Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 631. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1007  —  631. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um aðgerðir til lækkunar á húshitunarkostnaði.



Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hver er afstaða ráðherra til þeirra tillagna sem fram koma í skýrslu starfshóps um breytingar á niðurgreiðslum til húshitunar sem lögð var fram í desember sl.?
     2.      Má gera ráð fyrir að lagt verði fram frumvarp á þessu þingi til þess að hrinda í framkvæmd þessum tillögum eða öðrum um lækkun húshitunarkostnaðar og sé svo, hvenær er stefnt að því að slíkar ráðstafanir taki gildi?