Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 560. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 864  —  560. mál.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um húsnæðismál.

Frá Margréti Tryggvadóttur.


     1.      Getur yfirburðastaða fjármálafyrirtækja á fasteignamarkaði varðað við samkeppnislög?
     2.      Hafa stjórnvöld áform um að takmarka þann tíma sem fjármálastofnanir geta átt íbúðarhúsnæði?


Skriflegt svar óskast.