Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 584. máls.

Þingskjal 911  —  584. mál.



Frumvarp til laga

um breytingu á tollalögum, lögum um vörugjald og
lögum um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 140. löggjafarþingi 2011–2012.)




I. KAFLI
Breyting á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum.
1. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 122. gr. laganna skal fyrirkomulag gjalddaga aðflutningsgjalda, hjá aðilum sem njóta greiðslufrests á aðflutningsgjöldum, vegna uppgjörstímabila á árinu 2012 vera sem hér segir:
     1.      Helmingi af aðflutningsgjöldum á viðkomandi uppgjörstímabili, sbr. 1. mgr. 122. gr., skal skila eigi síðar en á 15. degi næsta mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.
     2.      Helmingi af aðflutningsgjöldum á viðkomandi uppgjörstímabili, sbr. 1. mgr. 122. gr., skal skila eigi síðar en á 5. degi annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.

II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum.
2. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 9. gr. laganna skal fyrirkomulag gjalddaga vörugjalds, hjá aðilum sem skráðir eru skv. 2. mgr. 4. gr., vegna uppgjörstímabila á árinu 2012 vera sem hér segir:
     1.      Helmingi af vörugjöldum á viðkomandi uppgjörstímabili, sbr. 1. mgr. 9. gr., skal skila eigi síðar en á 28. degi annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.
     2.      Helmingi af vörugjöldum á viðkomandi uppgjörstímabili, sbr. 1. mgr. 9. gr., skal skila eigi síðar en á 28. degi þriðja mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.

III. KAFLI
Breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.
3. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði VII. kafla og 7. mgr. 20. gr. er á gjalddaga virðisaukaskatts vegna uppgjörstímabila á árinu 2012, sbr. 1. mgr. 24. gr., heimilt að færa til innskatts á virðisaukaskattsskýrslu allan virðisaukaskatt vegna viðkomandi uppgjörstímabils, þótt einungis hluta af gjaldföllnum virðisaukaskatti hafi á þeim tíma verið skilað, sbr. ákvæði til bráðabirgða IX í tollalögum, nr. 88/2005.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.

    Með frumvarpi þessu er brugðist tímabundið við greiðsluerfiðleikum fyrirtækja vegna samdráttar í efnahagslífinu. Lagt er til að hefðbundnum gjalddögum aðflutningsgjalda og vörugjalda vegna uppgjörstímabila á árinu 2012 verði dreift á tvo gjalddaga. Einnig er lagt til að þetta fyrirkomulag skerði ekki heimild til að færa til innskatts allan virðisaukaskatt viðkomandi tímabils þótt einungis hluti hans hafi verið greiddur. Samhljóða breytingar hafa nokkrum sinnum áður verið lagðar til og var sambærileg breyting lögfest síðast með lögum nr. 46/2011. Í þessu frumvarpi er gerð sú breyting frá fyrri framkvæmd að lagt er til að síðari helmingi aðflutningsgjalda skuli skila eigi síðar en á 5. degi annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils í stað 15. dags.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á tollalögum, lögum um vörugjald
og lögum um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.

    Tilgangur frumvarpsins er að bregðast tímabundið við greiðsluerfiðleikum fyrirtækja vegna samdráttar í efnahagslífinu. Í því skyni er lagt til að frestur gjaldenda til að skila álögðum aðflutningsgjöldum og vörugjöldum vegna uppgjörstímabila ársins 2012 verði lengdur með fjölgun gjalddaga. Með aðflutningsgjöldum er átt við tolla og aðra skatta og gjöld sem lögð eru á við innflutning, þar með talinn virðisaukaskatt. Vörugjöld eru þau sem talin eru upp í almennum lögum um vörugjöld, en þar eru ekki vörugjöld samkvæmt sérlögum eins og til dæmis af eldsneyti og ökutækjum. Greiðsludreifing vegna aðflutningsgjalda verður þannig að helmingur gjaldanna er greiddur á hefðbundnum gjalddaga en hinn helmingurinn frestast til 5. dags næsta mánaðar. Greiðsludreifing vegna vörugjalda verður þannig að helmingur gjaldanna er greiddur á hefðbundnum gjalddaga en hinn helmingurinn frestast um einn mánuð. Í frumvarpinu er auk þess gert ráð fyrir því að þetta fyrirkomulag skerði ekki heimild til að færa til innskatts á virðisaukaskattsskýrslu allan virðisaukaskatt vegna viðkomandi uppgjörstímabils þótt einungis hluta af gjaldföllnum virðisaukaskatti hafi verið skilað.
    Álögð aðflutningsgjöld og vörugjöld á þessu ári munu ekki skerðast vegna þessa frá því sem gert var ráð fyrir, enda er hér einungis um að ræða tilfærslu í innheimtu. Skil ættu jafnvel að geta orðið betri vegna þessa úrræðis.
    Ekki verður séð að frumvarpið, verði það óbreytt að lögum, hafi í för með sér kostnað fyrir ríkissjóð.