Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 675. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1084 — 675. mál.
1. Var nýlegur samningur Isavia ohf. við sveitarfélagið Sandgerði um brunavarnir á Keflavíkurflugvelli gerður í samráði við ráðherra?
2. Hvað starfa margir í slökkviliðinu í Sandgerði, annars vegar fastráðnir starfsmenn og hins vegar lausráðnir?
3. Í hvaða starfshlutfalli eru fastráðnu starfsmennirnir og hvert er árlegt meðalframlag hinna lausráðnu?
4. Hvernig hefur slökkviliðið í Sandgerði sinnt skyldum sínum samkvæmt samningnum frá 1. mars sl.?
5. Hver ber kostnað af viðbúnaði slökkviliðsins í Sandgerði, eða undirverktaka þess, vegna starfsemi á Keflavíkurflugvelli?
6. Hvaða lög gilda um brunavarnir á flugvellinum?
Skriflegt svar óskast.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1084 — 675. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um brunavarnir á Keflavíkurflugvelli.
Frá Merði Árnasyni.