140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1034 — 273. mál.
Frumvarp til laga
um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála.
(Eftir 2. umræðu, 21. mars.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Hlutverk og markmið.
Vegagerðin hefur það hlutverk að byggja upp, viðhalda og reka samgöngukerfi ríkisins samkvæmt lögum þessum og öðrum lögum sem stofnunin starfar eftir.
Vegagerðin skal í starfsemi sinni stuðla að öruggum, sjálfbærum, greiðum og hagkvæmum samgöngum. Þá skal stofnunin stuðla að því að samgöngur þróist í samræmi við samfélagsleg og umhverfisleg markmið.
2. gr.
Skipulag stofnunarinnar o.fl.
Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og rekstri stofnunarinnar, mótar helstu áherslur, verkefni og starfshætti og annast daglega stjórn hennar.
Forstjóri ræður annað starfsfólk til stofnunarinnar.
Vegagerðin skal árlega birta skýrslu um starfsemi sína.
3. gr.
Samvinna og samráð.
Ráðherra getur sett á stofn fagráð með fulltrúum stofnunarinnar, hagsmunaaðila og annarra aðila í þeim tilgangi að vera vettvangur samráðs og upplýsingaskipta á fagsviði stofnunarinnar.
II. KAFLI
Verkefni.
4. gr.
Almennt.
Stofnunin tekur þátt í gerð samgönguáætlunar. Stofnunin mótar almenna stefnu og viðmið um byggingu, viðhald og þjónustu samgöngumannvirkja, annast forsendugreiningu og frumrannsóknir vegna þeirra, greinir og ber saman ólíka valkosti, gerir tillögu að forgangsröðun verkefna, frumhannar mannvirki og metur kostnað, arðsemi og umhverfisáhrif þeirra. Þá sér stofnunin um framkvæmd samgönguáætlunar, þ.e. verkhönnun framkvæmda, útboð verkefna, samninga við verktaka, eftirlit á framkvæmdatíma, skilamat og uppgjör.
Vegagerðin skal annast upplýsingamiðlun um samgöngumál eftir því sem við á.
Stofnunin annast rekstur tölvu- og upplýsingakerfa er lúta að starfsemi stofnunarinnar.
Stofnunin tekur afstöðu til tillagna sem berast frá rannsóknarnefnd samgönguslysa.
5. gr.
Framkvæmdir og viðhald samgöngumannvirkja.
Stofnunin annast viðhald þeirra mannvirkja sem hún fer með eignarhald á.
6. gr.
Eignarhald og rekstur.
1. rekstri og umsjón vegakerfisins,
2. eftirliti með burðarþoli vega og brúa og ákveður takmarkanir á heildarþunga og ásþunga ökutækja, ef þörf krefur,
3. rekstri og viðhaldi vita og sjómerkja,
4. rekstri og viðhaldi leiðsögu-, vöktunar-, upplýsinga- og eftirlitskerfa,
5. rekstri Landeyjahafnar og ferjubryggja.
Vegagerðinni er heimilt að taka að sér uppbyggingu, rekstur og viðhald flugvalla samkvæmt samningi við þar til bæra aðila.
7. gr.
Almenningssamgöngur.
1. útboð, gerð og eftirfylgd þjónustusamninga vegna almenningssamgangna,
2. umsjón með styrkveitingum vegna almenningssamgangna,
3. umsjón með ferjum og öðrum eignum ríkisins sem nýttar eru í almenningssamgöngum.
8. gr.
Samgönguöryggi.
1. vinna að bættu öryggi innviða samgöngukerfisins með öryggisstjórnun, greiningu á öryggisþáttum og slysum og aðgerðaáætlunum,
2. annast framkvæmd öryggisstjórnunar samgöngumannvirkja og samgöngukerfa,
3. annast ráðgjöf um umbætur sem stuðla að auknu samgönguöryggi.
9. gr.
Alþjóðlegt samstarf.
10. gr.
Rannsóknir og þróunarstarf.
Ráðherra skal setja reglugerð um hlutverk Vegagerðarinnar á sviði rannsókna, greiningar og þróunar.
11. gr.
Framsal verkefna.
III. KAFLI
Gjaldtaka.
12. gr.
Fjármögnun.
Auk þessa er heimilt að ákveða í samgönguáætlun að veghald einstakra kafla þjóðvega skuli kostað að hluta eða öllu leyti með veggjaldi af umferð eða með notkunargjaldi.
Einnig er stofnuninni heimilt að taka gjald fyrir tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning verka sem stofnunin hefur umsjón með.
13. gr.
Tekjur.
Gjaldtaka skv. 1. mgr. skal ákveðin í viðmiðunargjaldskrá sem Vegagerðin setur.
Þann hluta starfsemi Vegagerðarinnar sem rekinn er á viðskiptagrundvelli á samkeppnismarkaði skal skilja fjárhagslega frá öðrum þáttum rekstrarins og skal endurgjald taka mið af markaðsverði. Sala á slíkri þjónustu skal byggjast á samningum.
Ráðherra staðfestir gjaldskrá samkvæmt þessari grein.
IV. KAFLI
Ýmis ákvæði.
14. gr.
Rekstur o.fl.
Stofnuninni er heimilt, með samþykki ráðherra, að stofna félag eða félög sem hafa það hlutverk að sinna framkvæmda- og þjónustuverkefnum stofnunarinnar.
15. gr.
Kæruheimild.
16. gr.
Þagnarskylda og veiting upplýsinga.
17. gr.
Gildistaka og brottfallin lög.
Ákvæði til bráðabirgða.
1. Starfsmönnum stofnana, sem sinnt hafa þeim verkefnum sem munu heyra undir Vegagerðina samkvæmt lögum þessum og eru í starfi við gildistöku laga þessara, skal boðið starf hjá hinni nýju stofnun. Um réttarvernd starfsmanna til starfa hjá Vegagerðinni fer eftir ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum, og laga um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum, nr. 72/ 2002, eins og við á hverju sinni. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, gilda ekki um störf sem ráðið er í samkvæmt þessum tölulið.
2. Þrátt fyrir 1. tölul. ákvæðis til bráðabirgða verða störf forstöðumanna þeirra stofnana sem sameinast í Vegagerðina lögð niður þegar lög þessi koma til framkvæmda. Ráðherra er heimilt að taka ákvörðun um að flytja forstöðumann úr hópi núverandi forstöðumanna samgöngustofnana í embætti forstjóra Vegagerðarinnar, sbr. 36. gr. laga nr. 70/1996. Þeim forstöðumönnum sem ekki hljóta áframhaldandi skipun skulu boðin störf í Vegagerðinni eða Farsýslunni.