Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 498. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 919 — 498. mál.
1. Hefur ráðherra kynnt sér skýrslu Geislavarna Noregs (Statens Stråleværn) frá 25. janúar 2011 um áhrif þess á umhverfi og landbúnað í Noregi ef 1% af hágeislavirkum vökva sem er geymdur á svæði B512 í Sellafield á Bretlandi slyppi út í andrúmsloftið vegna sprengingar eða bruna í endurvinnslustöðinni?
Öryggisráðstafanir á Íslandi gegn geislun frá geislavirkum efnum og geislatækjum eru í höndum Geislavarna ríkisins en stofnunin heyrir undir stjórn velferðarráðuneytisins. Geislavarnir ríkisins þekkja skýrslu Geislavarna Noregs um mögulegar afleiðingar alvarlegs slyss í Sellafield fyrir Noreg og hafa kynnt velferðarráðuneytinu efni hennar. Samkvæmt upplýsingum frá Geislavörnum ríkisins felur skýrslan ekki í sér áhættumat en í henni er gengið út frá því að alvarlegt slys verði með þeim afleiðingum að mikið af geislavirkum efnum berist með loftstraumum til Noregs við veðurskilyrði sem þykja líklegust til að hafa hvað alvarlegastar afleiðingar. Í skýrslunni er fjallað um hvaða afleiðingar geislavirka úrfellið getur haft í Noregi. Umhverfisráðuneytið hefur ekki fjallað nánar um efni þessarar skýrslu.
2. Hefur hættan af geislavirkni á Íslandi vegna slyss eða óhapps í Sellafield verið metin og ef ekki, hyggst ráðherra læra af verklagi Norðmanna og óska eftir því að Veðurstofa Íslands meti hættuna af því að geislavirk efni bærust hingað með loftstraumum frá Sellafield?
Geislavarnir ríkisins sjá um öryggisvarnir á Íslandi gegn geislun frá geislavirkum efnum og heyrir stofnunin undir stjórn velferðarráðuneytis. Samkvæmt upplýsingum frá þeim þá hefur stofnunin ekki gert sérstaka skýrslu um hugsanlegar afleiðingar slyss í Sellafield, né á öðrum stöðum, m.a. vegna þess hve mikil óvissa er í þeim forsendum sem slíkt mat byggist á. Geislavarnir ríkisins gáfu út skýrslu árið 2010 um viðbúnað við geislavá, en þar er fjallað um ýmsar ógnir og á hvaða grunni viðbúnaður og viðbrögð við þeim byggjast. Nú mun standa yfir vinna með almannavarnadeild ríkislögreglustjóra við samræmingu viðbragðsáætlana við geislavá á því formi sem notað er fyrir aðrar viðbragðsáætlanir.
Veðurstofa Íslands er í nánu samstarfi við Geislavarnir ríkisins þegar um dreifingu geislunar í andrúmsloft er að ræða. Veðurstofan er enn fremur í samstarfi við systurstofnanir sínar á Norðurlöndum. Stofnunin er m.a. þátttakandi í norrænu samstarfsverkefni um dreifingu á geislavá og tekur virkan þátt í reglulegum æfingum á þeim vettvangi. Þetta samstarfsverkefni er tilkomið að tilstuðlan Geislavarna ríkisins ásamt þeirra systurstofnunum á Norðurlöndum fyrir um áratug síðan.
Veðurstofan hefur ekki haft aðkomu að hættumati á geislavirku úrfelli á Íslandi vegna slysa eða óhappa í Sellafield. Faglegar forsendur slíks hættumats eru fólgnar í samvinnu Geislavarna ríkisins, þar sem þekking á geislavirkum efnum og geislavá liggur fyrir, og Veðurstofu Íslands, þar sem þekking á veðri og efnadreifingu er fyrir hendi. Veðurstofan hefur til umráða veður- og dreifingarlíkön, sem eru mikilvæg tæki við slíka vinnu, og hefur enn fremur þekkingu á hættumatsvinnu.
Umfang hættumats felst m.a. í veðurfarsgreiningu svæðisins milli Skotlands og Íslands og dreifingu geislavirkra efna frá uppsprettunni og þynningu þeirra við mismunandi veðuraðstæður. Þessar upplýsingar eru nauðsynlegur grundvöllur til að hægt sé að meta hættuna af hugsanlegu kjarnorkuslysi í Sellafield.
Meti Geislavarnir ríkisins og velferðarráðuneytið það svo að nauðsynlegt sé að vinna mat á hættu af geislavirkni á Íslandi vegna slyss eða óhapps í Sellafield mun ráðherra beita sér fyrir því að Veðurstofunni verði gert fjárhagslega mögulegt að taka þátt í slíku hættumati. Umhverfisráðuneytið hefur fylgst vel með málefnum Sellafield og beitt þrýstingi til að draga úr losun og efla öryggi þar um langt skeið. Ráðuneytið tekur þátt í starfi OSPAR-samningsins um verndun Norðaustur-Atlantshafsins þar sem varnir gegn geislamengun í hafinu eru mikilvægur hluti af starfi samningsins og hafa skilað miklum árangri. Þannig hefur dregið úr losun ákveðinna geislavirkra efna í hafinu um tæplega 40% á árunum 1995–2001. Styrkur geislavirkra efna og áhrif þeirra á fólk og lífríki í hafinu eru talin afar lítil eins og kemur fram í ástandsskýrslu OSPAR, Quality Status Report, sem kom út árið 2010. Umhverfisráðuneytið mun innan OSPAR leggja áfram mikla áherslu á verndun hafsins gegn geislamengun og á næstu missirum mun samningurinn m.a. vinna að því að þróa áfram tækni til þess að draga enn meira úr losun geislavirkra efna, meta áhrif olíu- og gasiðnaðar á hafi úti á geislamengun og finna leiðir til að bregðast við henni. Áfram verður unnið að vöktun á geislavirkum efnum í hafinu og stefnt er að því að bæta matsaðferðir og þróa umhverfisviðmið til að hægt sé að meta á sem bestan hátt áhrif losunar á lífríki hafsins.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 919 — 498. mál.
Svar
umhverfisráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur
um hættu af kjarnorkuslysi í Sellafield.