjöll“ komi: alvarleg spjöll.
              b.      Í stað upphæðarinnar „250.000 kr.“ komi: 350.000 kr.
     2.      2. gr. orðist svo:
             Á eftir 76. gr. laganna kemur ný grein, 76. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
    

Upptaka ökutækis.


             Þegar alvarleg spjöll verða á náttúru landsins við akstur eða hann telst sérlega vítaverður að öðru leyti má gera upptækt með dómi vélknúið ökutækið sem notað hefur verið við framningu brots gegn ákvæðum laga þessara, nema ökutæki sé eign manns sem ekkert er við brotið riðinn.

    Mörður Árnason og Ásmundur Einar Daðason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Þór Saari, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 15. febrúar 2012.



Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,


form., frsm.


Ólína Þorvarðardóttir.


Þuríður Backman.



Róbert Marshall.


Arndís Soffía Sigurðardóttir.