Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 591. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 924 — 591. mál.
1. Hvenær hyggst ráðherra bregðast við erindi frá Sjálfsbjörg varðandi bifreiðamál hreyfihamlaðra og nauðsyn endurskoðunar laga og reglna um bifreiðastyrki?
2. Telur ráðherra að hægt sé að koma styrkjum til bifreiðakaupa aftur í það horf sem var árið 2000 en þá gat hjólastólanotandi greitt 50% af verði meðalfólksbíls með styrk (1 millj. kr.)?
3. Telur ráðherra að leggja beri svokallaðar uppbætur á lífeyri niður og nota þá fjármuni til að hækka beina styrki samkvæmt lögum um félagslega aðstoð?
4. Telur ráðherra að stokka beri umrætt kerfi upp á nýtt og beita lækkunum á aðflutningsgjöldum í stað beinna styrkja?
Skriflegt svar óskast.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 924 — 591. mál.
Fyrirspurn
til velferðarráðherra um bifreiðamál hreyfihamlaðra og félagslega aðstoð.
Frá Kristjáni Þór Júlíussyni.