Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 307. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1000  —  307. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um málefni aldraðra, lögum um heilbrigðisþjónustu,
lögum um almannatryggingar og lögum um kosningar til Alþingis
(sameining vistunarmatsnefnda).

(Eftir 2. umræðu, 15. mars.)


I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum.
1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
     a.      Í stað orðsins „Vistmaður“ í 2. tölul. og sama orðs hvarvetna annars staðar í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarmynd og með eða án greinis eftir atvikum: heimilismaður.
     b.      Í stað orðsins „Vistunarmat“ í 4. tölul. kemur: Færni- og heilsumat.
     c.      Í stað orðsins „vistun“ í 4. tölul. og sama orðs hvarvetna annars staðar í lögunum kemur: dvöl.
     d.      Í stað orðsins „Vistmannaráð“ í 6. tölul. og sama orðs hvarvetna annars staðar í lögunum kemur: ráð heimilismanna.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
     a.      Í stað orðsins „dagvista“ í 1. tölul. 2. mgr. og sama orðs hvarvetna annars staðar í lögunum, nema í 3. tölul. 2. mgr. 9. gr. og í fyrra sinn í fyrri málslið 19. gr., kemur, í viðeigandi beygingarmynd: dagdvöl.
     b.      Í stað orðhlutans „dagvistar-“ í 3. tölul. 2. mgr. kemur: dagdvalar og.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. laganna:
     a.      Í stað orðsins „skammtímavistunar“ í 5. málsl. 2. tölul. 1. mgr. kemur: hvíldarinnlagnar.
     b.      Í stað orðsins „vista“ í 3. mgr. kemur: samþykkja dvöl.

4. gr.

    15. gr. laganna orðast svo ásamt fyrirsögn:
            

Færni- og heilsumat.


    Stjórn dagdvalar, sbr. 3. tölul. 13. gr., tekur ákvörðun um dagdvöl og ásamt stjórn stofnunar fyrir aldraða, sbr. 14. gr., um dvöl fólks á viðkomandi stofnun enda hafi öðrum skilyrðum þessarar greinar verið fullnægt.
    Áður en kemur að dvöl einstaklings í hjúkrunar- eða dvalarrými, samkvæmt umsókn hans, skulu öll önnur raunhæf úrræði sem miða að því að fólk geti búið í heimahúsi vera fullreynd. Enginn getur dvalið til langframa í hjúkrunarrými eða dvalarrými nema að undangengnu mati færni- og heilsumatsnefndar á þörf fyrir slíka dvöl. Ráðherra skipar þriggja manna nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi til að annast matið. Hver nefnd skal skipuð lækni með sérmenntun í öldrunar- eða heimilislækningum eða langvinnum sjúkdómum, hjúkrunarfræðingi með þekkingu á öldrunarþjónustu eða hjúkrun langveikra og félagsráðgjafa, sálfræðingi eða öldrunarfræðingi með þekkingu á félagsþjónustu við aldraða eða langveikt fólk. Færni- og heilsumatsnefnd í fjölmennum heilbrigðisumdæmum má þó skipa sex mönnum, enda uppfylli nefndarmenn sömu menntunarskilyrði og í þriggja manna nefnd og jafnvægi milli sérþekkingarinnar sé það sama. Skipa skal varamenn sem uppfylla sömu menntunarskilyrði og aðalmenn. Við meðferð mála skal auk laga þessara farið að stjórnsýslulögum.
    Færni- og heilsumatsnefnd skal einnig meta þörf einstaklings sem býr í heimahúsi fyrir hvíldarinnlögn, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 14. gr., í allt að átta vikur samkvæmt umsókn hans.
    Hafi aldraður einstaklingur verið lengur en sex vikur á sjúkrahúsi án sérstakrar meðferðar skal meta þörf hans fyrir dvöl á öldrunarstofnun eða fyrir önnur úrræði.
    Ráðherra kveður nánar á um færni- og heilsumat í reglugerð.

5. gr.

     Í stað orðanna „þjónustu dagvistar njóta“ í fyrri málslið 19. gr. laganna kemur: njóta þjónustu dagdvalar.

6. gr.

    Í stað orðsins „vistunarframlag“ í 2. málsl. 1. mgr. 21. gr. laganna og sama orðs hvarvetna annars staðar í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarmynd og með eða án greinis eftir atvikum: dvalarframlag.

II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum.
7. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. laganna:
     a.      2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Enginn getur dvalið til langframa í hjúkrunarrými nema að undangengnu mati færni- og heilsumatsnefndar á þörf fyrir dvöl samkvæmt lögum um málefni aldraðra.
     b.      2. og 3. mgr. falla brott.

III. KAFLI
Breyting á lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum.
8. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 48. gr. laganna:
     a.      Í stað orðsins „vistin“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: dvölin.
     b.      Í stað orðsins „vistunarframlag“ í 2. og 3. málsl. 6. mgr. kemur: dvalarframlag.
     c.      Í stað orðsins „vistmanns“ í 3. málsl. 6. mgr. kemur: heimilismanns.
     d.      Í stað orðsins „vistun“ í 7. mgr. kemur: dvöl.

IV. KAFLI
Breyting á lögum nr. 24/2000, um kosningar til Alþingis, með síðari breytingum.

9. gr.

    Í stað orðanna „á dvalarheimili aldraðra og“ í 2. mgr. 58. gr. laganna kemur: eða er heimilismaður á dvalarheimili aldraðra eða.

V. KAFLI
Gildistaka.
10. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. júní 2012.