Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 512. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 941 — 512. mál.
1. Hve mörg dæmi eru um það á síðastliðnum fimm árum að greiðslur í fæðingar- og foreldraorlofi hafi skerst eða að móðir eða faðir hafi engar greiðslur fengið úr fæðingarorlofssjóði vegna þess að minna en 18 mánuðir liðu milli fæðingar barna? Hvaða rétt eiga foreldrar þegar svo stendur á?
Lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, hefur verið breytt á síðastliðnum fimm árum, sbr. meðal annars lög nr. 78/2008 og lög nr. 136/2011, til að koma í veg fyrir að greiðslur í fæðingarorlofi skerðist hafi skemmri tími en 18 mánuðir liðið milli fæðinga barna. Samkvæmt 13. gr. laganna telst sá tími sem foreldri hefur verið í fæðingarorlofi, sem launamaður eða sjálfstætt starfandi einstaklingur, með eldra barni til þátttöku á innlendum vinnumarkaði og reiknast því með við mat á réttindum foreldris til fæðingarorlofs með yngra barni. Er jafnframt kveðið á um að hafi verið um að ræða 100% greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í fæðingarorlofi skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við. Hafi foreldri hins vegar kosið að dreifa greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði hlutfallslega á lengri tíma samhliða hlutastarfi eða leyfi, launuðu eða ólaunuðu, skal taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við í sama hlutfalli og greiðslurnar voru inntar af hendi í fyrra fæðingarorlofi. Þar með er tryggt að sama regla gildir um útreikning tekna á viðmiðunartímabili hvort sem um er að ræða greiðslur í fæðingarorlofi, launuð störf eða launalaust leyfi.
2. Hvað mundi það kosta sjóðinn að breyta reglum þannig að greiðslur í orlofi vegna fyrra barns skerði ekki greiðslur í fæðingarorlofi síðara barns?
Eins og fram kemur í svari við 1. lið fyrirspurnarinnar hefur það þegar verið gert.
3. Telur ráðherra það samrýmast anda laga um fæðingar- og foreldraorlof að greiðslur skerðist sjálfkrafa ef foreldrar eiga börn með skemmra millibili en viðmiðunartíminn er?
Eins og fram kemur í svari við 1. liðnum skerðast greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi með yngra barni ekki vegna fæðingarorlofs með eldra barni.
4. Liggur einhvers konar þarfagreining eða framfærsluviðmið að baki ákvörðun upphæðar fæðingarstyrks til námsmanna í fullu námi?
Fjárhæð fæðingarstyrks námsmanna hefur verið ákveðin sú sama og fjárhæð lágmarksgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði fyrir 50–100% starf. Sú fjárhæð kemur síðan til endurskoðunar við afgreiðslu fjárlaga ár hvert með tilliti til þróunar launa, verðlags og efnahagsmála, sbr. 5. mgr. 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum. Ráðherra er jafnframt heimilt, að fengnu samþykki ríkisstjórnar, að breyta styrkfjárhæðinni til hækkunar ef verulegar breytingar verða á launaþróun og þjóðhagsforsendum frá afgreiðslu fjárlaga.
5. Telur ráðherra þörf á að hækka upphæð fæðingarstyrks til námsmanna í fullu námi?
Fjárhæð fæðingarstyrk til námsmanna hefur fylgt öðrum þeim hækkunum sem hafa verið gerðar innan fæðingarorlofskerfisins en hún hækkaði samtals um 11,8% frá maí 2011 til og með janúar 2012.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 941 — 512. mál.
Svar
velferðarráðherra við fyrirspurn Auðar Lilju Erlingsdóttur
um greiðslur í fæðingar- og foreldraorlofi.