Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 472. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 828  —  472. mál.




Svar



innanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um fjölda bíla sem komu til landsins með Norrænu.


    Fyrirspurnin er svohljóðandi:
    Hvað komu margir bílar til landsins með Norrænu á hverju ári 2000–2011, á erlendum númerum annars vegar og hins vegar á innlendum númerum?

    Smyril Line er færeyskt félag um rekstur farþega- og bílaferjunnar Norrænu. Umboðsaðili Smyril line á Íslandi er Norræna ferðaskrifstofan ehf. í Reykjavík og Austfar ehf. á Seyðisfirði. Aðalupplýsingavinnsla og skráning, sem og bókhaldskerfi, er öll í Færeyjum. Upplýsingaskráning miðast ekki við bifreiðar sem skráðar eru í tilteknu landi. Skráning bifreiða og farþega er fyrst og fremst rekstrarupplýsingar, auk þess sem þær upplýsingar eru nauðsynlegar ef slys bæri að höndum. Þá hafa löggæslu- og tollayfirvöld beinan aðgang að upplýsingum Smyril Line um farþega og ökutæki sem flutt er. Upplýsingum um farþega og ökutæki er ekki haldið saman á grunni þjóðernis.
    Skipið sem nú siglir milli meginlands Evrópu, Færeyja og Íslands er það þriðja í röðinni. Fyrsta skipið, Smyrill, sigldi frá 1975 til 1982. Árið 1983 hóf Norröna 1 siglingar og árið 2003 kom skipið sem nú siglir sem einnig heitir Norröna.
    Fjöldi farþega og farartækja til og frá Seyðisfirði hafa á árunum 2003–2011 verið með þessum hætti:
     Farþegar     Farartæki
     Til Seyðisfj arðar      Frá Seyðisfirði     Alls     Til Seyðisfjarðar      Frá Seyðisfirði     Alls
2003     10.773     11.388     22.161     3.355     3.313     6.668
2004     11.859     11.692     23.551     3.667     3.617     7.284
2005     12.960     12.739     25.699     3.915     3.781     7.696
2006     16.549     16.309     32.858     4.652     4.657     9.309
2007     17.374     17.038     34.412     5.294     5.199     10.493
2008     16.039     16.382     32.421     5.126     5.530     10.656
2009     15.126     16.432     31.558     5.061     5.830     10.891
2010     17.408     17.675     35.083     5.321     5.658     10.979
2011     14.029     14.029     28.058     4.481     4.577     9.058
Alls     132.117     133.684     265.801     40.872     42.162     83.034