Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 547. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1057  —  547. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Helga Hjörvar um starfsmannastefnu ráðuneytis og undirstofnana varðandi atvinnuþátttöku fatlaðs fólks.


     1.      Hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess markað sér stefnu sem atvinnuveitendur um hvernig auðvelda megi ráðningar fatlaðs fólks í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992, sbr. 29. og 32. gr. laganna og 27. gr. sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks?
    Hvorki ráðuneytið né undirstofnanir þess hafa sem atvinnuveitendur markað stefnu varðandi ráðningar fatlaðra í samræmi við lög nr. 59/1992 eða sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ráðuneytið fylgir starfsmannastefnu Stjórnarráðsins þar sem tiltekið er að gætt skuli jafnræðis í ráðningarferli í samræmi við gildandi lög og reglur.

     2.      Hafa ráðuneytið og undirstofnanir þess gripið til viðeigandi ráðstafana til að ráða fatlað fólk til starfa og þá hvaða?
    Almennt hefur ekki verið gripið til sérstakra ráðstafana til að ráða fatlað fólk til starfa. Í svörum stofnana við erindi ráðuneytisins í tilefni af fyrirspurninni kom fram að hjá flestum stofnunum er þó hugað vel að aðgengi fatlaðs fólks.

     3.      Hafa forstöðumönnum ráðuneytisins og undirstofnana verið kynnt ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um viðeigandi ráðstafanir til að auka atvinnuþátttöku fatlaðs fólks?
    Hvorki forstöðumönnum ráðuneytisins né forstöðumönnum undirstofnana hafa verið kynnt ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um viðeigandi ráðstafanir til að auka atvinnuþátttöku fatlaðs fólks.

     4.      Hafa forstöðumönnum ráðuneytisins og undirstofnana verið kynntar breyttar áherslur hvað varðar þátt umhverfishindrana og viðhorfstengdra tálma í fötlun?
    Hvorki forstöðumönnum ráðuneytisins né forstöðumönnum undirstofnana þess hafa verið kynntar breyttar áherslur hvað varðar þátt umhverfishindrana og viðhorfstengdra tálma í fötlun.

     5.      Hversu margir fatlaðir starfa hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess og hversu hátt hlutfall er það af starfsmannafjölda þeirra?

    Enginn fatlaður starfsmaður er hjá ráðuneytinu, Einkaleyfastofu, Samkeppniseftirliti eða Seðlabanka. Hjá Hagstofu starfar einn fatlaður starfsmaður eða 1% af starfsmannafjölda og hjá Fjármálaeftirlitinu starfar einn fatlaður starfsmaður eða 0,8% af starfsmannafjölda.