Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 567. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 884  —  567. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um samninga slitastjórnar Landsbanka Íslands
og Nýja Landsbanka Íslands um útgáfu viðbótarskuldabréfs.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Hversu mikið skuldar ríkisbankinn Nýi Landsbanki Íslands þrotabúi Landsbanka Íslands og hversu hátt er áætlað að það viðbótarskuldabréf verði þar sem samið verður um þessa skuld?
     2.      Verður þetta viðbótarskuldabréf í erlendri mynt?
     3.      Er búið að ákveða greiðsluskilmála bréfsins og ef svo er, hverjir verða þeir?
     4.      Hvaða áhrif mun bréfið hafa á fjárhagsstöðu Nýja Landsbankans?
     5.      Hverjir sömdu, eða semja, fyrir hönd ríkisins við slitastjórn Landsbanka Íslands um útgáfu bréfsins, fjárhæð þess og skilmála?


Skriflegt svar óskast.