Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 616. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 974  —  616. mál.




Fyrirspurn



til velferðarráðherra um áframhaldandi þróun félagsvísa.

Frá Helga Hjörvar.

     1.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja áframhaldandi þróun og vinnu við gerð félagsvísa?
     2.      Hvernig hyggst ráðherra mæta skorti á nauðsynlegum tölulegum upplýsingum til þess að félagsvísarnir nýtist sem skyldi?
     3.      Hvaða stofnun eða ráðuneyti mun fara með umsjón og vistun félagsvísanna?