Þingskjal 1116 — 686. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota, nr. 69/1995, með síðari breytingum (hækkun hámarksgreiðslna o.fl.).
(Lagt fyrir Alþingi á 140. löggjafarþingi 2011–2012.)
1. gr.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 7. gr. laganna:a. B-liður orðast svo: 5.000.000 kr. fyrir líkamstjón, þ.m.t. fyrir varanlegan miska og varanlega örorku.
b. Í stað „600.000“ í c-lið kemur: 3.000.000.
c. Við bætist nýr stafliður, svohljóðandi: 1.500.000 kr. vegna útfararkostnaðar.
3. gr.
Við 10. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Eigi ríkissjóður endurkröfu á hendur tjónþola á grundvelli 19. gr. skal hún dregin frá ákvarðaðri fjárhæð bóta til hans. Bótanefnd er heimilt að veita undanþágu frá þessu ef veigamikil rök mæla með því. Skal þá meðal annars horft til aldurs tjónþola og félagslegra aðstæðna.
4. gr.
Við 15. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Ráðherra er heimilt að setja leiðbeiningar um greiðslu þóknunar til lögmanns vegna aðstoðar við meðferð máls hjá bótanefnd og binda hana við tiltekna fjárhæð. Fjárhæð þessa skal endurskoða reglulega.
5. gr.
Við 19. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Endurkröfur ríkissjóðs skv. 1. mgr. skulu vera aðfararhæfar.
Bótanefnd er heimilt að fela innheimtuaðila að annast innheimtu fyrir hönd tjónþola vegna þess sem fellur utan greiðslu ríkissjóðs. Þetta gildir þó aðeins ef bætur eru ákvarðaðar á grundvelli 1. mgr. 11. gr. og krafan er ekki fyrnd. Heimilt er að taka gjald fyrir umrædda þjónustu sem ákveða skal nánar í reglugerð.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Liðin eru ríflega 15 ár frá því að lög nr. 69/1995 tóku gildi og við framkvæmd þeirra hefur margt komið fram sem betur mætti fara. Þá hafa bætur í sakamálum farið hækkandi á liðnum árum vegna verðlagsþróunar og ýmissa áherslubreytinga í réttarfari. Eru þær fjárhæðir sem takmarka greiðsluskyldu ríkissjóðs og koma fram í 7. gr. laganna því orðnar mjög úr takti við það sem eðlilegt má telja og leiða til þess að í mörgum tilvikum er stór hluti tjóns brotaþola óbættur. Lögunum hefur verið breytt sjö sinnum frá því að þau tóku gildi. Markmiðið með breytingunum nú má einkum rekja til sanngirnissjónarmiða. Í fyrsta lagi er leitast við að bæta stöðu þolenda kynferðisbrota með því að hækka hámarksgreiðslu á miskabótum, en stór hluti þeirra sem verður fyrir kynferðisbrotum og fær greiddar miskabætur á grundvelli laganna fær verulegan hluta tjóns síns ekki bættan vegna þeirra takmarkana sem eru á fjárhæðum bóta. Í öðru lagi er lögð áhersla á að bæta fremur meira tjón heldur en það sem minna er.
1. Tjón sem er bætt og fjárhæðir bóta.
Tilgangur laga nr. 69/1995 er einkum að styrkja stöðu þolenda ýmissa afbrota þar sem litlar líkur eru á því að sá sem er valdur að tjóni sem hlýst af refsiverðum verknaði muni hafa greiðslugetu til að greiða tjónþola bætur. Einkum eru greiddar bætur fyrir líkamstjón og miska eins og fram kemur í 2. og 3. gr. laganna.
1.1. Miski.
Með hugtakinu miski í 3. gr. laga nr. 69/1995 er átt við miska samkvæmt skilgreiningu hugtaksins í 26. gr. skaðabótalaga, nr. 50/1993. Með hugtakinu er einkum átt við ólögmæta meingerð gegn friði eða frelsi persónu, hvort sem það er með því að valda líkamsspjöllum eða hugrænu tjóni, sem ekki er unnt að slá föstu að hafi varanlegar afleiðingar. Í réttarframkvæmd eru miskabætur skv. 26. gr. skaðabótalaga langalgengustu bæturnar sem dæmdar eru til þolenda líkamsmeiðinga og kynferðisbrota og einnig til maka, barna eða foreldra þeirra sem sviptir hafa verið lífi. Miskabætur sem ákveðnar hafa verið með dómi í líkamsárásarmálum eru misháar eftir því hver verknaðurinn er, en eru oft á bilinu 300–500 þús. kr. Algengar fjárhæðir miskabóta sem ákveðnar hafa verið með dómi í kynferðisbrotamálum hafa verið á milli 1 og 2 millj. kr. Vegna þeirra takmarkana sem nú eru í 7. gr. laga nr. 69/1995 er ljóst að verulegur hluti tjóns vegna kynferðisbrota er óbættur.
1.2. Líkamstjón (varanleg örorka og varanlegur miski).
Með líkamstjóni er átt við þá skilgreiningu sem er að finna í I. kafla skaðabótalaga. Þar er hugtakið notað í rýmri merkingu en almenn málvenja gefur til kynna, því það nær bæði til tjóns vegna líkamsspjalla sem og andlegs eða geðræns tjóns. Verði einstaklingur fyrir varanlegum afleiðingum af hegningarlagabroti getur hann reist bótakröfu á því og krafan þá ýmist eða bæði í senn verið byggð á því að viðkomandi hafi orðið fyrir varanlegum miska skv. 4. gr. skaðabótalaga eða varanlegri örorku skv. 5.–8. gr. sömu laga. Varanlegur miski er almenn skerðing á ýmsum hlutrænum eða hugrænum lífsgæðum vegna líkamlegra eða geðrænna óþæginda. Er átt við afleiðingar sem unnt er að slá föstu með læknisfræðilegu mati að muni há viðkomandi einstaklingi varanlega. Með varanlegri örorku er átt við að tjón muni valda tjónþola varanlegri skerðingu á aflahæfi í prósentum talið, eða getu til að sinna þeim störfum sem með sanngirni má ætlast til að hann sinni á starfsævinni. Það getur bæði átt við líkamlegt og andlegt tjón. Verði einstaklingur fyrir alvarlegum skaða sem hefur áhrif á alla framtíðarafkomu hans getur bótakrafa numið tugum milljóna króna. Samkvæmt reglum skaðabótalaga eru bætur fyrir varanlegan miska miklu lægri en bætur fyrir varanlega örorku.
Alla jafna eru bætur vegna varanlegra afleiðinga afbrota ekki ákvarðaðar með dómi, heldur er sótt sérstaklega um greiðslu þeirra úr ríkissjóði að undangengnu læknisfræðilegu mati, þar sem tjón liggur oftast ekki að fullu fyrir þegar mál er til dómsmeðferðar. Það er því lagt fyrir bótanefnd að taka sjálfstæða afstöðu til bótakrafna á þessum grundvelli. Þeir sem einkum hafa fengið greiddar bætur vegna varanlegra afleiðinga líkamstjóns eru þolendur líkamsárása, en ekki hefur svo kunnugt sé verið farið fram á bætur fyrir varanlegar andlegar afleiðingar kynferðisbrota þótt ætla megi að slíkt tjón sé í mörgum tilvikum verulegt. Ekkert virðist í raun vera því til fyrirstöðu að þolandi kynferðisbrots geti krafist bóta vegna varanlegra afleiðinga brotsins, enda telst andlegt tjón til varanlegs miska sem og varanlegrar örorku. Rannsóknir í Danmörku hafa t.d. leitt í ljós að nokkur hluti kvenna sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi fellur brott af vinnumarkaði. (Katrin Helweg-Larsen, Marie Kruse, Jan Sørensen, Henrik Brønnum-Hansen: Voldens pris: Samfundsmæssige omkostninger ved vold mod kvinder. Danmörk 2010). Þá hafa rannsóknir á áhrifum kynferðisbrota í Danmörku einnig leitt í ljós að slík brot þykja mjög líkleg til að valda varanlegum hugrænum áhrifum á brotaþolann. (Katrin Helweg-Larsen, Marie Kruse: Violence against women and consequent health problems. Danmörk 2003;1.56-64. Katrin Helweg-Larsen, Marie Kruse, Jan Sørensen, Henrik Brønnum-Hansen: Voldens pris: Samfundsmæssige omkostninger ved vold mod kvinder. Danmörk 2010.)
1.3. Tillögur til breytinga á hámarksbótum.
Þegar frumvarp til núgildandi laga var lagt fyrst fram árið 1995 var gert ráð fyrir að takmarka greiðslur ríkissjóðs við tilteknar fjárhæðir sem námu 5 millj. kr. vegna líkamstjóns og 1 millj. kr. vegna miska. Á síðari stigum voru þessar viðmiðunarfjárhæðir lækkaðar verulega þar sem ekki reyndust vera nægilega traustar fjárheimildir til staðar í fjárlögum. Er í núgildandi lögum miðað við 2,5 millj. kr. vegna líkamstjóns og 600 þús. kr. vegna miska. Sett var lágmark að upphæð 400 þús. kr. á greiðslu bóta árið 2009, en það hafði verið 100 þús. kr. fram að því. Með frumvarpinu er lagt til að hámarksbætur fyrir líkamstjón, þ.m.t. fyrir varanlegar afleiðingar fyrir andlega og líkamlega heilsu tjónþola, verði hækkaðar í 5 millj. kr. og hámarksbætur fyrir miska verði hækkaðar í 3 millj. kr. Með því er mætt þeirri þróun sem hefur orðið og breytingum á fjárhæðum bóta auk þess sem leitast er við að bæta stöðu þeirra sem fá bætur fyrir miska á grundvelli laganna.
1.4. Takmarkanir á greiðslu bóta vegna varanlegs líkamstjóns.
Í norrænum skaðabótarétti hafa verið settar takmarkanir á greiðslu bóta vegna varanlegs líkamstjóns. Þannig verða ekki greiddar bætur fyrir varanlega örorku samkvæmt dönsku og norsku skaðabótalögunum nema varanleg örorka nái að lágmarki 15%. Í dönsku skaðabótalögunum er þetta lágmark bundið við 5% varanlegan miska en 15% varanlegan miska í norskum lögum. Þessar takmarkanir eru byggðar á því sjónarmiði að ef hlutfall tjóns er ekki meira en nemur umræddu lágmarki, þá sé um að ræða tjón sem er óverulegt og erfitt að meta eða sanna. Lagt er til í frumvarpinu að þetta verði tekið upp til þess að unnt sé að hafa að leiðarljósi að bæta frekar það tjón sem telst meira en minna með tilliti til sanngirnissjónarmiða og án þess að það hafi í för með sér verulega útgjaldaaukningu fyrir ríkissjóð. Lagt er til að ekki verði greiddar bætur fyrir varanlegan miska nema hann sé að lágmarki 5% og ekki verði greiddar bætur fyrir varanlega örorku nema hún sé að lágmarki 15%.
1.5. Útfararkostnaður.
Lagt er til að sett verði hámark á greiðslu útfararkostnaðar. Krafa um greiðslu á útfararkostnaði berst bótanefnd að jafnaði eftir niðurstöðu dómsmáls og fátítt að slík krafa berist nefndinni til sjálfstæðrar úrlausnar. Bætur fyrir útfararkostnað eru metnar í hverju tilviki og ráðast af ýmsum þáttum sem taka verður tillit til eins og staðfest var í dómi Hæstaréttar frá 26. september 2002 í máli nr. 127/2002. Lagt er til að þetta hámark verði miðað við 1,5 millj. kr., en ekki hefur enn komið krafa til bótanefndar um greiðslu á útfararkostnaði sem er hærri en það.
2. Áhrif breytinganna og áætlaður kostnaður vegna þeirra.
Með þessum breytingum er áætlað að nær allir þeir sem eiga rétt á greiðslu miskabóta úr ríkissjóði fái þær greiddar að fullu.
Samkvæmt framansögðu er lagt til að ekki verði greiddar bætur fyrir varanlegan miska nema hann sé að lágmarki 5%. Flestir sem skila inn matsgerð, sem byggð er á því að þeir hafi orðið fyrir varanlegum miska, ná að lágmarki 5% varanlegum miska. Lítill hluti þeirra sem fær ákvarðaðar bætur fyrir varanlegan miska fellur því út með þessum breytingum. Miðað við þau mál sem bótanefnd afgreiddi á 36 mánaða tímabili frá 2009 til 2011 má áætla að aðeins um 5% þeirra sem gera kröfu um varanlegan miska muni ekki ná lágmarkinu. Líta verður á þann hluta sem fellur undir lágmarkið sem óverulegan miska.
Með því að sett verði lágmark sem miðast við að varanleg örorka nemi hið minnsta 15%, til að greiðsla bóta komi til greina, mun þeim tilvikum þar sem greiddar eru bætur fækka verulega. Miðað við sama 36 mánaða tímabil og nefnt er hér að framan má greina að ríflega helmingur krafna um bætur fyrir varanlega örorku er 10% eða minni. Um það bil þriðjungur er vegna varanlegrar örorku sem er 7% eða minni. Fáar kröfur eru byggðar á því að tjónþoli hafi orðið fyrir 10–15% varanlegri örorku. Í þeim tilvikum þar sem 15% varanlegri örorku er náð er hún oftast mun hærri eða 30–40% og upp í 75%. Af þessu má ráða að fram til þessa hafi fé ríkissjóðs einkum verið varið til að bæta minni háttar tjón en þeir sem hafa orðið fyrir meira tjóni sitja með það óbætt.
Nokkuð erfitt er að meta nákvæmlega hversu mikil kostnaðaraukning hlýst af þessum breytingum á lögunum. Er það vegna þess að erfitt er að ráða í þróun afbrota og einnig virðast hafa orðið töluverðar sveiflur á fjölda umsókna til bótanefndar á liðnum árum án nokkurra augljósra skýringa. Nefna má að fjöldi umsókna tvöfaldaðist á árunum 2005–2008 án þess að tíðni afbrota hafi aukist á sama tíma. Þá má einnig nefna að nokkrar sveiflur geta orðið á útgjöldum þar sem fá alvarleg brot geta valdið verulegri útgjaldaaukningu. Með því að hækka hámark bóta fyrir miska munu útgjöld óhjákvæmilega aukast, en á móti kemur að útgjöld fyrir minni háttar varanleg líkamstjón minnka. Ætla má að kostnaðaraukning við hækkun á hámarki miskabóta úr 600 þús. kr. í 3 millj. kr. muni nema á bilinu 7–9 millj. kr. árlega. Með því að setja lágmark á það sem er greitt vegna varanlegs líkamstjóns munu þau útgjöld aftur á móti lækka um 13 millj. kr. á ári. Áætla má að við hækkun hámarksbóta fyrir líkamstjón úr 2,5 millj. kr. í 5 millj. kr. muni útgjöld aukast um 10 millj. kr. á ári. Áætluð heildarútgjaldaaukning vegna breytinga á lögunum mun því nema 5–10 millj. kr. árlega. Er þetta sett fram með þeim fyrirvara að mál verði svipuð að fjölda og umfangi eins og síðastliðin tvö til þrjú ár.
3. Frádráttur frá greiddum bótum vegna skuldajöfnunar.
Í 19. gr. laganna er mælt fyrir um að ríkissjóður eignist endurkröfurétt á hendur þeim sem er valdur að tjóni sem leiðir til bótagreiðslu á grundvelli þeirra. Á hverju ári koma upp nokkur tilvik þar sem einstaklingur, sem sækir um bætur, hefur áður verið valdur að tjóni annars einstaklings og hefur myndað ógreidda kröfu sem ríkissjóður hefur til innheimtu. Lagt er til að í þeim tilvikum verði tekin upp sú regla að draga skuli frá ákvörðuðum bótum það sem tjónþoli kann að skulda á grundvelli 19. gr. laganna. Lagt er til að bótanefnd meti þetta þó í hverju tilviki og falla megi frá þessu ef veigamikil rök mæla með því, t.d. ef hættir tjónþola hafa breyst verulega, hann var ungur að árum þegar brotið var framið eða býr við erfiða félagslega stöðu.
4. Kostnaður vegna meðferðar máls hjá bótanefnd.
Í 2. mgr. 15. gr. laganna er bótanefnd veitt heimild til að mæta kostnaði tjónþola af því að reka mál fyrir bótanefnd. Almennt er gert ráð fyrir að tjónþoli þurfi ekki aðstoð lögmanns við að setja fram kröfu sína, en langflest mál sem berast nefndinni koma þó frá lögmönnum, hvort heldur sem það er á grundvelli réttargæslustarfa eða að lögmaðurinn hafi verið ráðinn sem talsmaður brotaþola. Ekkert hámark er á þessum kostnaði og þar sem bótanefnd er almennt bundin við ákvörðun dóms um fjárhæð bóta hefur þessi liður farið hækkandi á liðnum árum. Framkvæmd dómstóla hefur líka verið nokkuð mismunandi um ákvörðun þóknunar til lögmanna. Með frumvarpinu er lagt til að ráðherra verði veitt heimild til að setja leiðbeiningar um greiðslu á kostnaði vegna vinnu lögmanna.
5. Endurkrafa bóta og aðfararhæfi.
Þegar bætur eru greiddar á grundvelli laganna eignast ríkissjóður endurkröfurétt á hendur þeim sem valdur var að tjóninu. Innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar hefur annast innheimtuna fyrir hönd ríkissjóðs. Skv. 5. tölul. 1. mgr. 1. gr. aðfararlaga, nr. 90/1989, eru úrskurðir yfirvalda aðfararhæfir ef fyrir því er lagaheimild. Skal þó aðfararbeiðni jafnan borin undir héraðsdómara. Með því að gera endurkröfur aðfararhæfar er unnt að bæta og flýta innheimtuferlinu verulega og auka líkur á endurheimtum.
Þar sem takmarkanir á greiðslu ríkissjóðs geta valdið því að brotaþoli fær aðeins hluta tjóns síns bættan er lagt til að tekin verði upp sú nýjung að bótanefnd geti falið innheimtuaðila í umboði brotaþola að annast innheimtu þess sem ekki fæst greitt úr ríkissjóði. Lagt er til að þetta eigi þó aðeins við um kröfur sem ákveðnar hafa verið með dómi og falla undir 1. mgr. 11. gr. laganna. Ekkert er því til fyrirstöðu að þessi háttur sé hafður vegna krafna sem orðið hafa til fyrir gildistöku laganna, sé krafan ófyrnd.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Lagt er til að sett verði neðri mörk á það varanlega tjón sem fæst bætt á grundvelli laganna þannig að varanlegur miski verði ekki bættur nema hann sé að lágmarki 5% og varanleg örorka ekki nema hún sé að lágmarki 15%. Er það gert til þess að ríkissjóður sé síður að bæta minni háttar tjón sem í mörgum tilvikum er umdeilanlegt og fjármunum ríkissjóðs verði, með vísan til sanngirnissjónarmiða, frekar varið í að bæta tjón þeirra einstaklinga sem hafa orðið fyrir meira tjóni en minna.
Um 2. gr.
Lagt er til að hámarksbætur vegna líkamstjóns verði hækkaðar í 5 millj. kr. og bætur vegna miska hækkaðar í 3 millj. kr. Er þetta gert til að mæta breytingum á réttarframkvæmd og koma til móts við brotaþola auk þess sem því markmiði að bæta fremur meira tjón en minna er betur náð. Í b-lið er áréttað að hugtakið „líkamstjón“ taki einnig til bóta fyrir varanlegan miska, sem og varanlega örorku, enda getur þá bæði verið átt við líkamlegt og hugrænt tjón. Þá er lagt til að sett verði þak á greiðslu útfararkostnaðar. Er það í samræmi við aðrar takmarkanir á greiðslu ríkissjóðs á grundvelli laganna.
Um 3. gr.
Lagt er til að þær ógreiddu kröfur sem tjónþola hefur verið gert að greiða á grundvelli laganna verði dregnar frá ákvarðaðri fjárhæð bóta. Bótanefnd verði þó heimilt að gera undantekningu á þessu ef veigamikil rök mæla með því, t.d. ef hættir tjónþola hafa breyst verulega, hann var ungur að árum þegar brotið var framið eða býr við erfiða félagslega stöðu.
Um 4. gr.
Lagt er til að ráðherra verði veitt heimild til að setja leiðbeiningar um greiðslu á lögmannskostnaði og meðal annars binda hann við tiltekna fjárhæð. Skal fjárhæðin meðal annars taka mið af viðmiðunarreglum dómstólaráðs. Reglur þessar skal endurskoða með tilliti til þróunar verðlags og þróunar í réttarfari. Almennt er ríkissjóður bundinn af ákvörðun dóms um þóknun til lögmanns en rétt þykir að takmarka þessa fjárhæð, þó með tilliti til þess sem sanngjarnt þykir.
Um 5. gr.
Lagt er til að endurkröfur ríkissjóðs skv. 1. mgr. skuli vera aðfararhæfar, sbr. ákvæði 5. tölul. 1. mgr. 1. gr. aðfararlaga, nr. 90/1989. Þá er lagt til að bótanefnd geti falið innheimtuaðila í umboði brotaþola að annast innheimtu þess sem ekki fæst greitt úr ríkissjóði. Þetta skal þó aðeins eiga við þær kröfur sem ákveðnar hafa verið með dómi og falla undir 1. mgr. 11. gr. laganna. Þá verði heimilt að taka hóflegt gjald fyrir umrædda þjónustu sem ákveða skal nánar í reglugerð. Er þetta lagt til með það í huga að erfitt getur verið að leggja á tjónþola að innheimta sjálfur eftirstöðvar bóta úr hendi tjónvalds.
Um 6. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um greiðslu ríkissjóðs
á bótum til þolenda afbrota, nr. 69/1995, með síðari breytingum.
Helstu breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu eru þessar: Í fyrsta lagi er lagt til að ekki verði greiddar bætur fyrir varanlegan miska nema hann sé að lágmarki 5%. Í öðru lagi er lagt til að ekki verði greiddar bætur fyrir varanlega örorku nema hún sé að lágmarki 15%. Í þriðja lagi er lagt til að hámarksbætur fyrir líkamstjón, þar með talið fyrir varanlegar afleiðingar andlegrar og líkamlegrar heilsu tjónþola, verði hækkaðar úr 2,5 m.kr. í 5 m.kr. eða um 100%. Í fjórða lagi er lagt til að hámarksbætur fyrir miska verði hækkaðar úr 600 þús.kr. í 3 m.kr. eða um 500%. Þá bætist við nýr liður þar sem tilgreint er 1,5 m.kr. hámark vegna útfararkostnaðar, sem ekki var skilgreint áður. Jafnframt er lagt til að eigi ríkissjóður endurkröfu á hendur tjónþola á grundvelli 19. gr. laganna skuli hún dregin frá ákvarðaðri fjárhæð bóta til hans, en þó einungis ef þau brot sem tjónþoli framdi eru ófyrnd samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga. Einnig er lagt til að sú breyting verið gerð á 15. gr. laganna að ráðherra verði heimilt að setja leiðbeiningar um þóknun til lögmanns og binda hana við tiltekna fjárhæð. Að endingu eru lagðar til þær breytingar á 19. gr. laganna að endurkröfur ríkissjóðs skv. 1. mgr. skuli vera aðfararhæfar og að bótanefnd verði heimilt að fela innheimtuaðila að annast innheimtu fyrir hönd tjónþola vegna þess sem fellur utan greiðslu ríkissjóðs, þó aðeins ef bætur eru ákvarðaðar á grundvelli 1. mgr. 11. gr. og krafan er ekki fyrnd. Í þessu sambandi verði heimilt að taka gjald fyrir umrædda þjónustu sem ákveða skal nánar í reglugerð.
Í eftirfarandi töflu hefur verið tekið saman hvernig útgjöld málaflokksins hafa þróast frá árinu 2001 til loka árs 2011, á verðlagi ársins 2011. Þar sést að greiðslur bóta til einstaklinga að meðtöldum vaxta- og aukagreiðslum hafa verið nokkuð breytilegar milli ára en ekki vaxið um meira en 2,8% að raungildi. Hins vegar hafa innheimtar skaða- og tjónsbætur lækkað verulega að raungildi á tímabilinu sem hefur einnig komið fram í því að þurft hefur að afskrifa umtalsverðar kröfur á tjónvalda. Þetta hefur haft í för með sér að samtals hafa nettóútgjöld bótaflokksins hækkað um 103% að raungildi á tímabilinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Þá er í töflunni tekinn saman uppsafnaður mismunur útgjalda og fjárheimilda á verðlagi ársins 2011 síðustu fimm ár. Þar sést að uppsöfnuð útgjöld fjárlagaliðarins umfram þær fjárheimildir sem innanríkisráðuneytið hefur veitt til málefnisins úr sínum útgjaldaramma nema rúmum 452 m.kr. á þessum fimm árum á föstu verðlagi. Umframgjöldin hafa til þessa verið felld niður í árlegum lokafjárlögum.
Erfitt er að ráða í þróun afbrota á komandi missirum og árum og því óhægt um vik að meta nákvæmlega hversu mikil kostnaðaraukning hlýst af þessum breytingum. Einnig virðast hafa orðið töluverðar sveiflur á fjölda umsókna til bótanefndar á liðnum árum. Eins geta orðið sveiflur á útgjöldum þar sem fáein alvarleg brot geta valdið verulegri útgjaldaaukningu. Verði frumvarpið að lögum má þó telja allar líkur á að útgjöld vegna miskabóta muni aukast en á móti muni útgjöld vegna minni háttar varanlegra líkamstjóna minnka.
Ef gert er ráð fyrir svipuðum fjölda og umfangi mála eins og síðastliðin þrjú ár má gera ráð fyrir að hækkun miskabóta úr 600 þús.kr. í 3 m.kr. muni fela í sér um 11 m.kr. árlegan kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. Þá er áætlað að hækkun hámarksbóta fyrir líkamstjón úr 2,5 m.kr. í 5 m.kr. muni þýða um 10 m.kr. kostnaðarauka fyrir ríkissjóð á ársgrundvelli. Hins vegar má á sömu forsendum telja að vegna breytinga á lágmarksviðmiðum muni bætur vegna varanlegs líkamstjóns lækka sem nemur allt að 12 m.kr. á ársgrundvelli. Þannig megi gera ráð fyrir allt að 9–10 m.kr. hækkun heildarútgjalda málaflokksins á ársgrundvelli, nettó, vegna þessara áforma.
Í fjárlögum liðinna tveggja ára hefur verið gert ráð fyrir nokkurri skerðingu á framlögum þessa bótaflokks vegna útfærslu innanríkisráðuneytisins, áður dómsmálaráðuneytisins, á aðhaldsmarkmiðum sínum í tengslum við áform um að bæta afkomu ríkissjóð. Hins vegar sýnir framangreint að reyndin er töluvert önnur. Verði frumvarpið að lögum munu bætur hækka gangi áætlanir eftir um a.m.k. 9–10 m.kr. sem mun að óbreyttu þýða meiri útgjöld umfram heimildir fjárlaga. Ekki er gert ráð fyrir þessum auknu útgjöldum í gildandi fjárlögum, þar sem settur er bindandi útgjaldarammi á nafnvirði fyrir ríkið í heild og mun halli á afkomu ríkissjóðs aukast sem því nemur að öðru óbreyttu.