140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 958 — 608. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um gjaldeyrismál, nr. 87/1992, með síðari breytingum.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (HHj, MN, SkH, BVG, LRM).
1. gr.
2. gr.
Þrátt fyrir 1. mgr. skulu afborganir og verðbætur af höfuðstól skuldabréfa ekki undanþegnar bannákvæði 2. og 3. mgr. 13. gr. c.
3. gr.
4. gr.
Greinargerð.
I. Inngangur.
Í frumvarpi þessu er lagt til að tilteknar fjármagnshreyfingar á milli landa, sem verið hafa heimilar til þessa, verði takmarkaðar. Er það gert vegna þess að þær gætu að óbreyttu grafið undan áætlun um losun fjármagnshafta og valdið alvarlegum óstöðugleika á gjaldeyrismarkaði, sem aftur gæti leitt til verulegrar gengislækkunar krónunnar, höggvið stór skörð í gjaldeyrisforða þjóðarinnar eða hvort tveggja. Undanþágurnar sem um ræðir eru almenn undanþáguheimild til útgreiðslna í íslenskum krónum úr innlendum þrotabúum til erlendra aðila, sérstök undanþáguheimild búa föllnu fjármálafyrirtækjanna til fjármagnshreyfinga í erlendum gjaldeyri, sem m.a. gerir föllnu fjármálafyrirtækjunum mögulegt að greiða kröfuhöfum sínum í erlendum gjaldeyri, og að síðustu undanþáguheimild til að skipta jafngreiðslum og verðbótum af höfuðstól skuldabréfa. Í stað þeirra heimilda sem slitastjórnir föllnu fjármálafyrirtækjanna hafa nú samkvæmt lögum mundi Seðlabankinn setja reglur er heimiluðu útgreiðslur til kröfuhafa með hætti er samrýmist stöðugleika. Auk þess að koma í veg fyrir hugsanlegan óstöðugleika á gjaldeyrismarkaði munu breytingar á gjaldeyrislögum sem lagðar eru til í frumvarpinu jafna stöðu aðila gagnvart gjaldeyrishöftunum og koma í veg fyrir óeðlilegan hagnað vegna sniðgöngu.
Höft á fjármagnsflutninga til og frá Íslandi voru innleidd í árslok 2008 í kjölfar þess að Ísland varð fyrir óvenjuumfangsmiklu fjármálaáfalli. Í kjölfarið stóðu íslensk stjórnvöld frammi fyrir því að erlendir aðilar áttu miklar innlendar eignir. Þessar innlendu eignir voru að miklu leyti skammtímakröfur á innlenda aðila í íslenskum krónum, en einnig í erlendum gjaldmiðlum. Stór hluti hinna erlendu aðila hefði kosið að geta innleyst innlendar eignir sínar og komið þeim úr landi í formi erlends gjaldeyris. Stærstu eignaflokkar í eigu erlendra aðila eru innstæður í fjármálafyrirtækjum, ríkistryggð skuldabréf, kröfur á fjármálafyrirtæki í slitameðferð og kröfur á sveitarfélög og fyrirtæki þeirra. Ef allar þessar eignir hefðu verið seldar á skömmum tíma hefði gengi krónunnar fallið langt umfram það sem raun varða á, verðbólga orðið til muna meiri en ella og vextir þurft að vera hærri. Við slíkar aðstæður hefði verið afar erfitt að endurreisa fjármálakerfið eða taka á skuldavanda í einkageiranum. Tilgangur fjármagnshafta var að koma á jafnvægi í greiðslujöfnuði landsins og stuðla þannig að stöðugleika í gengismálum á meðan unnið væri að endurreisn fjármálakerfisins og lausn á skuldavanda heimila og fyrirtækja. Til þess að ná þessum markmiðum reyndist nauðsynlegt að stemma stigu við stórfelldu útstreymi fjármagns. Vöru- og þjónustuviðskipti Íslands eru hins vegar óheft.
Markmið áætlunar um losun gjaldeyrishafta er að losa höftin svo fljótt sem verða má, án þess að tefla í tvísýnu þeim efnahagslega stöðugleika sem áunnist hefur. Unnið er að losun gjaldeyrishafta samkvæmt áætlun sem ríkisstjórnin samþykki 25. mars 2011 að tillögu Seðlabanka Íslands og sem í kjölfarið var birt af Seðlabankanum. Rauði þráður þeirrar áætlunar er að losa um óstöðugt skammtímafjármagn í áföngum, fyrst í stað með því að leiða saman í útboðum eigendur skammtímafjármagns sem vilja selja krónur fyrir gjaldeyri og langtímafjárfesta sem eiga erlendan gjaldeyri og eru reiðubúnir að fjárfesta í innlendum krónueignum til langs tíma. Til þess að markmið áætlunarinnar gangi eftir er mikilvægt að nægur hvati sé fyrir eigendur óþolinmóðs fjármagns sem vilja selja stöður sínar til þess að taka þátt í útboðum. Opnist leiðir til þess að sniðganga höftin á meðan þessu ferli stendur grefur það undan áætluninni og gæti, ef ekki er brugðist við, leitt til umtalsverðs óstöðugleika á gjaldeyrismarkaði. Breytingar sem lagðar eru til í frumvarpi þessu miða að því að takmarka tilteknar fjármagnshreyfingar á milli landa sem verið hafa heimilar til þessa en gætu að óbreyttu grafið undan áætlun Seðlabankans um losun fjármagnshafta. Í frumvarpinu er lagt til að felldar verði niður undanþáguheimildir í lögum er varða útgreiðslu í íslenskum krónum úr innlendum þrotabúum til erlendra aðila, sérstaka heimild búa föllnu fjármálafyrirtækjanna til fjármagnshreyfinga í erlendum gjaldeyri, sem m.a. gerir föllnu fjármálafyrirtækjunum mögulegt að greiða kröfuhöfum sínum í erlendum gjaldeyri, og að síðustu heimild til að eiga gjaldeyrisviðskipti vegna jafngreiðslna og verðbóta af höfuðstól skuldabréfa.
II. Tilefni og meginefni lagasetningar.
ÁHRIF UPPGJÖRA Á BÚUM FÖLLNU FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJANNA
Greining á áhrifum erlendra og innlendra eigna gjaldþrota fjármálafyrirtækja á erlenda stöðu þjóðarbúsins birtist í 4. riti Efnahagsmála í febrúar 2011, Hvað skuldar þjóðin? sem gefið er út af Seðlabanka Íslands Þar var lagt mat á áhrif uppgjörs búa föllnu fjármálafyrirtækjanna á skuldastöðu þjóðarbúsins. Vegna þess að andvirði eigna búanna verður að mestu leyti greitt til erlendra kröfuhafa gæti orðið umtalsvert útflæði gjaldeyris við uppgjörið takist ekki að fjármagna sölu eigna með erlendum lánum eða hlutafé. Greiningin varpar ljósi á mikilvægi þess að uppgjör og útgreiðslur verði skipulagt með þeim hætti að stöðugleika verði ekki teflt í tvísýnu.
Eignir búa föllnu fjármálafyrirtækjanna verða seldar, andvirði þeirra ráðstafað til erlendra eða innlendra kröfuhafa og kröfur umfram andvirði seldra eigna afskrifaðar. Þótt skuldir búanna verði aldrei meiri en eignir geta skuldbindingar á milli innlendra og erlendra aðila orðið til í gjaldþrotaferlinu. Til að áætla erlenda stöðu þjóðarbúsins þegar slitaferlinu lýkur þarf því að rýna í uppgjör búanna. Til að skýra tilgang þeirra breytinga sem lagðar eru til í frumvarpi þessu varðandi útgreiðslur úr búum föllnu fjármálafyrirtækjanna hafa upplýsingar sem birtust í greininni Hvað skuldar þjóðin? verið uppfærðar og birtast niðurstöðurnar hér á eftir:
i. Aðferðafræði.
Í uppgjöri greiðslujafnaðar er gerður greinarmunur á eignum af tvennum toga, kröfum á innlenda aðila annars vegar og kröfum á erlenda aðila hins vegar. Bú fallinna fjármálafyrirtækja eiga verulegar eignir og verður andvirði þeirra í lausu fé ráðstafað til kröfuhafa. Fé sem verður til vegna sölu innlendra eigna og bíður þess að verða ráðstafað til erlendra kröfuhafa myndar erlenda skuld þjóðarbúsins. Fé sem verður til vegna sölu erlendra eigna og er að lokum greitt til innlendra kröfuhafa myndar erlenda eign þjóðarbúsins. Þannig er ekki gerður greinarmunur á gjaldmiðli krafna heldur því hvort innlendur eða erlendur aðili þarf að reiða féð af hendi. Þótt hrein skuld þjóðarbúsins sem líklegt er að verði til við uppgjör búanna sé í sjálfu sér ekki mikil í sögulegu samhengi getur eigi að síður skapast veruleg endurfjármögnunarhætta í ferlinu. Í sumum tilfellum er hægt að jafna eignum á móti skuldum. Þannig á t.d. Seðlabankinn lausar eignir á móti innstæðum búanna í Seðlabankanum. Ráðstöfun innstæðnanna til kröfuhafa skapa engan greiðsluvanda. Því er hægt að horfa fram hjá þessum eignum og skuldum. Er það gert hér á eftir og víkur greiningin að því leyti frá efnistökum í skýrslunni Hvað skuldar þjóðin? sem vikið var að hér að framan, en í henni var staða Seðlabankans greind sérstaklega. Gögn sem stuðst er við miðast við september 2011 þó tekið sé tillit til útgreiðslna sem fóru fram á síðasta ársfjórðungi ársins 2011.
ii. Kröfuhafar búa föllnu fjármálafyrirtækjanna.
Skipting krafna er nokkuð breytileg eftir bönkum. Áætlað er að allir kröfuhafar Landsbanka Íslands séu erlendir en kröfuhafar Glitnis og Kaupþings skiptast þannig að 20% krafna eru kröfur innlendra aðila en 80% krafna eru kröfur erlendra aðila. Samanlagt eru um 14% kröfuhafa föllnu fjármálafyrirtækjanna innlendir aðilar en um 86% erlendir.
iii. Innlendar eignir búa föllnu fjármálafyrirtækjanna.
Í töflu 1 er yfirlit yfir áætlaðar innlendar eignir föllnu fjármálafyrirtækjanna þriggja, þ.e. kröfur þeirra á innlenda aðila. Verðmæti fyrrgreindra eigna er áætlað út frá skýrslum bankanna til Seðlabankans og kröfuhafa, upplýsingum um innstæður í innlendum bönkum og Seðlabanka og uppgjörum nýju bankanna. Áætlað heildarvirði er metið á um 1.166 ma.kr. Þá hefur verið tekið tillit til þess að sumar kröfur á innlenda aðila eru með veðum í erlendum eignum sem er gert ráð fyrir að standi undir innlendu skuldbindingunni.
Tafla 1: Áætlaðar innlendar eignir búa föllnu fjármálafyrirtækjanna.
| Ma.kr. | |
| Innstæður í krónum | 51 |
| Innstæður í erlendum gjaldeyri hjá innlánsstofnunum | 53 |
| Innstæður í erlendum gjaldeyri hjá Seðlabanka Íslands | 294 |
| Lán til viðskiptavina | 35 |
| Lán til fjármálastofnana | 9 |
| Skuldabréf frá nýja bankanum vegna yfirfærslu eigna | 343 |
| Verðbréf | 50 |
| Eign í dóttur- og hlutdeildarfyrirtækjum | 261 |
| Aðrar eignir | 69 |
| Alls | 1.166 |
Heimild: Seðlabanki Íslands.
Á móti innstæðum í erlendum gjaldeyri hjá Seðlabanka Íslands standa erlendar eignir Seðlabankans sem föllnu fjármálafyrirtækin afhentu þegar til reikninganna var stofnað. Seðlabankinn varðveitir þessar eignir og kappkostar að geta afhent föllnu fjármálafyrirtækjunum innstæðurnar við útgreiðslur úr búum þeirra án vandkvæða. Hér á eftir er því litið á þessa innlendu kröfu sem erlenda. Eign í dóttur- og hlutdeildarfyrirtækjum er að mestu leyti hlutafé í nýju bönkunum og er það skráð á bókfærðu virði nýju bankanna eða rúmlega 200 ma.kr. Hvenær og hvernig nýju bankarnir verða seldir ræður því hvaða áhrif þessi staða hefur á greiðslujöfnuðinn. Liðurinn „Skuldabréf frá nýja bankanum vegna yfirfærslu eigna“ er að mestu leyti tengdur uppgjöri Landsbanka Íslands hf. við Landsbankann hf. Skuldabréfið er á gjalddaga seinni hluta árs 2018 og er bréfið án afborgana af höfuðstól fyrstu fimm árin en með jöfnum afborgunum síðari fimm árin, eða frá og með árinu 2014. Fjárhæð skuldabréfsins skiptist í 871 millj. evrur, 275 millj. sterlingspund og 734 millj. bandaríkjadali. Ef innstæður hjá Seðlabankanum og eignir vegna erlendra veða sem tengjast innlendum eignum eru flokkaðar sem erlend eign standa eftir 872 ma.kr. eða um 54% af vergri landsframleiðslu, VLF.
iv. Erlendar eignir búa föllnu fjármálafyrirtækjanna.
Andvirði erlendra eigna búanna, að viðbættum tengdum innlendum eignum með erlend veð og innstæðum í Seðlabankanum, er nú áætlað 1.702 ma.kr. Stærstur hluti þessara eigna eru annaðhvort lán til erlendra aðila eða skuldabréf útgefin af erlendum aðilum, eða um helmingur. Þá eru innstæður u.þ.b. fimmtungur og hlutafé u.þ.b. einn sjöundi.
v. Skipting eigna föllnu fjármálafyrirtækjanna til kröfuhafa.
Ein leið til þess að nálgast hreina skuld innlendra aðila við erlenda aðila þegar uppgjöri búanna lýkur er að skoða þá skuldastöðu sem leiddi af því ef núverandi eignum, innlendum og erlendum, væri einfaldlega skipt á milli innlendra og erlendra kröfuhafa miðað við ofangreinda skiptingu. Þannig mundu 783 ma.kr. af kröfum á innlenda aðila renna til erlendra aðila og auka erlenda skuld þjóðarbúsins um 47% af VLF. Á móti mundu 254 ma.kr. af kröfum á erlenda aðila renna til innlendra aðila og auka erlenda eign þjóðarbúsins um 15% af VLF. Niðurstaðan er hrein skuld að fjárhæð 528 ma.kr. eða sem nemur 32% af VLF.
Mynd 1: Skipting eigna föllnu fjármálafyrirtækjanna til kröfuhafa
Miðað við gögn frá 30. september 2011 að teknu tilliti til útgreiðslna á árinu 2011. Innstæður hjá Seðlabankanum og eignir vegna erlendra veða tengt innlendum eignum eru flokkaðar sem erlend eign.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
vi. Áhrif á greiðslujöfnuð til næstu ára.
Greiningin hér að framan metur skuldastöðu Íslands ef öllum eignum föllnu fjármálafyrirtækjanna yrði ráðstafað til kröfuhafa. Raunveruleikinn er sá að eignir verða seldar og kröfur verða endurheimtar yfir tíma eftir því sem laust fé myndast við söluna. Skuldarinn getur endurgreitt skuldir með nýju fjármagni eða sölu eigna eða þriðji aðili keypt eignir af föllnu fjármálafyrirtækjunum. Þetta ferli mun hafa áhrif á greiðslujöfnuð landsins. Þar sem stór hluti af eignum föllnu fjármálafyrirtækjanna eru innlendar eignir, þar sem söluandvirðið rennur til erlendra aðila, mun töluverð endurfjármögnunarþörf hvíla á þjóðarbúinu. Endurfjármagna þarf þessar eignir erlendis að hluta eða selja þær innlendum aðilum sem geta aflað erlends gjaldeyris. Ástæðan er sú að því þótt töluverður afgangur yrði á viðskiptajöfnuði þá mun hann ekki standa undir öllum útgreiðslunum eigi þær sér stað á skömmum tíma. Því er mikilvægt að sjá til þess að útgreiðslurnar eigi sér stað yfir lengri tíma þannig að greiðslujöfnuðurinn verði ekki fyrir neikvæðum áhrifum.
Gert er ráð fyrir því að ríkissjóður og Seðlabanki Íslands endurfjármagni skammtímalán að einhverju leyti með langtímaláni á árinu 2012. Þegar horft er fram hjá áhrifum af útgreiðslum úr búum föllnu fjármálafyrirtækjanna nægir forðinn til þess að standa undir skammtímaskuldum þjóðarbúsins næstu árin. Gjaldeyrisforði sem hlutfall af skammtímastöðu fer hratt minnkandi ef gert er ráð fyrir að greiðslur úr búum föllnu fjármálafyrirtækjanna verði ekki endurfjármagnaðar. Gæti það skapað þörf fyrir erlenda lántöku ríkissjóðs til þess að mæta þessu útstreymi á næstu árum.
Mynd 2: Þróun gjaldeyrisforða
Sviðsmynd yfir þróun gjaldeyrisforðans vegna útgreiðslna úr búum föllnu fjármálafyrirtækjanna. Til þess að einangra áhrifin af útgreiðslu búanna sýnir myndin stöðuna miðað við núverandi spá greiðslujafnaðar og tekur ekki mið af þeim viðbótaráhrifum sem gert er ráð fyrir að frekari aflétting hafta hafi.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
B. Áhrif á fjármálastöðugleika.
i. Lausafjárstaða.
Viðskiptabankarnir eru að miklu leyti fjármagnaðir með innlánum sem nema 60% af skuldum bankanna. Auk þess er eiginfjárstaða bankanna sterk. Önnur fjármögnun en innlán, eigið fé og skuldabréf á milli gamla og nýja Landsbankans er hverfandi. Innlán föllnu fjármálafyrirtækjanna nema rúmlega 6% af heildarinnlánum og innlán erlendra aðila rúmlega 9%. Útgreiðslurnar munu hafa bein neikvæð áhrif á lausafjárstöðu viðskiptabankanna, einkum ef útgreiðslurnar fara til erlendra aðila. Til lengri tíma litið er ljóst að bankarnir þurfa að lengja í fjármögnun sinni og auka vægi markaðsfjármögnunar. Bankarnir þurfa að fá svigrúm til þess. Við núverandi aðstæður, m.a. vegna afnáms gjaldeyrishaftanna, óvissu í efnahagsreikningi bankanna vegna gengislánadóma Hæstaréttar og útlána í vanskilum, er rúm lausafjárstaða nauðsynleg.
ii. Áhrif á gengi, skuldir og fjármálastöðugleika.
Gengisbundnar skuldir heimilanna eru að miklu leyti að hverfa en um helmingur skulda fyrirtækja eru í erlendum gjaldmiðlum. Sum þeirra hafa ekki gjaldeyristekjur. Valdi útgreiðslur föllnu fjármálafyrirtækjanna því að gengi krónunnar lækki umtalsvert mun það hafa neikvæð áhrif á eiginfjárstöðu fyrirtækja með erlend lán og auka greiðslubyrði þeirra fyrirtækja sem ekki hafa gjaldeyristekjur. Þá mun gengislækkun leiða til aukinnar verðbólgu til skamms tíma. Fjöldi heimila er með fasteignaskuldir umfram verðmæti eigna. Þótt verðbólga hafi ekki áhrif á raungreiðslubyrði verðtryggðra lána til lengri tíma þá verða áhrifin á eiginfjárstöðu heimilanna neikvæð. Einnig er hætt við að greiðslubyrði verðtryggðra lána aukist tímabundið þar sem laun fylgja ekki verðlagi jafnóðum. Líklegt er að greiðslugeta sé sérstaklega viðkvæm fyrir hækkun verðlags þegar eigið fé er lítið eða neikvætt og skuldir verðtryggðar. Skert greiðslugeta skuldara, bæði fyrirtækja og heimila, rýrir mögulega verðmæti eignasafna bankanna og Íbúðalánasjóðs og eykur á almenna óvissu og fjármálaóstöðugleika. Því er mikilvægt að hafa stjórn á því með hvaða hætti útgreiðslur til kröfuhafa úr búum föllnu fjármálafyrirtækjanna fara fram.
AFBORGANIR OG VERÐBÆTUR AF HÖFUÐSTÓL SKULDABRÉFA
Í upphafi voru jafngreiðslubréf ekki talin valda umtalsverðum vanda. Jafngreiðslubréf eru hins vegar þess eðlis að afborgun af höfuðstól sem hlutfall af heildargreiðslu vaxta og höfuðstóls vex þegar nær dregur lokagjalddaga bréfsins. Í kjölfar birtingar áætlunar um afléttingu gjaldeyrishafta hafa aðilar nýtt sér þessa leið til að eiga möguleika á að koma höfuðstólsgreiðslum úr landi. Hafa þeir ýmist verið smám saman að flytja sig úr öðrum eignum yfir í jafngreiðslubréf þar sem hægt er að skipta vöxtum, verðbótum og höfuðstólsgreiðslum í erlendan gjaldeyri, eða jafnvel nýtt sér þann möguleika að kaupa krónur á aflandsmarkaði til að kaupa slík bréf, þannig að töluverður ávinningur hefur skapast af fjárfestingunni sem leiðir af mismun á gengi krónunnar á aflands- og álandsmarkaði. Þessi viðskipti grafa undan tilgangi gjaldeyrishaftanna og undan áætlun um afnám þeirra. Sem dæmi um skuldabréf með jöfnum afborgunum má nefna útgáfur Íbúðalánasjóðs, svokallaða HFF-flokka, sem eru jafngreiðslubréf, með gjalddaga tvisvar á ári, þar sem greidd er afborgun og verðbætur af höfuðstól ásamt vöxtum. Upplýsingar um eignarhald í flokkum Íbúðalánasjóðs sýna að erlendir aðilar hafa aukið verulega stöðu sína í þeim á undanförnum misserum (sjá mynd 3). Aðeins eru tvö og hálft ár til gjalddaga stysta flokks Íbúðalánasjóðs (HFF14). Greiðslur af höfuðstól og verðbætur á höfuðstól vegna HFF14 munu að meðaltali nema um 7 ma.kr. tvisvar á ári (í mars og september), fram til lokagjalddaga í september 2014, alls um 42 ma.kr. Til samanburðar var heildarveltan á innlendum gjaldeyrismarkaði á árinu 2011 um 77 ma.kr. (án þátttöku Seðlabankans) svo ljóst er að áhrif þessa munu verða umtalsverð.
Mynd 3: Þróun á stöðu erlendra aðila í útgáfum Íbúðalánasjóðs
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Seðlabanki Íslands.
Alvarlegra er þó að til viðbótar hafa ýmsir aðilar gefið út, eða hafa í hyggju að gefa út, skuldabréf með hliðstæðum greiðslum og stutt íbúðabréf. Verði það raunin gæti útstreymi gjaldeyris aukist til muna eða jafnvel margfaldast. Árangur áætlunar um losun gjaldeyrishafta veltur að verulegu leyti á því að bankinn hafi stjórn á flæði fjármagns frá landinu gegnum gjaldeyrismarkaðinn og að ekki verði til glufur sem geta stækkað og stofnað öllu ferlinu í hættu. Verði ekki komið í veg fyrir þetta vandamál gæti það ógnað stöðugleika á innlendum gjaldeyrismarkaði með tilheyrandi afleiðingum fyrir gengisþróun og peningastefnu. Nauðsynlegt er að taka á þessu vandamáli strax með því að láta sömu takmarkanir gilda um afborganir af höfuðstól allra skuldabréfa og afstýra því að truflanir og tafir verði á afléttingu fjármagnshafta.
III. Samráð.
Náið samráð hefur verið haft við efnahags- og viðskiptaráðuneytið og Seðlabanka Íslands sem fylgist með því að starfsemi aðila sé í samræmi við lög um gjaldeyrismál og fer með framkvæmd áætlunar um afnám gjaldeyrishafta.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Um 1. gr.
Tilgangurinn með því að afnema þessa almennu undanþágu frá fjármagnshöftunum er að gefa Seðlabanka Íslands svigrúm til að hafa meiri stjórn á þessum fjármagnshreyfingum með sértækum undanþágum. Þannig verði hægt að sjá til þess að útgreiðslurnar séu í þeim farvegi að neikvæð áhrif á greiðslujöfnuð verði í lágmarki og fjármálastöðugleiki tryggður, t.d. hvað varðar lausafjárstöðu og gjaldeyrisjöfnuð nýju bankanna. Vísast til frekari umfjöllunar um áhrif útgreiðslu búa föllnu fjármálafyrirtækjanna í almennum athugasemdum við frumvarp þetta.
Þó sala á lausafjáreignum föllnu fjármálafyrirtækjanna í krónum fyrir erlendan gjaldeyri sé sá greiðsluflæðisvandi sem er nærtækastur þá takmarkast áhættan ekki við það. Sala á slíkum krónueignum hefur bein áhrif á gjaldeyrismarkað. Hann er þó aðeins hluti af greiðslujafnaðarvanda sem búin gætu mögulega valdið verði ráðstöfun eigna ekki með hætti sem samrýmist stöðugleika. Sem dæmi má nefna að gera má ráð fyrir að ýmsar innlendar eignir verði seldar innlendum aðilum sem einungis geta greitt fyrir þær í krónum. Verði þessum krónum skipt úr krónuinnstæðum í nýju bönkunum fyrir gjaldeyrisforða nýju bankanna erlendis mundi gengi krónunnar lækka, nema Seðlabankinn selji gjaldeyri úr gjaldeyrisforða á móti. Séu eignirnar seldar fyrir erlendan gjaldeyri, sem stafar af útflutningstekjum, nýtast útflutningstekjurnar ekki til að standa undir innflutningi, sem aftur leiðir til veikingar krónunnar.
Ráðstöfun krafna á innlenda aðila í erlendum gjaldeyri getur haft óbein áhrif á gengi krónunnar. Takist ekki að endurfjármagna gjaldeyrislán með lánum frá erlendum aðilum þarf að endurfjármagna þau með lánum frá innlendum aðilum. Ef þau verða fjármögnuð í krónum verða krónurnar notaðar til þess að kaupa hluta af þeim erlenda gjaldeyri sem verður til vegna útflutnings. Þannig dregur úr gjaldeyri til innflutnings og gengi krónunnar veikist.
Það er því margt sem mælir með því að útgreiðslum úr innlendum þrotabúum verði stýrt þannig að ekki valdi verulegri röskun. Mikilvægt er að tryggja að krónur sem losna við sölu á eignum innlendra þrotabúa fari í það ferli sem lýst er í áætlun um losun gjaldeyrishafta. Að öðrum kosti er hætta á að grafið sé undan afnámsáætlun haftanna og jafnframt að verulegur þrýstingur myndist á gengi krónunnar, sem bregðast þyrfti við með hækkun vaxta og inngripum á gjaldeyrismarkað.
Æskilegt er að veita Seðlabanka Íslands fullnægjandi varúðartæki til að hafa stjórn á því ferli sem felst í afléttingu fjármagnshaftanna, með hliðsjón af því markmiði að losa þau svo fljótt sem verða má, en án þess að mikill óstöðugleiki hljótist af.
Um 2. gr.
Um 3. gr.