Þingskjal 1072 — 666. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt,
með síðari breytingum (undanþágur, endurgreiðslur o.fl.).
(Lagt fyrir Alþingi á 140. löggjafarþingi 2011–2012.)
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:a. Í stað orðanna „sem opinber aðili hefur einkaleyfi á, samkvæmt póstlögum, nr. 33/1986“ í 7. tölul. 3. mgr. kemur: sem íslenska ríkið hefur einkarétt á samkvæmt lögum um póstþjónustu, nr. 19/2002.
b. Í stað orðanna „fjárhagsleg áhætta“ í 5. mgr. kemur: fjárhagslegri áhættu.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 34. gr. laganna:a. Í stað orðanna „nr. 55/1987“ í 2. mgr. kemur: nr. 88/2005.
b. Í stað orðanna „109. gr. tollalaga, nr. 55/1987“ í 3. mgr. kemur: XV. kafla tollalaga, nr. 88/2005.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 36. gr. laganna:a. 1. tölul. 1. mgr. orðast svo: Vörur sem eru tollfrjálsar eða undanþegnar tolli skv. 4. og 6. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum.
b. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Fella skal niður, lækka eða endurgreiða virðisaukaskatt í þeim tilvikum sem talin eru upp í 2.–12. tölul. 1. mgr. 7. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum, að uppfylltum þeim skilyrðum sem þar eru tilgreind.
c. 2. mgr. orðast svo:
Úrskurður tollstjóra um niðurfellingu, lækkun eða endurgreiðslu virðisaukaskatts skv. 1.–6. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. sætir kæru til ríkistollanefndar í samræmi við 118. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum.
4. gr.
Í stað orðanna „nr. 55/1987“ í 2. mgr. 37. gr. laganna kemur: nr. 88/2005.5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 42. gr. laganna:a. Í stað orðanna „við kaup“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: af innflutningi eða kaupum.
b. Í stað orðanna „b-lið 8. tölul. 1. mgr. 5. gr. tollalaga, nr. 55/1987, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 797/2000, um undanþágu aðflutningsgjalda í ýmsum tilvikum“ í 7. mgr. kemur: b-lið 8. tölul. 1. mgr. 6. gr. tollalaga, nr. 88/2005, sbr. 33. gr. reglugerðar nr. 630/2008, um ýmis tollfríðindi.
c. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Endurgreiða skal sveitarfélögum og stofnunum eða félögum alfarið í þeirra eigu sem sinna lögbundnu hlutverki sveitarfélags á sviði brunavarna, brunamála eða mengunarvarna virðisaukaskatt af innflutningi eða kaupum á eftirfarandi ökutækjum og tækjabúnaði:
1. Dælubifreiðum, tækjabifreiðum, vatnsflutningabifreiðum, björgunarbifreiðum, þ.e. mannflutningabifreiðum og stiga- og ranabifreiðum.
2. Slökkvidælum, reykblásurum, rafstöðvum, slöngum, börkum, tækjum og öðrum tilheyrandi búnaði.
3. Klippum, glennum, tjökkum, dælum og öðrum tilheyrandi sérhæfðum björgunarbúnaði sem er notaður við björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum.
4. Ytri hlífðarfatnaði vegna slökkvistarfa og mengunaróhappa sem og reykköfunartækjum og tækjabúnaði þeim tengdum.
5. Tækjabúnaði sem notaður er vegna mengunaróhappa og fjarskiptabúnaði fyrir slökkvilið svo sem boðtækjum, talstöðvum og farsímum.
Skilyrði endurgreiðslu samkvæmt grein þessari er að seljandi vöru og þjónustu sé skráður á virðisaukaskattsskrá á því tímamarki þegar viðskipti eiga sér stað.
6. gr.
Við 43. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Skilyrði endurgreiðslu samkvæmt grein þessari er að seljandi vöru og þjónustu sé skráður á virðisaukaskattsskrá á því tímamarki þegar viðskipti eiga sér stað.
7. gr.
48. gr. laganna orðast svo:Sala í tollfrjálsum verslunum, sbr. XIII. kafla tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum, telst sala úr landi í skilningi laga þessara.
8. gr.
2. mgr. 49. gr. laganna fellur brott.9. gr.
Ákvæði til bráðabirgða XI í lögunum fellur brott.10. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Við innflutning og skattskylda sölu nýrrar rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiðar er heimilt við útreikning virðisaukaskatts að lækka tollverð eða telja til undanþeginnar veltu fjárhæð að ákveðnu hámarki eins og nánar er kveðið á um í ákvæði þessu.
Vegna álagningar virðisaukaskatts við tollafgreiðslu er tollstjóra heimilt að lækka tollverð rafmagns- eða vetnisbifreiðar að hámarki um 6.000.000 kr. og tengiltvinnbifreiðar að hámarki um 4.000.000 kr.
Við skattskylda sölu bifreiðar er skattaðila heimilt að undanþiggja frá skattskyldri veltu fjárhæð að hámarki 6.000.000 kr. vegna rafmagns- eða vetnisbifreiðar og að hámarki 4.000.000 kr. vegna tengiltvinnbifreiðar. Nýti skattaðili sér þessa heimild ber honum samhliða skilum á virðisaukaskattsskýrslu að tilkynna ríkisskattstjóra á hverju uppgjörstímabili um að slík sala hafi átt sér stað á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.
Skilyrði undanþágu samkvæmt ákvæði þessu eru eftirfarandi:
1. Ökutækið sé skilgreint í ökutækjaflokka L6e, L7e, M1, M1g og N1 samkvæmt reglugerð nr. 822/2004, um gerð og búnað ökutækja.
2. Við innflutning og skattskylda sölu tengiltvinnbifreiðar skal skráð losun slíkrar bifreiðar á koltvísýringi vera 50 g eða minna á hvern ekinn kílómetra.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að kveða nánar á um framkvæmd og skilyrði undanþágunnar.
Ákvæði þetta gildir til og með 31. desember 2013.
11. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Endurgreiða skal virðisaukaskatt skv. 1. efnismgr. c-liðar 5. gr. frá og með 1. janúar 2012.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
1. Tilefni lagasetningar.
Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar breytingar á lögum um virðisaukaskatt. Tilefni frumvarpsins er að meginstefnu til tvíþætt. Í fyrsta lagi er tilefni frumvarpsins nauðsynleg breyting á lögunum vegna endurgreiðslu virðisaukaskatts til sveitarfélaga og stofnana eða félaga sem alfarið eru í þeirra eigu vegna innflutnings eða kaupa á sérútbúnum ökutækjum, tækjabúnaði og hlífðarfatnaði vegna slökkvistarfa o.fl. Um er að ræða breytingu sem lögð er til í kjölfar samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga.
Í öðru lagi er lögð til tímabundin breyting á lögunum til og með 31. desember 2013. Markmið tillagnanna er að efla og flýta fyrir orkuskiptum í samgöngum. Ein leiðin að því er að gera umrædd ökutæki að vænlegri kosti en verið hefur og styrkja samkeppnishæfni umræddra ökutækja gagnvart hefðbundnum bensín- og dísilknúnum ökutækjum. Með þetta að leiðarljósi er lagt til að við innflutning eða skattskylda sölu nýrra rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiða verði heimilt við útreikning virðisaukaskatts að lækka tollverð eða telja til undanþeginnar veltu fjárhæð upp að ákveðnu hámarki. Við mat á þessum fjárhæðum er litið til innkaupsverðs og rekstrarkostnaðar á líftíma ökutækjanna samanborið við innkaupsverð og rekstrarkostnað á líftíma sambærilegra bensín- og dísilbifreiða. Jafnframt er litið til losunar þessara bifreiða á koltvísýringi. Með vísan til þess er því lagt til að heimild til niðurfellingar virðisaukaskatts samkvæmt ákvæðinu nái einungis til tengiltvinnbifreiða með skráða losun koltvísýrings 50 g eða minna á hvern ekinn kílómetra.
Önnur ákvæði frumvarpsins lúta flest að breytingum sem lagðar eru til út frá tillögum embættis ríkisskattstjóra. Um er að ræða breytingar er varða skilyrði fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts sem og breytingar á lagatilvísunum og orðalagi á tilteknum ákvæðum laganna.
2. Meginefni frumvarpsins.
Í fyrsta lagi er lögð til breyting á lögunum í kjölfar samkomulags frá 5. október 2011 þar sem fjármálaráðherra, innanríkisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra af hálfu ríkisins og Samband íslenskra sveitarfélaga af hálfu sveitarfélaga gerðu með sér samkomulag um tímabundna breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Í því ákvæði samkomulagsins sem lýtur að endurgreiðslu virðisaukaskatts voru aðilar sammála um að frá og með árinu 2012 skuli komið á fyrirkomulagi sem felst í því að endurgreiðslubeiðnir vegna kaupa á slökkvibúnaði verði afgreiddar með sama hætti og beiðnir björgunarsveita og annarra þeirra sem njóta slíkrar ívilnunar gagnvart virðisaukaskatti. Það var skilningur samningsaðila að það ákvæði samkomulagsins sem varðaði endurgreiðslu virðisaukaskatts til sveitarfélaga frá janúar 2012 skyldi vera ótímabundið þrátt fyrir heiti samkomulagsins. Í frumvarpinu er í samræmi við samkomulagið lagt til að sveitarfélögum og stofnunum eða félögum alfarið í þeirra eigu sem sinna lögbundnu hlutverki sveitarfélags á sviði brunavarna, brunamála eða mengunarvarna verði gert kleift að fá endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna kaupa á sérútbúnum ökutækjum til slökkvistarfa sem og vegna tiltekinna tækja, hlífðarfatnaðar og slökkvibúnaðar.
Í öðru lagi er lögð til tímabundin breyting á lögunum til og með 31. desember 2013 þess efnis að sala rafmagns-, vetnis- og tiltekinna tengiltvinnbifreiða verði undanþegin virðisaukaskatti upp að ákveðnu hámarki. Lagt er til að við innflutning eða skattskylda sölu nýrrar rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiðar verði heimilt við útreikning virðisaukaskatts að lækka tollverð eða telja til undanþeginnar veltu fjárhæð upp að ákveðnu hámarki. Við mat á þessum fjárhæðum er litið til innkaupsverðs og rekstrarkostnaðar á líftíma ökutækjanna samanborið við innkaupsverð og rekstrarkostnað á líftíma sambærilegra bensín- og dísilbifreiða. Jafnframt er litið til losunar þessara bifreiða á koltvísýringi. Með vísan til þess er því lagt til að einungis tengiltvinnbifreiðar með skráða losun koltvísýrings 50 g eða minna á hvern ekinn kílómetra geti notið niðurfellingar virðisaukaskatts samkvæmt ákvæðinu. Markmið breytingarinnar er þannig að styrkja samkeppnishæfni umræddra ökutækja gagnvart hefðbundnum bensín- og dísilknúnum ökutækjum með það að markmiði að efla og flýta fyrir orkuskiptum í samgöngum.
Tæknilausnir á borð við rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiðar eru enn það kostnaðarsamar að litlar líkur eru á að ökutæki sem búa yfir slíkri tækni komist í almenna dreifingu á næstu missirum og árum. Á sama tíma er til mikils að vinna fyrir Ísland með þeim umhverfislega ávinningi sem af almennri notkun slíkrar tækni getur hlotist. Í frumvarpinu eru því lagðar til frekari ívilnanir vegna ökutækja af þessu tagi í von um að dreifing þessara ökutækja verði útbreiddari, notkun almennari og að sú þróun eigi sér stað fyrr en ella hefði orðið.
Í þriðja lagi er lagt til að endurgreiðsla á virðisaukaskatti skv. 42. og 43. gr. laga nr. 50/ 1988 verði háð því skilyrði að seljandi viðkomandi vöru eða þjónustu sé skráður á virðisaukaskattsskrá.
Aðrar tillögur að breytingum eiga það sameiginlegt að varða það sem kallað hefur verið lagahreinsun. Með þeim eru meðal annars tilvísanir til annarra laga leiðréttar og úrelt ákvæði felld brott.
3. Samráð og mat á áhrifum.
Frumvarpið er samið í fjármálaráðuneytinu að höfðu samráði við iðnaðarráðuneytið, embætti ríkisskattstjóra og embætti tollstjóra. Auk þess var haft samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga vegna ákvæðis um endurgreiðslur á virðisaukaskatti vegna slökkvibúnaðar.
Umsagnir framangreindra aðila voru að mestu leyti jákvæðar. Tollstjóri taldi ekki þörf á að gera athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins. Frá ríkisskattstjóra bárust nokkrar minni háttar athugasemdir við frumvarpið sem tekið var tillit til. Tekið var tillit þeirrar athugasemdar ríkisskattstjóra að ekki væri að finna takmarkanir á eignarhluta sveitarfélaga í stofnunum og félögum sem sinna lögbundnu hlutverki sveitarfélaga á sviði brunavarna, brunamála eða mengunarvarna. Í samræmi við athugasemd ríkisskattstjóra er lagt til að endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna slökkvibúnaðar o.fl. skuli eingöngu ná til sveitarfélaga og stofnana og félaga sem eru alfarið í eigu sveitarfélaga. Tekið var tillit til umsagnar ríkisskattstjóra vegna ákvæðis til bráðabirgða er lýtur að rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiðum. Í samræmi við athugasemd ríkisskattstjóra er lagt til að við sölu slíkra bifreiða skuli hluti skattverðs upp að ákveðnu hámarki vera undanþeginn virðisaukaskatti.
Jafnframt var tekið tillit til athugasemdar Sambands íslenskra sveitarfélaga er laut að því að tiltaka með skýrari hætti þau tæki sem hægt er að krefjast endurgreiðslu virðisaukaskatts af vegna björgunar á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum með sérhæfðum björgunarbúnaði.
Efni frumvarpsins gefur ekki tilefni til að ætla að tillögur þess stangist á við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar, þ.m.t. vegna EES-samningsins. Þær breytingar sem lúta að ívilnun vegna rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiða ber þó að tilkynna til Eftirlitsstofnunar EFTA.
Þær tillögur að lagabreytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu í 1.–8. gr. munu ekki hafa teljandi áhrif á útgjöld og tekjur ríkissjóðs verði frumvarpið óbreytt að lögum. Hins vegar er talið að breytingar frumvarpsins í 9. og 10. gr. muni hafa áhrif á tekjur ríkissjóðs í formi tapaðra tekna. Alls óvíst er hversu mikill innflutningur rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiða hefði verið án fyrirhugaðra breytinga. Undanþágan mun líklega gera það að verkum að aukning verði í innflutningi þessara ökutækja á kostnað hefðbundinna bensín- og dísilknúinna ökutækja. Vegna þessarar óvissu er nokkrum erfiðleikum háð að meta kostnað fyrirhugaðra breytinga.
Ekki er talið að þörf sé á sérstöku kostnaðarmati í samræmi við 129. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, vegna endurgreiðslu virðisaukaskatts til slökkviliða. Samkvæmt fjárlögum síðustu ára hefur fjármálaráðherra verið veitt heimild til að endurgreiða sveitarfélögum, eða opinberum félögum á þeirra vegum, virðisaukaskatt vegna kaupa á nýjum slökkvibifreiðum og búnaði slökkviliða. Í frumvarpi þessu er lagt til að endurgreiða skuli virðisaukaskatt vegna tiltekinna ökutækja burt séð frá því hvort um ný eða notuð ökutæki er að ræða. Hins vegar er lagt til að þau ökutæki, tæki og annar búnaður sem um ræðir verði tæmandi talinn í ákvæðinu. Í ljósi þessa verður að telja að fyrirhugaðar breytingar vegna endurgreiðslu virðisaukaskatts til slökkviliða hafi lítil áhrif á fjárhag sveitarfélaga. Að þessu sögðu er ekki talin þörf á sérstöku kostnaðarmati vegna þessa.
Sá ávinningur sem felst í samþykkt frumvarpsins birtist meðal annars í þeim umhverfisvæna ávinningi sem felst í lækkun eða undanþágu virðisaukaskatts af innflutningi eða sölu rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiða. Jafnframt felst ávinningurinn í því að lögin verða skýrari og gagnsærri þar sem tilvísanir til brottfallinna laga eru felldar brott og vísað er til núgildandi lagaákvæða þar sem það á við.
Hugsanleg neikvæð áhrif frumvarpsins lúta einna helst að auknum útgjöldum vegna tímabundins ákvæðis vegna lækkunar eða undanþágu virðisaukaskatts af innflutningi eða sölu rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiða. Jafnframt eru gerðar auknar kröfur fyrir endurgreiðslu á virðisaukaskatti. Hins vegar verður að telja að jákvæð áhrif á stöðu ríkissjóðs vegi þyngra vegna endurgreiðslna þar sem ríkissjóður endurgreiðir oft og tíðum háar fjárhæðir án þess að seljandi vöru eða þjónustu sé skráður á virðisaukaskattsskrá og skilar þar með engum virðisaukaskatti í ríkissjóð. Jafnframt er ávinningur af samþykkt frumvarpsins fyrir sveitarfélögin. Af þessu öllu verður að telja að ávinningurinn af samþykkt frumvarpsins verði mun meiri en hugsanleg neikvæð áhrif þess.
Hugsanleg neikvæð áhrif frumvarpsins lúta einna helst að auknum útgjöldum vegna tímabundins ákvæðis varðandi lækkun eða undanþágu virðisaukaskatts af innflutningi eða sölu rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiða. Aftur á móti verður að telja að þær auknu kröfur sem lagðar eru til fyrir endurgreiðslu á virðisaukaskatti muni að einhverju leyti vega upp á móti þeim útgjöldum. Samkvæmt núgildandi ákvæðum 42. og 43. gr. laganna er ekki heimilt að synja um endurgreiðslu virðisaukaskatts þótt seljandi viðkomandi vöru eða þjónustu sé ekki skráður á virðisaukaskattsskrá uppfylli sölureikningur hans form- og efnisskilyrði laganna. Með 5. og 6. gr. frumvarpsins er hins vegar komið í veg fyrir að ríkissjóður verði af tekjum af þessum sökum. Jafnframt er frumvarpið til hagsbóta fyrir sveitarfélögin. Að öllu þessu virtu verður að telja að ávinningurinn af samþykkt frumvarpsins verði mun meiri en hugsanleg neikvæð áhrif þess.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Lögð er til breyting á 7. tölul. 3. mgr. 2. gr. laganna. Lagt er til að lagatilvísun í töluliðnum verði breytt á þann veg að vísað verði til núgildandi laga um póstþjónustu, nr. 19/ 2002, í stað eldri póstlaga, nr. 33/1986. Einnig er lögð til orðalagsbreyting á ákvæðinu sem samræmist núgildandi lögum um póstþjónustu. Af breytingunni leiðir að rekstrarleyfishafi einkaréttar ríkisins fellur undir ákvæðið.
Í ákvæðinu er beyging orða í 5. mgr. 2. gr. laganna færð í rétt horf.
Um 2. gr.
Lagt er til að tilvísun til eldri tollalaga, nr. 55/1987, í 1. og 2. mgr. 34. gr. laganna verði breytt á þann hátt að vísað verði til núgildandi tollalaga, nr. 88/2005.
Í 2. mgr. 34. gr. er jafnframt lagt til að í stað tilvísunar til 109. gr. eldri tollalaga, nr. 55/1987, verði vísað til þeirra ákvæða XV. kafla tollalaga, nr. 88/2005, er varða greiðslufrest aðflutningsgjalda af innfluttum vörum.
Um 3. og 4. gr.
Lögð er til breyting á lagatilvísun í 1. tölul. 1. mgr. 36. gr. laganna á þann veg að tilvísun til eldri tollalaga, nr. 55/1987, verði breytt í tilvísun til núgildandi tollalaga, nr. 88/2005, ásamt því að vísað verði til sambærilegra ákvæða þeirra laga. Einnig er lögð til breyting á 2. mgr. 36. gr. laganna þannig að úrskurðir tollstjóra um niðurfellingu eða endurgreiðslu virðisaukaskatts skv. 1.–6. tölul. 1. mgr. ákvæðisins, sem sæta nú kæru til ráðherra, skuli sæta kæru til ríkistollanefndar. Sú breyting sem lögð er til er í samræmi við 118. gr. tollalaga, nr. 88/2005, sem kveður á um kærur til ríkistollanefndar.
Lagt er til að fella skuli niður, lækka eða endurgreiða virðisaukaskatt í þeim tilvikum sem talin eru upp í 2.–12. tölul. 1. mgr. 7. gr. tollalaga, nr. 88/2005. Niðurfelling, lækkun eða endurgreiðsla samkvæmt greininni skal haldast í hendur við að skilyrði 2.–12. tölul. 1. mgr. 7. gr. tollalaga í hverju tilviki fyrir sig séu uppfyllt. Um er að ræða uppfærslu á ákvæðum laganna til samræmis við breytingar á ákvæðum tollalaga, nr. 88/2005. Nánar er um að ræða tilgreind tilvik í tollalögum þar sem vörur njóta tollfrelsis, þ.e. þegar um er að ræða gjaldfrjálsan innflutning. Í tíð eldri tollalaga, nr. 55/1987, var heimilt að lækka, fella niður eða endurgreiða toll í tilteknum tilfellum, sbr. 2.–6. og 11. tölul. 1. mgr. 6. gr. tollalaga, nr. 55/ 1987, og voru þær vörur undanþegnar virðisaukaskatti við innflutning, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 36. gr. laga nr. 50/1988. Með tilkomu tollalaga, nr. 88/2005, hafa þessi ákvæði tollalaga tekið breytingum og önnur eðlislík ákvæði bæst við. Breytingin er því að hluta til nýmæli og er lögð til með vísan til þeirra breytinga sem orðið hafa á tollalögum og til að skjóta styrkari stoðum undir núverandi framkvæmd.
Loks er lögð til breyting á 2. mgr. 37. gr. laganna á þann hátt að lagatilvísun til eldri tollalaga, nr. 55/1987, verði breytt og vísað verði til núgildandi tollalaga, nr. 88/2005.
Um 5. og 6. gr.
Í ákvæðinu er í fyrsta lagi lögð til breyting á 3. mgr. 42. gr. laganna. Til skýringarauka er lagt til að innflutningur verði einnig tiltekinn í ákvæðinu en í þeim tilvikum sem ríki, sveitarfélög og stofnanir þeirra hafa flutt inn vörur sem falla undir málsgreinina hafa skattyfirvöld endurgreitt virðisaukaskatt vegna þeirra vara sem falla undir töluliði 3. mgr. ákvæðisins.
Í öðru lagi er lögð til breyting á 7. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, á þann veg að vísað verði til samsvarandi ákvæðis núgildandi tollalaga, nr. 88/2005, í stað ákvæðis eldri tollalaga, nr. 55/1987.
Í þriðja lagi er lagt til að nýrri málsgrein, sem verður 9. mgr. 42. gr., verði bætt við ákvæðið. Lagt er til, í samræmi við samkomulag frá 5. október 2011 milli ríkis og sveitarfélaga, að tollstjóri skuli endurgreiða sveitarfélögum og stofnunum eða félögum alfarið í þeirra eigu sem sinna lögbundnu hlutverki sveitarfélags á sviði brunavarna, brunamála eða mengunarvarna virðisaukaskatt af innflutningi eða kaupum á þeim ökutækjum og tækjabúnaði sem tilgreind eru í greininni. Í framkvæmd hafa mótast ákveðnar reglur varðandi endurgreiðslur virðisaukaskatts, sbr. lið 09-999 í fjárlögum fyrir árið 2012, sem hafðar hafa verið til hliðsjónar af Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna endurgreiðslna til sveitarfélaga eða slökkviliða á þeirra vegum. Í ákvæði þessu er að finna sambærilegar reglur þar sem talin eru upp í fimm töluliðum þau ökutæki og tækjabúnaður sem fallið geta undir ákvæðið. Undir ákvæðið falla því m.a. bifreiðar, tækjabúnaður, hlífðarfatnaður o.fl. sem nauðsynlegur er vegna slökkvistarfa. Í 5. tölul. ákvæðisins kemur fram að fjarskiptabúnaður fyrir slökkvilið svo sem boðtæki, talstöðvar og farsímar skuli falla undir ákvæðið. Eingöngu er um að ræða fjarskiptabúnað sem nauðsynlegur er vegna slökkvistarfa eða mengunarvarna. Fjarskiptabúnaður til annarra starfsmanna sveitarfélaga en þeirra sem sinna lögbundnum slökkvistörfum eða mengunarvörnum á vegum sveitarfélags fellur því ekki undir ákvæðið.
Í fjórða lagi eru lagðar til breytingar á 42. og 43. gr. laganna er varða skilyrði fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts. Lagt er til að tveimur nýjum málsgreinum verði bætt við ákvæðin sem verða 10. mgr. 42. gr. og 4. mgr. 43. gr. laganna. Lagt er til að sambærileg skilyrði og lögfest voru með 6. gr. laga nr. 163/2010, um breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, skuli gilda um skilyrði fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts. Með 6. gr. laga nr. 163/2010 var nýjum málslið bætt við 1. mgr. 16. gr. laganna er lýtur að skilyrði innskattsfrádráttar kaupanda vöru og þjónustu. Lögfest var að innskattsfrádráttur kaupanda sé háður því skilyrði að seljandi vöru og þjónustu sé skráður á virðisaukaskattsskrá á því tímamarki þegar viðskipti eiga sér stað. Með ákvæðinu er lagt til að samsvarandi skilyrði skuli gilda þegar aðilar sækja um endurgreiðslu virðisaukaskatts þannig að endurgreiðslan verði háð því skilyrði að seljandi vöru og þjónustu sé skráður á virðisaukaskattsskrá á því tímamarki sem viðskiptin eiga sér stað. Upp hafa komið mörg tilvik þar sem ríkissjóður endurgreiðir aðila virðisaukaskatt án þess að seljandi vöru eða þjónustu sé með opið virðisaukaskattsnúmer og skilar þar með ekki virðisaukaskatti í ríkissjóð. Á upplýsingavef ríkisskattstjóra er með einfaldri uppflettingu hægt að fá upplýsingar um það hverjir hafa opið virðisaukaskattsnúmer. Ákvæðið á því við þegar seljendum vöru og þjónustu ber að skrá sig á virðisaukaskattsskrá samkvæmt lögunum en tekur ekki til erlendra seljenda vöru og þjónustu sem eru ekki virðisaukaskattsskyldir hér á landi. Þar sem sú staða getur komið upp að virðisaukaskatti er ekki skilað í ríkissjóð en þrátt fyrir það endurgreiddur til kaupenda eru þessar breytingar lagðar til.
Um 7. gr.
Í ákvæðinu er lagt til að sá hluti 48. gr. laganna er lýtur að því að sala á skattskyldri vöru og þjónustu til varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, sbr. lög nr. 110/1951, um lagagildi varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna, teljist sala úr landi, í skilningi laganna, skuli falla brott. Þessi hluti ákvæðisins missti marks á árinu 2006 við brotthvarf varnarliðsins frá landinu. Jafnframt er í ákvæðinu lagt til að tilvísun til VIII. kafla eldri tollalaga, nr. 55/1987, verði breytt og að vísað verði til XIII. kafla núgildandi tollalaga, nr. 88/2005.
Um 8. gr.
Í ákvæðinu er lagt til að 2. mgr. 49. gr. laganna falli brott. Ekki er notast við ákvæðið í skattframkvæmd og hefur ríkisskattstjóra ekki borist virðisaukaskattsskýrsla á grundvelli ákvæðisins í fjölda ára. Samhliða brottfalli ákvæðisins verður reglugerð nr. 58/1991, um innheimtu virðisaukaskatts af dansleikjum og öðrum skemmtanaskattsskyldum samkomum, felld úr gildi. Breytingin felur í sér að um framtal og skil á virðisaukaskatti vegna dansleikjahalds fer eftir almennum reglum um framtal og skil á virðisaukaskatti.
Um 9. gr.
Lagt er til að bráðabirgðaákvæði XI falli brott. Í ákvæðinu er heimild til að fella niður eða endurgreiða virðisaukaskatt að fullu af vetnisbifreiðum, svo og sérhæfðum varahlutum í þær, sem fluttar eru inn í rannsóknarskyni og hafa í för með sér hverfandi mengun. Með vísan til þeirra breytinga sem lagðar eru til í 10. gr. frumvarpsins og varða vetnisbifreiðar er lagt til að ákvæði þetta skuli falla brott.
Um 10. gr.
Lagt er til í 1. mgr. ákvæðisins að við útreikning virðisaukaskatts við innflutning og skattskylda sölu nýrrar rafmagns-, vetnis eða tengiltvinnbifreiðar verði heimilt að lækka tollverð vegna innflutnings eða telja til undanþeginnar veltu vegna skattskyldrar sölu innan lands fjárhæð upp að ákveðnu hámarki að uppfylltum þeim skilyrðum sem kveðið er á um í ákvæðinu.
Í 1. mgr. er lagt til það skilyrði að um sé að ræða nýja bifreið. Miðað er við skilgreiningu reglugerðar nr. 822/2004, um gerð og búnað ökutækja, í því sambandi þar sem sambærileg skilyrði koma fyrir. Í reglugerðinni er að finna skilgreiningu á því hvaða ökutæki geti talist vera ný ökutæki þegar um er að ræða ökutæki sem eru 5.000 kg að leyfðri heildarþyngd eða minni. Þar kemur fram að bifreið sem fellur undir ökutækjaflokka ákvæðisins geti ekki talist vera ný bifreið eftir að hún hefur verið skráð almennri skráningu og ekið yfir 1.000 km. Þar sem þau ökutæki sem fallið geta undir ákvæðið eru ávallt 5.000 kg að leyfðri heildarþyngd eða minni skal notast við skilgreiningu reglugerðarinnar á hugtakinu „nýtt ökutæki“ þegar ákvarðað er hvort ökutæki sé nýtt eða notað.
Í 2. mgr. er lagt til að séu skilyrði ákvæðisins uppfyllt skuli tollstjóra, við útreikning og álagningu virðisaukaskatts af innflutningi, vera heimilt við tollafgreiðslu að lækka tollverð nýrrar rafmagns-, eða vetnisbifreiðar að hámarki um 6.000.000 kr. og tengiltvinnbifreiðar að hámarki um 4.000.000 kr. fyrir útreikning virðisaukaskatts. Heimildin skal gilda óháð því hvort innflytjandi ökutækis hafi heimild til að telja virðisaukaskatt af innflutningi ökutækis til innskatts.
Þessu má lýsa með eftirfarandi dæmi: Aðili flytur inn rafmagnsbifreið og tollverðið af henni nemur 10.000.000 kr. Við útreikning virðisaukaskatts er tollstjóra heimilt að draga frá fjárhæð að hámarki 6.000.000 kr. frá tollverði. Vegna innflutningsins ber því að reikna 25,5% virðisaukaskatt af 4.000.000. Aðilanum ber þannig að greiða virðisaukaskatt að fjárhæð 1.020.000 kr. í ríkissjóð að því gefnu að ekki sé um virðisaukaskattsskyldan aðila að ræða sem talið getur virðisaukaskattinn til innskatts. Ef aðilinn flytur aftur á móti rafmagnsbifreið inn til landsins og tollverðið af henni nemur 6.000.000 kr. er tollstjóra heimilt að draga 6.000.000 kr. frá tollverðinu. Í þessu tilfelli ber aðilanum ekki að greiða virðisaukaskatt í ríkissjóð vegna innflutnings bifreiðarinnar.
Í 3. mgr. ákvæðisins er kveðið á um hvernig leggja skuli á virðisaukaskatt við skattskylda sölu nýrrar rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiðar sem uppfyllir skilyrði ákvæðisins. Í ákvæðinu kemur fram að við skattskylda sölu rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiðar sé skattaðila heimilt að undanþiggja frá skattskyldri veltu fjárhæð að hámarki 6.000.000 kr. vegna sölu rafmagns- eða vetnisbifreiðar og að hámarki 4.000.000 kr. vegna sölu tengiltvinnbifreiðar. Sá hluti söluverðsins sem er undanþeginn skattskyldri veltu samkvæmt ákvæðinu ber því svokallaðan „núllskatt“, sbr. 12. gr. laganna.
Þessu má lýsa með eftirfarandi dæmi: Aðili selur rafmagnsbifreið fyrir 10.000.000 kr. Við útreikning á virðisaukaskatti vegna sölunnar er aðilanum heimilt að telja 6.000.000 kr. til undanþeginnar veltu. Af sölunni teljast því 4.000.000 kr. til skattskyldrar veltu sem ber að skattleggja með 25,5% virðisaukaskatti. Aðilanum ber því að skila virðisaukaskatti að fjárhæð 1.020.000 kr. í ríkissjóð. Ef söluverð bifreiðarinnar væri aftur á móti 6.000.000 kr. teldist öll fjárhæðin til undanþeginnar veltu.
Í 3. mgr. ákvæðisins kemur fram að ef skattaðili nýtir sér þessa heimild beri honum að tilkynna ríkisskattstjóra sérstaklega á hverju uppgjörstímabili að slík sala hafi átt sér stað á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Slík tilkynning getur til að mynda falist í því að skattaðili skili sundurliðuðum upplýsingum um fjölda seldra bifreiða og tegund þeirra, skráningarnúmer og fjölda ekinna kílómetra. Gert er ráð fyrir að tilkynningu þessari sé skilað samhliða skilum á virðisaukaskattsskýrslu vegna viðkomandi uppgjörstímabils.
Í 1. tölul. 4. mgr. er kveðið á um það hvaða ökutækjaflokkar falli undir ákvæðið. Fram kemur að eingöngu ökutæki sem skilgreind eru í ökutækjaflokkana L6e, L7e, M1, M1g og N1 samkvæmt reglugerð nr. 822/2004, um gerð og búnað ökutækja, skuli falla undir ákvæðið. Þar sem nokkrar tegundir rafmagnsbifreiða eru undir 550 kg að heildarþyngd falla þær undir ökutækjaflokkinn þung bifhjól. Án þeirrar afmörkunar á ökutækjaflokkum sem lögð er til mundu rafmagnsbifreiðar undir 550 kg ekki falla undir ákvæðið. Bifhjól á tveimur hjólum, svo sem vespur eða mótorhjól, falla ekki undir tilgreinda ökutækjaflokka.
Í 2. tölul. 4. mgr. er miðað við að heimilt sé við útreikning virðisaukaskatts við innflutning eða sölu tengiltvinnbifreiðar að lækka tollverð eða telja söluverð til undanþeginnar veltu upp að ákveðnu hámarki ef slík bifreið er með skráða losun koltvísýrings 50 g eða minna á hvern ekinn kílómetra. Gert er ráð fyrir að einföld athugun á skráningu á orkugjafa og losun koltvísýrings bifreiðar í ökutækjaskrá samkvæmt samræmingarvottorði veiti nægilega sönnun um þetta. Með samræmingarvottorði er átt við svokallað CoC-vottorð (e. Certificate of Confirmity) sem framleiðandi ökutækis gefur út þar sem staðfest er að ökutækið sé í samræmi við heildargerðarviðurkenningu, þ.e. uppfylli nauðsynlegar Evrópukröfur um gerð og búnað ökutækja. Þar sem rafmagns- og vetnisbifreiðar eru ekki með skráða losun á koltvísýringi skal skilyrði 2. tölul. 4. mgr. eingöngu gilda um tengiltvinnbifreiðar.
Samkvæmt 5. mgr. ákvæðisins er ráðherra heimilt að kveða nánar á um framkvæmd og skilyrði undanþágunnar í reglugerð.
Í 6. mgr. ákvæðisins er lagt til að ákvæðið skuli gilda út árið 2013.
Um 11. gr.
Í samræmi við samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga frá 5. október 2011 er lagt til að endurgreiða skuli virðisaukaskatt skv. 1. efnismgr. c-liðar 5. gr. frumvarpsins frá og með 1. janúar 2012. Að öðru leyti þarfnast ákvæðið ekki skýringa.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 50/1988,
um virðisaukaskatt, með síðari breytingum (undanþágur, endurgreiðslur o.fl.).
Í öðru lagi eru lagðar til breytingar á skilyrðum endurgreiðslna auk nokkurra orðalagsbreytinga á lögunum. Tillögurnar eru lagðar fram að frumkvæði embættis ríkisskattstjóra og eru ekki taldar hafa nein fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð.
Í þriðja lagi er lagt til að virðisaukaskattur verði felldur niður af innflutningi og sölu á bifreiðum sem að hluta eða öllu leyti eru knúnar ákveðnum innlendum orkugjöfum og ekki eru með losun koltvísýrings yfir 50 grömmum á hvern ekinn kílómetra. Í frumvarpinu er sett hámark á þá fjárhæð sem felld verður niður og er gert ráð fyrir að af innflutningi eða sölu rafmagns- og vetnisbifreiða verði það 1,5 m.kr. en 1 m.kr. af tengiltvinnbifreiðum. Ákvæðið er tímabundið og gildir út árið 2013. Ökutæki af þessari gerð hafa verið talsvert dýrari í innkaupum en aðrar. Með breytingunni er ætlunin að styrkja samkeppnishæfni umræddra ökutækja gagnvart bifreiðum sem knúnar eru bensín- eða dísilvélum og stuðla þannig að orkuskiptum í samgöngum á Íslandi. Við útreikning fjárhæða til endurgreiðslu var haft til hliðsjónar innkaupsverð og rekstrarkostnaður á líftíma slíkra vistvænna ökutækja samanborið við innkaupsverð og rekstrarkostnað á líftíma sambærilegra bensín- og dísilbifreiða með það fyrir augum að heildarkostnaður yfir líftíma bifreiðanna yrði svipaður. Nokkrum erfiðleikum er bundið að meta mögulegt tekjutap ríkissjóðs vegna ákvæðisins þar sem töluverð óvissa ríkir um hversu mikill innflutningur á þessum bifreiðum verður en fram til þessa hefur lítið verið flutt inn af slíkum bifreiðum. Til að mynda eru eingöngu 11 rafbifreiðar og 21 vetnisbifreið skráðar í umferð hér á landi en ætla má að hlutdeild bifreiða sem ganga fyrir öðrum orkugjöfum en eingöngu bensíni eða dísilolíu sé um 0,16% af bifreiðaflotanum í landinu. Það er svipuð markaðshlutdeild og rafbifreiðar hafa náð í Noregi en þar hefur einnig verið komið á sambærilegu fyrirkomulagi og kveðið er á um í frumvarpinu. Mikill samdráttur hefur verið í innflutningi bifreiða frá því sem hann var fyrir fall fjármálakerfisins haustið 2008 en um 5.400 fólksbifreiðar voru fluttar inn til landsins á síðasta ári. Að því gefnu að innflutningur bifreiða haldist svipaður næstu tvö árin og að markaðshlutdeild innfluttra bifreiða sem undir ákvæðið falla verði um 0,2% má gera ráð fyrir að um 11 slíkar bifreiðar verði fluttar inn á ári og árlegt tekjutap ríkissjóðs af virðisaukaskatti vegna þeirra verði um 15 m.kr. Þar sem heildarkostnaður við rekstur og eignarhald þessara bifreiða verður eftir sem áður svipaður og við bifreiðar sem knúnar eru með hefðbundnum orkugjöfum virðist ekki ástæða til búast við að aukning í innflutningi þeirra verði mikið meiri en þetta.
Má því ætla miðað við þessar forsendur um fjölda innfluttra bifreiða af þessum toga að lögfesting frumvarpsins muni leiða til um 30 m.kr. tekjutaps fyrir ríkissjóðs næstu tvö árin, auk þess sem tekjur af vörugjöldum af eldsneyti eða olíugjöld vegna reksturs bifreiðanna lækki lítils háttar.